Fjöldi þeirra sem fá vaxtabætur hefur hrunið

Vaxta­bóta­kerfið er ónýtt að mati ASÍ. 28 pró­sent ein­hleypra fast­eigna­eig­enda með hús­næð­is­lán fá vaxta­bætur, miðað við 69 pró­sent árið 2009.

Hús­næð­is­kerfið gerir ekki ráð fyrir hærra hús­næð­is­verði og hærri vaxta­gjöldum, að því er fram kemur í rann­sókn hag­deildar ASÍ. Hlutfall ein­hleypra fast­eigna­eig­enda með hús­næð­is­lán sem fá vaxta­bætur er komið niður í 28 pró­sent, miðað við 69 pró­sent árið 2009.

„Fólk sem er að koma inn á hús­næð­is­mark­að­inn hefur því þurft að skuld­setja sig meira en vaxta­bóta­kerfið hefur ekki fylgt þeirri þróun og gerir ekki ráð fyrir hærra hús­næð­is­verði og hærri vaxta­gjöldum,“ segir í frétt á vef ASÍ.

Kjarninn greindi frá því í síð­asta mán­uði að vaxta­bætur hafa sam­tals lækkað um 7,7 millj­arða króna síðan árið 2010 og þeim fjöl­skyldum sem fá þær hefur fækkað um rúm­lega 30 þús­und á saman tíma. Á sama tíma og sífellt færri fá vaxta­bætur vegna íbúð­ar­hús­næðis þá hafa fast­eigna­gjöld, sem sveit­ar­fé­lög leggja á, hækkað um 50 pró­sent vegna gríð­ar­legra hækk­ana á hús­næð­is­verði. Sam­an­dregið hafa því bóta­greiðslur til hús­næð­is­eig­enda hríð­lækkað og skattar á hús­næð­is­eig­endur hækkað umtals­vert.

Vaxta­bætur sem hlut­fall af launum ein­stæðra for­eldra með laun við neðri fjórð­ungs­mörk, sem skulda 80 pró­sent í 100 fer­metra íbúð, eru orðnar að engu. Árið 2009 var hlut­fallið 16 pró­sent og árið 1998 var það 12 pró­sent.

„Laun hafa hækkað en á sama tíma hafa skerð­ingar vegna tekna auk­ist í vaxta­bóta­kerf­inu og vaxta­bæt­urnar sjálfar hafa ekki fylgt launa­þróun heldur staðið í stað,“ segir enn fremur á vef ASÍ. Í til­fell­inu þar sem hlut­fall vaxta­bóta af launum er orðið 0 pró­sent er fyrst og fremst um að kenna eigna­skerð­ingu, að mati ASÍ, „því kerfið í dag tekur ekki til­lit til hækk­andi hús­næð­is­verðs og gerir ekki ráð fyrir að ein­stæðir for­eldrar þurfi stærra hús­næði en þeir sem búa einir.“

„Óhætt er að tala um eðl­is­breyt­ingu á kerf­inu,“ segir ASÍ sem hefur mót­mælt stefnu rík­is­stjórn­ar­innar um ein­földun á hús­næð­is­stuðn­ings­kerf­inu og fækkun þeirra sem eiga rétt á vaxta­bótum. ASÍ segir þetta grafa undan félags­legum stöð­ug­leika með ófyr­ir­séðum afleið­ingum fyrir kjara­samn­inga á vinnu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár