Samherji hagnaðist um 13,9 milljarða í fyrra

Afkoma Samherja hefur verið afar góð und­an­farin ár. Heild­ar­tekjur í fyrra námu 84 millj­örðum króna.

Hagnaður Samherja rekstr­ar­árið 2015 var 13,9 millj­arðar króna. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt hefur verið á vef Samherja. Samtals greiddi Samherji 4,3 millj­arða króna til opin­berra aðila á Íslandi vegna rekst­urs árs­ins 2015. Tekju­skattur starfs­manna nam að auki 2,2 millj­örðum króna.

Heild­ar­tekjur í fyrra námu 84 millj­örðum króna, sem gerir fyr­ir­tækið að lang­sam­lega stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins.

Rúmur helm­ingur af starf­semi Samherja sam­stæð­unnar er erlendis. Samherji og dótt­ur­fé­lög eru með rekstur í 12 löndum og sam­stæðan er gerð upp í átta myntum, segir í til­kynn­ingu. Skuld­bind­ingar vegna fjár­fest­inga sem stofnað var til árið 2015 nema um 30 millj­örðum. „Rekstr­ar­tekjur sam­stæðu Samherja voru tæpir 84 millj­arðar króna árið 2015. Hagnaður fyrir afskriftir og fjár­magnsliði nam 19,9 millj­örðum króna, sam­an­borið við 16,4 millj­arða árið á undan. Afkoma af reglu­legri starf­semi árs­ins 2015 var betri en árið á undan sem skýrist af góðri afkomu erlendrar starf­semi. Tekjur juk­ust á flestum sviðum, nettó fjár­magns­gjöld án geng­is­munar voru mun lægri vegna minni skuld­setn­ingar en á móti kom að geng­is­munur var óhag­stæð­ari. Hagnaður fyrir tekju­skatt nam 17,4 millj­örðum og að teknu til­liti til tekju­skatts var hagn­aður árs­ins,“ segir í til­kynn­ingu Samherja.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og einn stærsti eig­andi, segir að rekst­ur­inn hafi gengið vel, og að efna­hag­ur­inn sé traustur. Hann segir að staðan sé mis­jöfn á helstu mörk­uðum. „Fyr­ir­huguð útganga Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu mun hins vegar hafa nei­kvæð áhrif á afkomu okkar, að minnsta kosti til skamms tíma á meðan pundið er veikt. Stór hluti þorskaf­urða félags­ins er seldur í Bret­landi. Staða upp­sjáv­ar­mark­aða hefur verið mjög óviss vegna inn­flutn­ings­banns Rússa á íslenskar afurðir en einnig er ástandið ótraust bæði í Úkraínu og Nígeríu, sem eru mik­il­vægir mark­aðir okkar fyrir upp­sjáv­ar­af­urðir,“ segir Þor­steinn Már.

Lagt er til að hlut­hafar Samherja, þar sem stærstir eru frænd­urnir Þor­steinn Már Bald­vins­son og Kristján Vil­helms­son, fái 1,4 millj­arða arð­greiðslu vegna árs­ins í fyrra. Það nemur um tíu pró­sent af hagn­aði árs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár