Telja bréf í HB Granda undirverðlögð

Grein­endur Íslands­banka ráð­leggja kaup á bréfum í HB Granda.

Nið­ur­staða sjóð­streym­is­grein­ingar grein­enda Íslands­banka á HB Granda hf. gefur verð­mats­gengið 0,26 evrur á hlut. Jafn­gildir þetta 33,8 krónum á hlut miðað við gengi evru nú. Félagið. Nið­ur­staða þessa verð­mats er um 13 pró­sent hærra en síð­asta skráða verð á félag­inu, miðað við 30. ágúst, og er mælt með því að fjár­festar kaupi bréf félags­ins.

Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu á rekstri HB Granda. Rekstur félags­ins hefur gengið afar vel síð­ustu ár, og nam hagn­aður félags­ins í fyrra 44,5 millj­ónum evra, eða sem nemur tæpum sex millj­örðum króna miðað við núver­andi gengi.

EBITDA fram­legð félags­ins, það er rekstr­ar­hagn­aður fyrir afskriftir og fjár­magnsliði, er í verð­mati Íslands­banka metin 25 pró­sent til fram­tíðar. „Við byggjum þessa for­sendu á upp­gjörum síð­ustu miss­era og þeim ábata sem við reiknum með að náist með nýsmíði þriggja ísfisk­s­tog­ara sem afhentir verða félag­inu fram á næsta ár. Forsenda um ábata af nýsmíði tveggja upp­sjáv­ar­skipta sem þegar hafa verið afhent, raun­gerð­ist,“ segir í grein­ing­unni.

Gengi hluta­bréfa í HB Granda hækk­aði nokkuð í gær, eftir að verð­matið kom fram, en sé horft yfir síð­ast­liðið ár hefur gengið lækkað. Fyrir tæpu ári var gengi bréfa félags­ins 42 en í dag er það 30,65.

HB Grandi er afar fjár­sterkt félag en í lok árs í fyrra var eign­fjár­hlut­fall þess 62 pró­sent, og heild­ar­eignir námu ríf­lega 395 millj­ónum evra, eða sem nemur um 52 millj­örðum króna. Lang­tíma­skuldir félags­ins voru í lok árs í fyrra 109,7 millj­ónir evra, eða sem nemur um 14,3 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár