Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hækkun á húsnæðisverði étur upp vaxtabætur en eykur skattbyrði

Frá árinu 2010 hafa vaxta­bætur lækkað um 7,7 millj­arða króna og þeim fjöl­skyldum sem eiga rétt á þeim fækkað um 30 þús­und. Á sama tíma hafa fast­eigna­gjöld skilað Reykja­vík­ur­borg 50 pró­sent meiri skatt­tekjum.

Almennar vaxta­bætur vegna vaxta­gjalda af lánum til kaupa á íbúð­ar­hús­næði, sem ein­stak­lingar greiddu af á árinu 2016, námu 4,3 millj­örðum króna. Það er lækkun um 16,8 pró­sent á milli ára. Alls fengu 26.107 þiggj­endur vaxta­bætur á síð­asta ári, eða 12,1 pró­sent færri en árið áður. Vaxta­bætur hafa sam­tals lækkað um 7,7 millj­arða króna síðan árið 2010 og þeim fjöl­skyldum sem fá þær hefur fækkað um rúm­lega 30 þús­und á saman tíma. Þetta er hægt að lesa úr fréttum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um nið­ur­stöðu álagn­ingu opin­berra gjalda á und­an­förnum árum.

Á sama tíma og sífellt færri fá vaxta­bætur vegna íbúð­ar­hús­næðis þá hafa fast­eigna­gjöld, sem sveit­ar­fé­lög leggja á, hækkað um 50 pró­sent vegna gríð­ar­legra hækk­ana á hús­næð­is­verði. Sam­an­dregið hafa því bóta­greiðslur til hús­næð­is­eig­enda hríð­lækkað og skattar á hús­næð­is­eig­endur hækkað umtals­vert.

Vaxtabætur lækkað um 7,7 milljarða

Árið 2010 fengu 56.600 fjöl­skyldur almennar vaxta­bætur upp á 12 millj­arða króna. Bætur vegna þess árs, og árs­ins 2011, voru þó hærri vegna þess að ákveðið var að greiða sér­staka vaxta­nið­ur­greiðslu sem var 0,6 pró­sent af skuldum íbúð­ar­hús­næðis til eigin nota, en þó að hámarki 200 þús­und krónur fyrir ein­stak­linga og 300 þús­und fyrir hjón eða sam­búð­ar­fólk. Þetta var gert vegna sér­stakra aðstæðna í kjöl­far hruns­ins. Hin sér­staka vaxta­nið­ur­greiðsla var ekki tekju­tengd heldur eign­ar­tengd. Hún byrj­aði að skerð­ast við nettó­eign upp á tíu millj­ónir króna og féll niður þegar nettó­eign náði 20 millj­ónum króna hjá ein­stak­lingum, eða skert­ist við 15 millj­óna króna eign og féll niður við 30 millj­ónir króna hjá hjónum og sam­búð­ar­fólki.

Vegna áranna 2011 og 2012 voru greiddar út almennar vaxta­bætur upp á 8,6-8,7 millj­arða króna árlega og 45-46 þús­und fjöl­skyldur fengu slíkar bætur. Vegna árs­ins 2013 voru almennar vaxta­bætur um átta millj­arðar króna og þiggj­endur þeirra tæp­lega 42 þús­und fjöl­skyldur. Það vor var skipt um rík­is­stjórn í land­inu og við tók stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks.

Vegna árs­ins 2014 voru greiddar úr vaxta­bætur upp á sjö millj­arða króna til 38 þús­und fjöl­skyldna. Ári síðar voru almennar vaxta­bætur 5,2 millj­arðar króna og þiggj­endur þeirra 29.170 fjöl­skyldur. Þeim fækk­aði um heil 21,3 pró­sent milli áranna 2014 og 2015. Í fyrra héldu vaxta­bætur áfram að lækka og voru 4,3 millj­arðar alls. Þiggj­endur þeirra voru 26.107 tals­ins, eða 12,1 pró­sent færri en vegna árs­ins 2015. Vegna árs­ins 2016 voru greiddir út 4,3 millj­arðar króna til 26.107 fjöl­skyldna.

Sam­an­dregið þá hefur sú krónu­upp­hæð sem greidd hefur verið í vaxta­bætur dreg­ist saman um 7,7 millj­arða króna frá árinu 2010. Útgreiddar bætur voru tæp­lega þrisvar sinnum hærri þá en í fyrra. Á sama tíma hefur þiggj­endum vaxta­bóta fækkað gríð­ar­lega, eða um 30 þús­und. Nú fá rúm­lega helm­ingi færri fjöl­skyldur almennar vaxta­bætur en vegna árs­ins 2010.

Húsnæðisverð hækkað um 90 prósent

Ástæðan fyrir þessu er ein­föld: gríð­ar­leg hækkun á hús­næð­is­verði sam­hliða hags­felldum efna­hags­að­stæðum. Frá því í des­em­ber 2010 hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á öllu hús­næði, hækkað um 90 pró­sent. Hækk­unin hefur verið drifin áfram af skorti á fram­boði, sem hefur verið miklu minna en eft­ir­spurn. Sam­hliða hafa efna­hags­að­stæður batnað og kaup­máttur auk­ist og geta íbúa til að kaupa sér hús­næði þar af leið­andi meiri.

Við þetta hefur eigið fé lands­manna auk­ist mjög mikið. Nettó­eign heim­ila, skil­greind sem heild­ar­eignir að frá­dregnum heild­ar­skuldum, jókst til að mynda um 13,4 pró­sent á árinu 2016 og nam sam­tals 3.194 millj­örðum króna. Frá árinu 2012 hefur sú nettó­eign auk­ist um 1.368 millj­arða króna í krónum talið. Sú eign hefur ann­ars vegar lent hjá fjár­magns­eig­endum á Íslandi, sem er nokkur þús­und rík­ustu fjöl­skyldur lands­ins, og hins vegar hjá eig­endum fast­eigna vegna hækk­unar á hús­næð­is­verði.

Eigið fé heim­ila lands­ins í fast­eignum þeirra sam­svarar nú 67 pró­sent af verð­mæti þeirra. Árið 2011 var eigið fé lands­manna í fast­eignum þeirra 55 pró­sent.

Við blasir þó að þeir sem losa um þennan ávinn­ing, aukið eigið fé í hús­næði, þurfa all­flestir að end­ur­fjár­festa hann á mark­aði sem tekur fullt til­lit til þeirra hækk­ana sem orðið hafa hús­næð­is­mark­aði, ætli þeir sér áfram að hafa þak yfir höf­uðið. Við slíkar aðstæður veitir hið aukna fé fyrst og fremst tæki­færi til að auka útborgun í dýr­ari eign, en skilur ekki mikið eftir á milli hand­anna. Und­an­tekn­ing­arnar eru fyrst og fremst þeir hús­næð­is­eig­endur sem flytj­ast erlendis og kaupa aftur á mark­aði sem hefur ekki hækkað jafn mikið og sá íslenski, þeir sem kaupa sér hús­næði á þeim land­svæðum inn­an­lands sem hafa ekki hækkað jafn mikið eða þeir sem erfa hús­næði og selja.

Skerðingarmörkin ekki fylgt verðlagi

Ástæður þess að vaxta­bætur skerð­ast jafn mikið og raun ber vitni, og að sífellt færri fá þær, er sú að réttur til vaxta­bóta byrja að skerð­ast ef eignir að frá­dregnum skuldum fara yfir ákveðin krónu­tölu­mörk. Frá 2010 til 2015 hélst sú krónu­tala óbreytt. Árið 2010 byrj­uðu vaxta­bætur að skerð­ast þegar eignir að frá­dregnum skuldum ein­hleyp­inga urðu fjórar millj­ónir króna og hjá hjónum eða sam­búð­ar­fólki þegar eignin varð 6,5 millj­ónir króna. Réttur til vaxta­bóta féll niður þegar nettó­eign ein­hleyp­inga varð 6,4 millj­ónir króna og þegar eign hjóna eða sam­búð­ar­fólks varð 10,4 millj­ónir króna. Vert er að taka fram að á þessum tíma voru líka greiddar út sér­stakar vaxta­bætur í tvö ár sem var 0,6 pró­sent af skuldum vegna íbúð­ar­hús­næðis en með hámarks­þaki upp 200 þús­und fyrir ein­stak­linga og 300 þús­und fyrir sam­búð­ar­fólk. Þetta var gert vegna aðstæðna í kjöl­far hruns­ins.

Reykjavík fær nú 12,1 milljarð króna í fasteignagjöld á ári, en fékk 18,2 milljarð króna árið 2010. Dagur B. Eggertsson er borgarstjóri Reykjavíkur.
Reykja­vík fær nú 12,1 millj­arð króna í fast­eigna­gjöld á ári, en fékk 18,2 millj­arð króna árið 2010. Dagur B. Egg­erts­son er borg­ar­stjóri Reykja­víkur.

Þegar vaxta­bætur voru ákvarð­aðar í fyrra vegna árs­ins 2015 voru skerð­ingar- og nið­ur­fell­ing­ar­mörk vaxta­bóta enn sama tala, þrátt fyrir að vísi­tala neyslu­verðs hafi t.d. hækkað um 18 pró­sent á því tíma­bili, m.a. vegna áhrifa frá hærra hús­næð­is­verði. Með öðrum orðum fylgdu skerð­ingar- og nið­ur­fell­ing­ar­mörkin ekki verð­lagi.

Skerð­ingar- og nið­ur­fell­ing­ar­mörkin voru hækkuð þegar álagn­ing vegna árs­ins 2016 var ákveðin, um 12,3-12,5 pró­sent. Það er fyrsta hækkun á þeim síðan á árinu 2011, þegar álagn­ing vegna árs­ins á undan var ákveðin. Nú byrja vaxta­bætur að skerð­ast við 4,5 millj­óna króna eign hjá ein­hleypum og 7,3 millj­óna króna eign hjá hjónum og sam­búð­ar­fólki. Þær falla niður við 7,2 millj­óna króna eign hjá ein­hleypum og tæp­lega 11,7 millj­óna króna eign hjá hjónum og sam­búð­ar­fólki. Hámarks­greiðslur vaxta­bóta hafa auk þess hald­ist þær sömu frá árinu 2011. Ein­hleyp­ingur getur fengið 400 þús­und krónum, ein­stætt for­eldri allt að 500 þús­und krónum og hjón og sam­búð­ar­fólk allt að 600 þús­und krónum.

Borgum hærri skatta vegna verðhækkana

Á sama tíma og vaxta­bætur hafa dreg­ist saman mjög hratt vegna hækk­unar á hús­næð­is­verði og skorts á breyt­ingum á skerð­ingar- og nið­ur­fell­ing­ar­mörkum, hafa fast­eigna­gjöld sem hús­næð­is­eig­endur þurfa að greiða til sveit­ar­fé­laga hækkað gríð­ar­lega. Sú hækkun er ein­vörð­ungu vegna þess að hús­næð­is­verð hefur hækkað mjög mikið á örfáum árum.

Kjarninn greindi frá því í vik­unni að inn­heimt fast­eigna­gjöld í Reykja­vík hafi auk­ist um 50 pró­sent frá árinu 2010. Vegna þess árs inn­heimti Reykja­vík­ur­borg tæp­lega 12,1 millj­arð króna í fast­eigna­gjöld. Áætlað er að borgin inn­heimti 18,2 millj­arða króna í fast­eigna­gjöld vegna árs­ins 2017. Munurinn er því 6,1 millj­arður króna. Í svörum frá Reykja­vík­ur­borg við fyr­ir­spurn Kjarnans kom einnig fram að inn­heimta fast­eigna­gjalda muni skila 2,6 millj­arði króna meira í borg­ar­sjóð vegna árs­ins 2017 en hún gerði árið 2016. Það er tekju­aukn­ing upp á 16,6 pró­sent milli ára. Gjöldin hafa ekk­ert verið lækkuð á því tíma­bili sem hús­næð­is­verð hefur rokið upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár