Vill endurskoða áform um að skrá Íslandsbanka beint á markað

Bjarni Bene­dikts­son segir að það sé ekki hægt að full­yrða að Íslands­banki verði seldur á þessu kjör­tíma­bili. Hann vill end­ur­skoða áform um að skrá Íslands­banka beint á markað og selja ríkið smátt og smátt niður. Það þurfi að skoða aðra mögu­leika.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að það sé ekki hægt að full­yrða það að Íslands­banki verði seldur á þessu kjör­tíma­bili, þar sem að rík­is­stjórnin muni ekki selja hann gegn hvaða verði sem er. „En við þurfum líka að skoða hvaða mögu­leikar eru í stöð­unni og end­ur­skoða fyrri áform sem gengu út á að stefna beint að skrán­ingu Íslands­banka á markað og selja ríkið smátt og smátt niður. Það þarf að skoða ýmsa mögu­leika en ég er ekki til­bú­inn að sitja með hendur í skauti og bíða þess að sólin fari aftur að skína á banka­mark­að­inn.“

Þetta segir Bjarni í við­tali við Við­skipta­Mogg­ann í dag.

Þar seg­ist Bjarni einnig hafa velt því fyrir sér hvort að til greina komi að sam­eina tvo við­skipta­banka, en ríkið á sem stendur Íslands­banka og Lands­banka. Eftir því sem hann skoði málið betur þá sjái hann þó fleiri og fleiri van­kanta á því. „Ég held t.d. að ef það ætti að vera okkar næsta útspil í þeim efnum þá myndi lítið ger­ast í þessum málum á kom­andi árum.“

Bankasýslan lagði til tvær leiðir

Í Hvít­­­­bók um fram­­­­tíð­­­­ar­­­­sýn fyrir fjár­­­­­­­mála­­­­kerf­ið, sem birt var í des­em­ber í fyrra, var fjallað ítar­­­­lega um hvernig skuli standa að sölu á hlutafé í rík­­­­is­­­­bönk­­­­un­um, Lands­­­­bank­­­­anum og Íslands­­­­­­­banka, og var horft til þess að nota skráðan markað til þess að end­­­­ur­­­­skipu­­­­leggja eign­­­­ar­hald með þeim hætti, að dreift og traust eign­­­­ar­hald verði hluti af fjár­­­­­­­mála­­­­kerf­inu til fram­­­­tíð­­­­ar.

Banka­sýsla rík­is­ins hefur verið falið að horfa til nið­ur­stöðu þeirrar vinnu við mótun á því hvernig færi best að selja rík­is­bank­anna. Hún lagði fram minn­is­blað á ráð­herra­fundi um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins í lok ágúst síð­ast­lið­ins þar sem lagt var til að annað hvort ætti að selja 25 pró­­sent hlut í Íslands­­­banka í hluta­fjár­­út­­­boði og skrá þau bréf tví­­hliða á mark­að, eða að selja allt að öllu hlutafé í bank­­anum með upp­­­boðs­­leið þar sem önnur fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki eða sjóðir geti gert til­­­boð í hann. Aðgerð­irnar hafa ekki verið tíma­settar enn sem komið er.

Miðað við orð Bjarna í við­tal­inu við Við­skipta­Mogg­ann þá vill hann skoða aðrar leiðir en skrán­ing­ar­leið­ina.

Meirihluti landsmanna vill að ríkið eigi banka

Alls eru 61,2 pró­­­sent lands­­­manna jákvæðir gagn­vart því að íslenska ríkið sé eig­andi við­­­skipta­­­banka. Fjórð­ungur þjóð­­­ar­inn­­­ar, 25,2 pró­­­sent, hefur enga fast­­­mót­aða skoðun á slíku eign­­­ar­haldi og ein­ungis 13,5 pró­­­sent Íslend­inga eru nei­­­kvæðir gagn­vart slíku eign­­­ar­haldi.

Þetta er meðal þess sem kom fram í rann­­­sókn sem Gallup vann fyrir fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráðu­­­neytið og birt­ist með Hvít­­­bók­inni. Mark­mið könn­un­­­ar­innar var að skoða ítar­­­lega traust til banka­­­kerf­is­ins á Íslandi, hverjar væru helstu ástæður fyrir van­­­trausti og hvað mætti betur fara. Úrtakið var 1.408 manns 18 ára og eldri af land­inu öllu. Þátt­­­töku­hlut­­­fall var 54,5 pró­­­sent.

Þegar þeir sem eru jákvæðir gagn­vart því að ríkið sé eig­andi við­­­skipta­­­banka voru spurðir af hverju sögðu 24,4 pró­­­sent þeirra, eða tæp­­­lega fjórð­ung­­­ur, að ríkið væri betri eig­andi en einka­að­ili. Fimmt­ungur sagði að helsta ástæðan væri öryggi og/eða traust og 18,3 pró­­­sent vegna þess að arð­­­ur­inn færi þá til almenn­ings. Þá sögðu 15,7 pró­­­sent að helsta ástæða þess að þeir væru jákvæðir gagn­vart því að ríkið sé eig­andi við­­­skipta­­­banka vera þá að það þýddi að minni líkur væru á því að hlut­irnir myndu enda illa og að spill­ing og græðgi yrði minni.

Þeir sem voru nei­­­kvæðir gagn­vart því að ríkið væri eig­andi við­­­skipta­­­banka töldu það ekki vera hlut­verk rík­­­is­ins né að það væri hæft til þess að eiga við­­­skipta­­­banka. Þá væri hætta á spill­ingu og eign­­­ar­hald á við­­­skipta­­­banka væri þar að auki áhætt­u­­­samt fyrir rík­­­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár