Boris Johnson lagður inn á spítala

Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands hefur verið lagður inn á spít­ala í London til skoð­unar, en hann hefur verið með „þrá­lát ein­kenni“ COVID-19 sýk­ingar allt frá því að hann greind­ist með veiruna fyrir tíu dögum síðan.

Boris Johnson var í kvöld lagður inn á spítala í London.
Boris Johnson var í kvöld lagður inn á spít­ala í London. Mynd: EPA

Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands hefur verið lagður inn á spít­ala í London til skoð­unar. Hann hefur verið með „þrá­lát ein­kenni“ COVID-19 sýk­ingar, þar á meðal háan hita, allt frá því hann greind­ist með veiruna fyrir tíu dögum síðan.

Samkvæmt frétt BBC, þar sem vitnað er til orða tals­konu for­sæt­is­ráð­herr­ans, var Johnson lagður inn að lækn­is­ráði og er inn­lögn hans sögð var­úð­ar­ráð­stöfun.

Johnson, sem er 55 ára gam­all, mun halda áfram að leiða rík­is­stjórn­ina frá degi til dags þrátt fyrir að leggj­ast inn á spít­ala. Hann hefur verið í sótt­kví heima hjá sér á Downing-stræti frá því að hann greind­ist með kór­ónu­veirusmit.

„For­sæt­is­ráð­herr­ann þakkar heil­brigð­is­starfs­fólki fyrir þeirra ótrú­legu elju og brýnir fyrir almenn­ingi að halda áfram að fara eftir til­mælum rík­is­stjórn­ar­innar um að halda kyrru fyrir heima, verja heil­brigð­is­kerfið og bjarga manns­lífum,“ segir tals­kona for­sæt­is­ráð­herr­ans.

Á vef Guardian segir að blaðið hafi í lið­inni viku fengið upp­lýs­ingar um að líðan for­sæt­is­ráð­herr­ans hefði hrakað mjög og að læknar sem hefðu með­höndlað hann hefðu haft áhyggjur af öndun hans.

Á þeim tíma­punkti, sam­kvæmt frétt Guardian, þvertóku tals­menn for­sæt­is­ráð­herr­ans þó fyrir að heilsa Johnson væri orðin veru­lega verri og sögðu að engar áætl­anir væru uppi um að hann legð­ist inn á spít­ala.

Drottningin ávarpaði þjóðina

Fyrr í kvöld ávarp­aði Elísabet Breta­drottn­ing þjóð­ina í sjón­varpi. Hún sagði að sú áskorun sem Bretland stæði frammi fyrir nú væri ólík öðrum sem landið hefði tek­ist á við, en einnig að hún væri þess full­viss að ríki heims myndu í sam­vinnu ná árangri í bar­átt­unni við vágest­inn.

„Við ættum að sækja huggun í það að þó frek­ari raunir séu framundan, munu betri dagar brátt blasa við, við munum brátt vera með vinum á ný, við munum brátt vera með fjöl­skyldum okkar á ný, við munum hitt­ast aftur,“ sagði drottn­ingin, í inn­blásnu ávarpi sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár