Hlutdeildarlánin ekki að ganga jafn hratt út og áætlanir gerðu ráð fyrir

Þegar hlut­deild­ar­lánin voru kynnt til sög­unnar haustið 2020 var gert ráð fyrir því að um fjórir millj­arðar yrðu lán­aðir vaxta­laust til fyrstu kaup­enda á ári hverju. Á fyrsta rúma árinu hafa útlán hins opin­bera hins vegar numið tæpum 2,5 millj­örðum.

Hlutdeildarlánunum var ætlað að hjálpa tekju- og eignalitlu fólki að komast í eigið húsnæði og skapa hvata til aukinnar uppbyggingar ódýrari íbúða.
Hlut­deild­ar­lán­unum var ætlað að hjálpa tekju- og eigna­litlu fólki að kom­ast í eigið hús­næði og skapa hvata til auk­innar upp­bygg­ingar ódýr­ari íbúða. Mynd: Bára Huld Beck

Á rúmu ári hafa alls verið veitt 294 hlut­deild­ar­lán, sem eiga að nýt­ast tekju- og eigna­litlum ein­stak­lingum til kaupa á fyrstu fast­eign. Um er að ræða vaxta- og afborg­ana­laus við­bót­ar­lán frá rík­inu sem geta numið allt að 20 pró­sentum af kaup­verði til­tek­inna fast­eigna. Ríkið fær síðan greitt til baka þegar fast­eignin er seld.

Heild­ar­fjár­hæð þess­ara 294 lána nam 2.438 millj­ónum króna, sam­kvæmt frétt Frétta­blaðs­ins í vik­unni, sem byggði á svörum Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar við fyr­ir­spurn mið­ils­ins.

Það er um einum og hálfum millj­arði lægri upp­hæð en áætl­anir gerðu ráð fyrir þegar lög um hlut­deild­ar­lán urðu voru sam­þykkt á Alþingi í upp­hafi 2020. Þá var gengið út frá því að um fjórir millj­arðar króna yrðu lán­aðir árlega næstu tíu ár og á að heild­ar­skuld­bind­ingar rík­is­sjóðs vegna lán­anna myndu nema 40 millj­örðum á því tíma­bili.

Vert er þó að taka fram að sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu sem lagt var fram í síð­asta mán­uði gerðu áætl­anir enn ráð fyrir því að hlut­deild­ar­lán að upp­hæð 3,6 millj­arða króna yrðu veitt á þessu ár. Í áætl­unum næsta árs svo gert ráð fyrir 3,75 millj­arða króna útlánum í þessum lána­flokki.

Sérstakir ferlar um umframeftirspurn skrifaðir inn í reglugerð

Samkvæmt reglu­gerð um þessa teg­und lána skal úthluta þeim sex sinnum á ári, þrisvar sinnum á fyrri helm­ingi árs og þrisvar sinnum á síð­ari helm­ingi árs­ins. Inn í reglu­gerð­ina eru skrif­aðar sér­stakar reglur um hvernig skuli bregð­ast við ef það fjár­magn sem sé til úthlut­unar hverju sinni dugi ekki til að anna eft­ir­spurn eft­ir­lánum.

[adspot]

Ef sú staða kemur upp, ein­hvern­tím­ann á næstu árum, skal dregið af handa­hófi úr umsóknum þeirra umsækj­enda sem upp­fylla skil­yrði fyrir því fá lánin og hljóta þeir þá hlut­deild­ar­lán eða láns­vil­yrði, eftir því hvort kauptil­boð leggur fyrir eða ekki.[links]

Umsækj­endur með sam­þykkt kauptil­boð í íbúðir skulu njóta for­gangs að hlut­deild­ar­lánum umfram þá sem ekki hafa þegar fengið sam­þykkt kauptil­boð, segir í reglu­gerð­inni, auk þess sem þar er imprað á því að minnsta kosti 20 pró­sent hlut­deild­ar­lána skuli renna til kaupa á íbúðum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Engin íbúð til í dýrasta flokki

Í reglu­gerð­inni um hlut­deild­ar­lánin er skil­greint fyrir hvers­konar íbúðum er lánað. Hærri lán eru veitt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en utan þess, og lands­byggð­inni er skipt upp í „vaxt­ar­svæði“ og svæði utan vaxt­ar­svæða.

Að hámarki er hægt að fá hlut­deild­ar­lán fyrir íbúð sem kostar 58,5 millj­ónir króna, en það þarf þá að vera 4 svefn­her­bergja íbúð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem er að lág­marki 100 fer­metrar. Hún þarf svo að vera ný, eða í það minnsta nýupp­gerð sem íbúð­ar­hús­næði.

Engin íbúð, hvorki ný né eldri, á höf­uð­borg­ar­svæð­inu upp­fyllir þessi skil­yrði, sam­kvæmt athugun Kjarnans á fast­eigna­vef Vísis í gær. Bent hefur verið á það að und­an­förnu að heilt yfir séu sára­fáar íbúðir sem upp­fylli skil­yrði hlut­deild­ar­lán­anna til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um þessar mundir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár