Kaupfélag Skagfirðinga hefur hagnast um 18 milljarða króna á fjórum árum

Eigið fé Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, sam­vinnu­fé­lags í eigu 1.465 félags­manna með höf­uð­stöðvar á Sauð­ár­króki, hefur þre­fald­ast frá árinu 2010 og er 49,5 millj­arðar. Eignir félags­ins eru metnar á tæp­lega 80 millj­arða. Verð­mætasta bók­færða eignin er kvóti.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hefur hagn­ast um 18,3 millj­arða króna á síð­ustu fjórum árum. Í fyrra nam hagn­aður félags­ins 5,4 millj­örðum króna sem er mesti hagn­aður þess frá upp­hafi í krónum talið. Hann bætt­ist við þriggja millj­arða króna hagnað árið 2020, 4,8 millj­arða króna hagnað árið 2019 og 5,1 millj­arða króna hagnað árið 2018.

Und­ir­liggj­andi rekstur Kaup­fé­lags­ins hefur líka verið að batna mikið. Rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta var 6,1 millj­arður króna á árinu 2021 og jókst um 1,6 millj­arð króna milli ára. Hann hefur aldrei verið meiri.

Fyrir vikið var eigið fé Kaup­fé­lags Skag­firð­inga orðið 49,5 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót, að með­töldu hlut­deild minni­hluta. Til sam­an­burðar var eigið fé þess 26,4 millj­arðar króna í lok árs 2015 og 15,5 millj­arðar króna í lok árs 2010. Það hefur því rúm­lega þre­fald­ast á síð­ust ell­efu árum og næstum tvö­fald­ast frá 2015.

Þetta má lesa út úr árs­reikn­ingi Kaup­fé­lags­ins sem birtur var nýverið.

Samvinnufélag með tæplega 1.500 félagsmenn

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, sam­vinnu­fé­lag með 1.465 félags­menn, er risa­fyr­ir­tæki á íslenskan mæli­kvarða. Þórólfur Gísla­son, kaup­fé­lags­stjóri, hefur leitt félagið um ára­bil sem for­stjóri en hann hefur setið í því sæti frá árinu 1988. Starf­semi þess er að mestu leyti í land­bún­aði og sjáv­ar­út­vegi. Sam­vinnu­fé­lög geta ekki greitt út arð með sama hætti og hluta­fé­lög. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga greiddi til að mynda út 80 millj­ónir króna í arð í fyrra vegna þriggja millj­arða króna hagn­aðar sem féll til árið 2020. Vegna þess­ara tak­mark­ana á arð­greiðslum vex eigið féð mikið ár frá ári sam­hliða bættri afkomu.

Á meðal við­skipta Kaup­fé­lags­ins sem hafa vakið veru­lega athygli á und­an­förnum árum voru kaup dótt­ur­fé­lags­ins FISK Seafood, sjáv­ar­út­vegs­arms Kaup­fé­lags­ins, á hlut í Brimi þann 18. ágúst 2019.

Strax í kjöl­far þeirra við­­skipta bætti FISK Seafood við sig um tvö pró­­sent hluta­fjár til við­­bótar og eign­að­ist þannig alls 10,18 pró­­sent hlut fyrir ríf­­lega 6,6 millj­­arða króna.

Þann 8. sept­­em­ber sama seldi FISK Seafood Útgerð­­ar­­fé­lagi Reykja­vík­­­ur, sem nátengt er eign­­ar­haldi Brims, þessa sömu hluti í félag­inu fyrir tæp­­lega átta millj­­arða króna. Hagn­að­­ur­inn var um 1,4 millj­­arðar króna á örfáum vik­um.

Risastór leikandi í sjávarútvegi

Verð­mætasta bók­færða eign Kaup­fé­lags Skag­firð­inga eru afla­heim­ildir, en virði þeirra er bók­fært á 25,5 millj­arða króna í árs­reikn­ingi síð­asta árs. Eign­ar­hlutir í hlut­deild­ar­fé­lögum eru 12,6 millj­arða króna virði og eign­ar­hlutir í öðrum félögum voru metnir á 5,8 millj­arða króna, en heild­ar­eignir félags­ins voru bók­færðar á 79,7 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Eig­in­fjár­hlut­fall Kaup­fé­lags Skag­firð­inga er því 62 pró­sent.

[adspot]Kaup­fé­lag Skag­firð­inga á líka félög á borð við Esju Gæða­fæði og Voga­bæ, auk þess sem að Kaup­fé­lagið er umsvifa­mikið í land­bún­aði. Þorri starf­semi þess fer fram á Sauð­ár­króki.

Nýjasta við­bótin í eigna­safnið er Gunnars Majónes, sem Kaup­fé­lagið keypti í sumar. Kaup­fé­lagið keypti einnig rekstr­ar­fé­lag Metro-ham­borg­ara­stað­anna á árinu 2021.

Samkvæmt síð­asta birta yfir­liti Fiski­stofu um sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi, sem var birt í nóv­em­ber í fyrra, hélt FISK Seafood á 3,4 pró­­­­­­sent heild­­­­­­ar­kvót­ans. FISK á auk þess 32,9 pró­­­­­­sent í Vinnslu­­­­­­stöð­inni í Vest­­­­­­manna­eyjum sem var með sjö pró­­­sent heild­­­­­­ar­afla­hlut­­­­­­deild. Þá á Vinnslu­­­stöðin 48 pró­­­sent hlut í útgerð­­­ar­­­fé­lag­inu Hug­inn í Vest­­­manna­eyj­um, sem hélt á 1,1 pró­­­sent af útgefnum kvóta.

FISK á til við­­­bótar allt hlutafé í Soff­an­­­­­­ías Cecils­­­­­­son, en það fyr­ir­tæki hélt á um 0,17 pró­­­­­­sent kvót­ans. Sam­tals nam heild­­­­­­ar­kvóti þess­­­­­­ara þriggja 11,7 pró­sent­um.

Skiluðu ríkisstyrk

Það vakti umtals­verða athygli í maí 2020, skömmu eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á, þegar til­kynnt var að eitt dótt­ur­fé­laga Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, kjöt­vinnslan Esja Gæða­fæði, hefði ákveðið að end­ur­greiða um 17 millj­ónir króna sem það fékk í stuðn­ing úr rík­is­sjóði eftir að hafa sett starfs­fólk á hina svoköll­uðu hluta­bóta­leið.

Í til­kynn­ingu frá Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga vegna þessa sagði að það myndi veita Esju sér­staka fjár­hags­að­stoð til þess að gera end­ur­greiðsl­una mögu­lega. „Að gefnu til­efni skal tekið fram að kjöt­vinnslan hefur aldrei greitt kaup­fé­lag­inu arð. Vegna umræðu um arð­greiðslur er áréttað að Kaup­fé­lag Skag­firð­inga starfar á grund­velli laga um sam­vinnu­fé­lög. Af þeirri ástæðu hefur það alla tíð, eða í 130 ár, nýtt langstærstan hluta fram­legðar starf­sem­innar til innri upp­bygg­ingar í stað hefð­bund­inna arð­greiðslna hluta­fé­laga til eig­enda sinna.“

Félagið sagð­ist enn fremur ætla að ein­beita sér að því að verja þau rúm­lega þús­und störf sem voru á þessum tíma innan sam­stæðu þess. „Með þess­ari ákvörðun er sú stefna kaup­fé­lags­ins und­ir­strikuð að leita allra leiða til þess að ná því mark­miði innan sam­stæð­unnar án sér­tækrar aðstoðar frá íslenska rík­inu. Þess vegna verður feng­inn rík­is­stuðn­ingur á grund­velli hluta­bót­ar­leiðar end­ur­greidd­ur.“

Borga með Morgunblaðinu svo RÚV leiði ekki skoðanamyndun

Kaup­fé­lagið hefur einnig gefið sig að fjöl­miðla­rekstri á und­an­förnum árum með fjár­fest­ingu í Þórsmörk, eig­anda Árvakurs sem heldur úti Morg­un­blað­inu og tengdum miðlum. Sem stendur eru Íslenskar sjáv­ar­af­urðir, dótt­ur­fé­lag Kaup­fé­lags­ins, stærsti ein­staki eig­andi Þórs­merkur með 19,5 pró­sent eign­ar­hlut. Frá 2019 hefur fjöl­miðla­sam­steyp­unni verið lagðar til alls 600 millj­ónir króna í nýtt hlutafé til að mæta við­var­andi tap­rekstri. Kaup­fé­lagið er sá aðili innan eig­enda­hóps­ins sem hefur lagt til stærstan hlut þeirra fjár­muna.

[links]Þegar nýju eig­end­­­­­urnir tóku við rekstr­inum var Morg­un­­­­­blað­ið, flagg­­­­­skip útgáf­unn­­­­­ar, lesið af rúm­­­­­lega 40 pró­­­­­sent þjóð­­­­­ar­inn­­­­­ar. Í síð­­­­­­­­­ustu birtu mæl­ingu Gallup á lestri prent­miðla var sá lestur kom­inn niður í 17,4 pró­­­­­sent og hefur aldrei mælst lægri. Lestur blaðs­ins hjá 18-49 ára mælist 8,4 pró­­­sent.

Í við­tal­i við Morg­un­­blaðið í apríl 2019 var Þórólfur spurður um það hvað varð til þess Kaup­fé­lagið ákvað að fjár­­­festa í fjöl­miðla­­rekstri. Þar sagði hann: „Við lítum þannig á að það sé mik­il­vægt að til staðar séu vand­aðir fjöl­miðlar sem ekki eru rík­­is­rekn­­ir. Ríkið er fyr­ir­­ferð­­ar­­mikið á þessum mark­aði sem er ekki hollt til lengd­­ar, og í raun mjög umhugs­un­­ar­vert, enda þörfin ekki eins brýn og áður var. Ríkið rak einu sinni dreifi­­kerfi á kart­öfl­um, en er hætt því sem dæmi. Þessi mikli rekstur rík­­is­ins á fjöl­miðlum býður upp á ákveðna hættu. Að fjöl­mið­ill­inn verði ríki í rík­­is­­kerf­inu og leiði skoð­ana­­mynd­un. Við þekkjum það í löndum þar sem ekki er virkt lýð­ræði, að þar eru rík­­is­­fjöl­miðlar mjög fyr­ir­­ferð­­ar­­mikl­­ir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár