Rúmlega 200 sóttu um starf aðstoðarmanns hjá Pírötum

Fyrr­ver­andi frétta­maður Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar hefur verið ráð­inn sem aðstoð­ar­maður þing­flokks Pírata. Rúmlega 200 umsækj­endur sóttu um starfið.

Stefán Óli Jónsson, nýr aðstoðarmaður þingflokks Pírata.
Stefán Óli Jónsson, nýr aðstoð­ar­maður þing­flokks Pírata. Mynd: Aðsend mynd

Stefán Óli Jónsson hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður þing­flokks Pírata. Hann var val­inn úr hópi rúm­lega 200 umsækj­enda, hóf störf 1. sept­em­ber og mun aðstoða þing­flokk­inn fram að Alþing­is­kosn­ingum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá flokknum í dag.

Stefán mun meðal ann­ars ann­ast sam­skipti við fjöl­miðla og aðstoða þing­menn flokks­ins í störfum sínum. Fyrir eru starfs­menn þing­flokks­ins þeir Eiríkur Rafn Rafnsson og Baldur Karl Magn­ús­son.

„Stefán kemur til Pírata frá frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar þar sem hann hóf störf í upp­hafi árs 2014. Á árum sínum hjá frétta­stof­unni miðl­aði Stefán fréttum þvert á miðla; í sjón­varpi, útvarpi og á vef, auk þess að hafa komið að fram­leiðslu ann­ars frétta­tengds efnis.

Að loknu stúd­ents­prófi úr Verzlunarskóla Íslands lauk Stefán BA-gráðu í sagn­fræði frá Háskóla Íslands og meistara­gráðu í nýsköpun og við­skipta­þróun frá sama skóla,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár