Um 43 prósent hlutdeildarlána veitt á höfuðborgarsvæðinu

Inn í reglu­gerð um hlut­deild­ar­lán er skrifuð sér­stök trygg­ing fyrir því að hið minnsta 20 pró­sent lán­anna þurfi að vera veitt utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Það hefur heldur betur ekki þurft að grípa til þeirrar for­gangs­að­gerðar til þessa.

Alls hafa 126 af 292 veittum hlutdeildarlánum verið á höfuðborgarsvæðinu.
Alls hafa 126 af 292 veittum hlut­deild­ar­lánum verið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Á því ári sem liðið er frá því að byrjað var að veita hlut­deild­ar­lán, vaxta­laus við­bót­ar­lán úr rík­is­sjóði sem ætluð eru tekju- og eigna­litlum fyrstu kaup­endum, hafa 43 pró­sent lán­anna verið veitt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en 57 pró­sent utan þess. Þetta kemur fram í svari frá Húsnæðis- og manns­virkja­stofnun við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Þegar hlut­deild­ar­lánin voru sam­þykkt á þingi haustið 2020 var búist við því að lánin yrðu umtals­vert fleiri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en reyndin hefur verið til þessa, en inn í reglu­gerð um hlut­deild­ar­lánin voru skrif­aðar sér­stakar trygg­ingar fyrir því að minnsta kosti 20 pró­sent af þess­ari nýju teg­und lána yrðu veitt til kaupa á íbúðum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Það má þó ef til vill telj­ast eðli­legt að lánað hafi verið fyrir fleiri íbúðum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins til þessa, enda eru þau skil­yrði skrifuð inn í reglu­gerð um lánin að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þurfi íbúð­irnar að vera nýbyggðar, á meðan að utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er hægt að fá und­an­þágu og fá lánað fyrir eldri íbúð sem hlotið hefur gagn­gerar end­ur­bætur.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er fast­eigna­verð þó einnig það hæsta á land­inu og flestir ein­stak­lingar sem eru að reyna að kom­ast inn á hús­næð­is­mark­að­inn. Á það hefur verið bent á und­an­förnu að í dag séu afar fáar íbúðir til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem falli innan þess verð­bils sem gerir íbúðir „hag­kvæmar“ í skiln­ingi reglu­gerðar um hludeild­ar­lán.

Alls hafa 126 hlut­deild­ar­lán verið veitt til íbúða­kaupa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar af 80 í Reykja­vík, 18 í Mos­fellsbæ, 11 í Hafn­ar­firði, 9 í Garðabæ og 8 í Kópavogi. Afgang­ur­inn af lán­unum hefur dreifst um allt land, en lánin eru 292 í heild­ina sam­kvæmt töl­unum sem Kjarninn fékk frá HMS.

Fyrir utan höf­uð­borg­ar­svæðið hafa flest lán verið veitt í Reykja­nesbæ, eða alls 63 tals­ins. Á Akureyri hefur verið lánað fyrir kaupum á 45 íbúðum og í Árborg eru lánin 16 tals­ins til þessa. Lánað hefur verið til kaupa á 10 íbúðum í Hvera­gerði, 9 lán hafa verið veitt í Suð­ur­nesjabæ og 8 á Akranesi.

Í öðrum sveit­ar­fé­lögum hring­inn í kringum landið eru lánin 1-2 tals­ins. Reyndar væri rétt­ara að tala um hálf­hring um landi í þessu sam­hengi, því ekk­ert hlut­deild­ar­lán hefur enn verið veitt til kaupa á íbúðum í sveit­ar­fé­lögum á Austur- eða Suð­aust­ur­landi.

Flest þau lán sem hafa verið veitt utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins til þessa, í fyrstu fimm úthlut­unum árs­ins 2021 af þeim sex sem áætlað er að klárist á árinu, hafa verið til kaupa á íbúðum á skil­greindum vaxt­ar­svæðum utan borg­ar­svæð­is­ins. Þar, n.t.t. á Akranesi, Akureyri, Grinda­vík, Hvera­gerði, Reykja­nesbæ, Árborg og Vogum er lánað fyrir ögn dýr­ari íbúðum en í öðrum sveit­ar­fé­lögum utan Stór-Reykja­víkur, þar sem svo aftur er lánað fyrir enn dýr­ari íbúðum.

Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun segir í svari til Kjarnans að um þessar mundir sé verið að ljúka sjöttu og síð­ustu úthlutun árs­ins og að frek­ari töl­fræði um stöðu úthlut­ana muni verða aðgengi­leg hjá stofn­un­inni eftir þá úthlutun.

Eins og Kjarninn sagði frá á dög­unum var áður en að þeirri úthlutun kom búið að úthluta innan við 2,5 millj­örðum króna frá því að þetta nýja úrræði fór af stað, en þegar lánin voru kynnt til sög­unnar var gert ráð fyrir því að um fjórum millj­örðum yrði úthlutað árlega, alls 40 millj­örðum á tíu ára tíma­bili. Í fjár­laga­frum­varp­inu var enn gert ráð fyrir því í áætl­unum stjórn­valda að lánin upp í 3,6 millj­arða króna á þessu ári, að lok­inni síð­ustu úthlut­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár