„Stjórnvöld hafa svikið leigjendur“

Leigj­endur eru jað­ar­settir og alger­lega ber­skjald­aðir fyrir henti­stefnu leigu­sala, segir vara­þing­maður Flokks fólks­ins. Stjórn­völd verði að koma með beinar aðgerðir sem stöðva brjál­semi óhefts mark­aðar sem stjórn­ist af græðgi ein­stak­linga.

Helga Þórðardóttir varaþingmaður Flokks fólksins.
Helga Þórð­ar­dóttir vara­þing­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er rangt að sjá hús­næði ein­göngu sem tæki­færi til að græða pen­inga því að mann­rétt­indi fólks sem þurfa á slíku hús­næði að halda hljóta að vega meira, það er ef við erum mann­eskjur.“

Þetta sagði Helga Þórð­ar­dóttir vara­þing­maður Flokks fólks­ins undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hún benti á að ekki væru til lög á Íslandi sem skapa leigj­endum jafn­ræði við leigu­sala. „Í nágranna­lönd­unum eru til slík lög. Þar fara fram samn­inga­við­ræður um hækkun á leigu einu sinni á ári milli leigu­sala og stétt­ar­fé­lags leigj­enda. Þar verða leigusalar að rök­styðja hækkun með til­vísun í raun­kostn­að­ar­hækk­anir. Aðilar þurfi að kom­ast að sam­komu­lagi.“

„Að hafa þak yfir höfuðið eru mannréttindi“

Helga sagði að til væru dæmi frá Svíþjóð þar sem mun­aði 12 sænskum krónum á mán­uði „sem olli því að æðra dóm­stig varð að skera úr um milli aðila, en 12 sænskar krónur eru 160 íslenskar krónur“.

„Að hafa þak yfir höf­uðið eru mann­rétt­indi. Leigj­endur eiga það ekki skilið að vera auð­lind þeirra sem eiga að minnsta kosti tvennt af öllu. Stjórn­völd hafa svikið leigj­endur, þeir eru jað­ar­settir og eru alger­lega ber­skjald­aðir fyrir henti­stefnu leigu­sala sem ákveða leigu ein­hliða. Það er rangt að sjá hús­næði ein­göngu sem tæki­færi til að græða pen­inga því að mann­rétt­indi fólks sem þurfa á slíku hús­næði að halda hljóta að vega meira, það er ef við erum mann­eskjur.

Lög­gjaf­inn verður að semja lög sem skapa jafn­ræði milli leigj­enda og leigu­sala. Það verður að koma böndum á óhefta hækkun á leigu sem býr til enn meiri fátækt. Á meðan þau lög eru ekki til­búin verða að koma til beinar aðgerðir stjórn­valda sem stöðva brjál­semi óhefts mark­aðar sem stjórn­ast í dag af græðgi ein­stak­linga, sem veldur mörgum fjöl­skyldum og börnum þeirra mik­illi óham­ingju. Því verður strax að linna,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár