Kirkjur og vindmyllur

Gamalt ákvæði í dönskum skipu­lags­lögum veldur nú fjaðrafoki í tengslum við áform stjórn­valda varð­andi raf­orku­fram­leiðslu með vind­myllum. Margir telja laga­á­kvæðið barn síns tíma en kirkj­unnar menn eru ekki sama sinnis.

Þótt flestir vilji gjarna græna orku, eins og mylluorkan er kölluð, eiga myllurnar ekki „að vera hjá mér“.
Þótt flestir vilji gjarna græna orku, eins og myllu­orkan er kölluð, eiga myll­urnar ekki „að vera hjá mér“. Mynd: EPA

Fyrir nokkrum dögum kynnti danska rík­is­stjórnin nýja áætlun um orku­mál. Samkvæmt henni á raf­orku­fram­leiðsla frá vind­myllum og sól­ar­raf­hlöðum að fjór­fald­ast frá því sem nú er fyrir árið 2030. Þessi áætlun „den grønne omstill­ing“ eins og Danir kalla það hefur verið lengi í und­ir­bún­ingi. Eins og margar aðrar Evr­ópu­þjóðir kaupa Danir gas af Rússum og Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra hefur að und­an­förnu marglýst yfir vilja danskra stjórn­valda til að binda enda á þau við­skipti sem allra fyrst. Slíkt er þó hæg­ara sagt en gert, mörg lönd í Evrópu, þar á meðal Danir, eru mjög háð rússagas­inu, eins og það er kallað. Rússar eru sömu­leiðis háðir tekj­unum, nær helm­ingur útflutn­ings­tekna þeirra kemur frá gasvið­skiptum. Megnið af rússagas­inu hefur farið um um gasleiðsl­una Nordstr­eam 1 sem liggur frá Vyborg í Rúss­landi, um Finn­lands­flóa og Eysts­ra­salt, til Lubmin við Greifswald í Þýska­landi, 1200 kíló­metra leið. Nordstr­eam 1 leiðslan ann­aði vart gasþörf og und­ir­bún­ingur að lagn­ingu ann­arrar leiðslu, Nordstr­eam 2, hófst árið 2011, sama ár og Nordstr­eam 1 var tekin í notkun, leiðsl­urnar tvær liggja sam­síða. Áður en Nordstr­eam 1 var tekin í notkun fór megnið af rússagas­inu um Úkraínu, og stjórn­völd þar gátu hótað að loka, eða jafn­vel lokað, fyrir gas­streymið ef Rússar hefðu í hót­unum. Rússar lögðu því mikla áherslu á Nordstr­eam leiðsl­urnar en þær liggja hvergi um úkra­ínskt land­svæði. Rúss­neska gas­fyr­ir­tækið Gazprom er aðal­eig­andi Nordstr­eam 1 og dótt­ur­fyr­ir­tæki þess er eig­andi Nordstr­eam 2.

Hart deilt um Nordstream 2

Eins og áður sagði hófst und­ir­bún­ingur að lagn­ingu Nordstr­eam 2 leiðsl­unnar árið 2011. Ekki voru allir á eitt sáttir um þá fram­kvæmd, ýmsir töldu það slæman kost að vera að stórum hluta háðir við­skiptum við Rússa varð­andi kaup á gasi. Banda­rísk stjórn­völd voru mjög andsnúin lagn­ingu Nordstr­eam 2 en fáir eða engir hafa þó lík­lega séð fyrir atburða­rás síð­ustu vikna, sem ekki sér fyrir end­ann á. Nordstr­eam 2 leiðslan var til­búin til notk­unar í sept­em­ber á síð­asta ári en Þjóð­verjar voru mjög tregir til að und­ir­rita og stað­festa rekstr­ar­leyfið. Atburðir síð­ustu vikna verða ekki til að flýta fyrir þeirri und­ir­ritun og óljóst hvort, og þá hvenær gasið fer að streyma um Nordstr­eam 2 leiðsl­una. Innrás Rússa í Úkrínu hefur orðið til þess að mörg Evr­ópu­lönd vilja binda enda á við­skipti við Rússa og leita nú allra leiða til að ná því mark­miði.

Sólarorka og vindmyllur

Þegar danska rík­is­stjórnin kynnti orku­fram­leiðslu­á­ætl­un­ina í síð­ustu viku var Dan Jørg­en­sen orku­mála­ráð­herra spurður hvernig stjórnin sæi fyrir sér að hægt yrði að fjór­falda orku­fram­leiðsl­una á næstu átta árum. Ráð­herr­ann nefndi að til dæmis væri hægt að tífalda sól­ar­orku­fram­leiðslu frá því sem nú er. Orku­fram­leiðslu með vind­myllum, sem í dag er miklu meiri en með sól­ar­orku, mætti tvö­falda fram til 2030 og enn meira á næstu ára­tugum. Gert er ráð fyrir að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda minnki um 70% fram til 2030.

Í orku­á­ætlun sem sam­þykkt var á danska þing­inu árið 2018 var gert ráð fyrir þremur stórum vind­myllu­svæðum á hafi úti. Þar er einkum horft til svæða úti fyrir vest­ur­strönd Jótlands. Síð­ast­lið­inn mið­viku­dag (20. apríl) til­kynnti þýska fyr­ir­tækið RWE að ákveðið hefði verið að fyrsta, og stærsta, vind­myllu­svæðið yrði 22 kíló­metrum frá landi úti fyrir smá­bænum Thor­sminde. Myll­urnar á þessu svæði eiga að geta fram­leitt orku sem sam­svarar notkun milljón heim­ila. Thor, eins og svæðið er nefnt, á að vera komið í fulla notkun árið 2027.

Þegar fyr­ir­hugað er að ráð­ast í stór­fram­kvæmdir af þessu tagi er í mörg horn að líta og iðu­lega verða miklar deilur vegna fyr­ir­hug­aðrar stað­setn­ingar. Þótt flestir vilji gjarna græna orku, eins og myllu­orkan er kölluð, eiga myll­urnar ekki „að vera hjá mér“.

Í augum margra eru vind­myllur ekki augna­yndi og mörgum þykir hvin­ur­inn sem frá þeim stafar hvim­leiður og rann­sóknir hafa sýnt að hann getur verið heilsu­spill­andi. Til­teknar reglur gilda því um stað­setn­ingu vind­mylla. Um myllur sem telj­ast stærri en til heim­il­is­nota gildir almennt sú regla að fjar­lægð myllu frá næsta byggða bóli verður að vera fjór­föld mesta hæð myll­unnar, ef myllu­spaði nær hæst 50 metra upp í loftið verður myllan að vera í 200 metra fjar­lægð frá því húsi sem næst stendur. En engin regla er án und­an­tekn­inga og þannig er það líka með vind­myllur og fjar­lægð frá húsum, nánar til­tekið guðs­húsum.

Kirkjur og vindmyllur

Í Danmörku eru um það bil 2350 kirkjur. Margar þeirra komnar mjög til ára sinna, um 70% þeirra byggðar fyrir miðja 16. öld. Þegar ferð­ast er um sveitir Dan­merkur blasa kirkjur víða við, standa hátt og iðu­lega tals­vert frá öðrum húsum, margar keim­líkar í útliti, hvít­kalk­aðar með rauð­brúnum steini á bröttu þaki. Kirkj­urnar eru eins konar kenni­leiti og um leið átta­viti, turn­inn vísar ætíð í vestur.

Skipulagslögin

Í dönskum skipu­lags­lögum er sér­á­kvæði um bygg­ingar og mann­virki í nálægð kirkna. Þar segir að við­kom­andi sókn geti komið í veg fyrir að mann­virki, til dæmis hús, brýr og vind­myllur rísi nálægt kirkju. Til­gang­ur­inn er að tryggja sér­stöðu kirkn­anna sem hluta dansks menn­ing­ar­arfs, eins og segir í skýr­ingum með lög­unum.

Víða í Danmörku háttar þannig til að í nágrenni kirkna eru óbyggð svæði sem gætu hentað vel fyrir vind­myllur. En skipu­lags­lögin, í núver­andi mynd, setja slíkum fyr­ir­ætl­unum skorður. Þar segir nefni­lega að fjar­lægð mann­virkis (til dæmis myllu) frá kirkju verði að vera 28 sinnum hæð þess. 100 metra há vind­mylla yrði, sam­kvæmt þessu að vera í 2,8 kíló­metra fjar­lægð frá kirkj­unni.

Gundersted og vindmyllurnar

Bæj­ar­nafnið Gund­er­sted hljómar ekki sér­lega kunn­ug­lega í flestra eyrum. Gund­er­sted er lítið þorp norð­ar­lega á Jótlandi, vestan við Álaborg. Íbúarnir eru rúm­lega þrjú hund­ruð. Í Gund­er­sted hefur verið kirkja frá 12. öld, hún hefur verið end­ur­byggð nokkrum sinnum, en ætíð á sama stað, og stendur hærra en aðrar bygg­ingar í þessu litla þorpi. Það er rúmt um kirkj­una, engin hús eða önnur mann­virki skyggja á hana.

Nokkuð frá kirkj­unni, nánar til­tekið 1,5 km, standa sex vind­myllur, þær hafa verið þarna um ára­bil og telj­ast lágar á myllu­mæli­kvarða. En nú eru blikur á lofti, sveit­ar­fé­lagið vill fjar­lægja gömlu myll­urnar og setja á sama stað sex nýjar myllur, 150 metra háar. Þessum fyr­ir­ætl­unum mót­mælti sókn­ar­nefndin í Gund­er­sted og vís­aði í sér­á­kvæðið áður­nefnda um fjar­lægð vind­mylla frá guðs­húsum. Nýju myll­urnar sem sveit­ar­fé­lagið vill setja upp eiga að skaga 150 metra í átt til him­ins og sam­kvæmt lög­unum ættu myll­urnar því að vera í að minnsta kosti 4,2 kíló­metra fjar­lægð frá kirkj­unni. Gömlu myll­urnar standa mun nær og sókn­ar­nefndin vill alls ekki fall­ast á að nýju myll­urnar rísi á sama stað. Þessi neitun sókn­ar­nefnd­ar­innar setti myllu­á­formin í upp­nám. Borg­ar­stjór­inn í Vest­himmer­land (sem Gund­er­sted er hluti af) sagði fyrir nokkrum dögum í við­tali við danska útvarpið, DR, að lögin væru alveg skýr. „Þessar myllur verða ekki reistar, nema sókn­ar­nefndin skipti um skoðun eða ráð­herra víki frá lög­unum og heim­ili myll­urnar. En nú mætti kannski spyrja hvað sé því til fyr­ir­stöðu að reisa myll­urnar 4,2 kíló­metra frá kirkj­unni. Því er til að svara að skammt frá kirkj­unni í Gund­er­sted eru tvær aðrar kirkjur og fjar­lægðin milli þeirra og myllu­stæð­is­ins fyr­ir­hug­aða nær ekki 4,2 kíló­metrum.

Ráðherra og þing vilja breyta lögum

Fjar­lægð­ar­málið, eins og danskir þing­menn kalla það, hefur komið til kasta þings­ins, Fol­ket­inget. Þessa dag­ana er þar til umfjöll­unar frum­varp um breyt­ingar á skipu­lags­lög­unum. Ráðherra mála­flokks­ins, Kaare Dybvad Bek, er fylgj­andi breyt­ing­unni sem frum­varpið gerir ráð fyrir. Stærsta breyt­ingin er sú að það verði ekki í höndum sókn­ar­nefndar að stöðva eða koma í veg fyrir fram­kvæmdir eins og til dæmis myll­urnar í Gund­er­sted. Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir að úrskurða­rétt­ur­inn í slíkum málum verði fram­vegis hjá kirkju­mála­ráðu­neyt­inu. „Með því móti verði tryggt að allir sitji við sama borð, hvort sem er á Norður-Jótlandi eða Lálandi“ sagði ráð­herr­ann í við­tali.

Þess má að lokum geta að ráð­herr­ann hefur ákveðið að ógilda myllu­bann sókn­ar­nefnd­ar­innar í Gund­er­sted og því geta fram­kvæmd­irnar við nýju myll­urnar sex haldið áfram, eftir átta mán­aða hlé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár