Fylgi Miðflokks hærra en Vinstri grænna

Fylgi Mið­flokks­ins eykst veru­lega á milli mán­aða og mælist nú 14,4 pró­sent. Fylgi flokks­ins mælist nú hærra en bæði Vinstri grænna og Sam­fylk­ing­ar­innar.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur 19 pró­senta fylgis sem er þremur pró­sentu­stigum minna en við mæl­ingu júní­mán­aðar. Þó er það mesta fylgi allra stjórn­mála­flokka á Alþingi. Píratar fylgja þar fast á eftir með 14 pró­senta fylgi sem er 0,5 pró­sentu­stiga aukn­ing frá síð­ustu könnun. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR.

Fylgi Mið­flokks­ins eykst veru­lega á milli mæl­inga og fer úr 10,6 pró­sentum í 14,4 pró­sent. Sam­fylk­ing nýtur 13,5 pró­senta fylgis og fer úr 14,4 pró­sentum frá síð­ustu könnun. Vinstri grænir hafa minna fylgi heldur en allir fyrr­nefndir flokkar og mælist fylgi þeirra nú 10,3 pró­sent en var áður 11,3 pró­sent.

Fylgi Við­reisnar eykst á milli kann­ana og stendur nú í 9,7 pró­sentum og fer úr 9,5 pró­sentum í síð­ustu könnun. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mælist 8,4 pró­sent sem er aukn­ing frá fyrri könnun þegar fylgið mæld­ist 7,7 pró­sent.

Fylgi Flokks fólks­ins mæld­ist nú 4,8 pró­sent og fer úr 4,2 pró­sentum á milli kann­ana. Fylgi Flokks fólks­ins er 0,5 pró­sentu­stigum hærra en Sós­í­alista­flokks Íslands sem stendur í 4,3 pró­sentum en var 4,4 pró­sent í síð­ustu könnun.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mæld­ist nú 40,9 pró­sent sam­an­borið við 40,2 pró­sent í könnun júní­mán­aðar. Könnunin var fram­kvæmd 4. til 17. júlí 2019 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 2031 ein­stak­lingur, 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár