Albertína mun ekki gefa kost á sér fyrir næstu kosningar

Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, mun ekki gefa kost á sér fyrir næstu alþing­is­kosn­ingar. Nýtt verk­efni bíður hennar nú, að því er fram kemur á Facebook-síðu hennar.

Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, hefur tekið þá ákvörðun að gefa ekki kost á sér fyrir næstu alþing­is­kosn­ingar. Frá þessu greinir hún á Facebook í kvöld.

Segir hún það hafa verið mikil for­rétt­indi að sitja á þingi fyrir Sam­fylk­ing­una þetta kjör­tíma­bil sem nú er að renna sitt skeið. Síðustu vikur og mán­uði hafi hún verið að velta fyrir sér fram­hald­inu.

„Ég hafði hug á að halda áfram en nú er ég í þeirri stöðu að líf mitt og okkar hjón­anna mun breyt­ast veru­lega í vor en við eigum von á okkar fyrsta barni,“ skrifar hún.

Tekur Albertína fram að þing­störfin séu að mörgu leyti virki­lega gef­andi og skemmti­leg og hafi henni þótt ómet­an­legt að vera full­trúi Norð­aust­ur­kjör­dæmis á þingi. Raun­veru­leik­inn sé samt sem áður sá að starfið krefj­ist mik­ils og sé ekk­ert sér­stak­lega fjöl­skyldu­vænt. Þá sakni hún þess alltaf að geta ekki verið meira á Akureyri.

„Eftir mikla umhugsun hef ég því kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að mig langar að veita nýja verk­efn­inu alla mína athygli næstu mán­uð­ina og hef ég því tekið þá ákvörðun að gefa ekki kost á mér til að taka sæti ofar­lega á lista Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir næstu Alþing­is­kosn­ingar.

Þetta er ekki auð­veld ákvörðun en ég held hún sé sú eina rétta fyrir mig og fjöl­skyld­una á þessum tíma. Ég óska auð­vitað félögum mínum í Sam­fylk­ing­unni alls hins besta og mun áfram leggja mitt að mörkum til að Sam­fylk­ingin nái góðum árangri í kosn­ing­unum í haust, enda trúi ég því að jafn­að­ar­stefnan sé lyk­ill­inn að þeim sam­fé­lags­legu áskor­unum sem við stöndum frammi fyrir í dag,“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár