Magn blautklúta margfaldast undanfarna daga – Hreinsistöð fráveitu óstarfhæf

Nú rennur óhreinsað skólp í sjó vegna blaut­klúta en stöðva hefur þurft dælur á meðan verið er að hreinsa þær og annan búnað.

Blautklútar í fráveitukerfinu nú um dagana.
Blaut­klútar í frá­veitu­kerf­inu nú um dag­ana. Mynd: Veitur

Hreinsi­stöð frá­veitu við Kletta­garða er nú óstarf­hæf og fer óhreinsað skólp í sjó. Ástæðan er gríð­ar­legt magn af blaut­klútum, til að mynda sótt­hreinsi­klútum, í frá­veitu­kerf­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Veitum.

„Svo virð­ist sem magn slíkra klúta, sem hent er í sal­erni, hafi auk­ist marg­falt und­an­farna daga og hefur það skapað mikið álag á allan búnað hreinsi­stöðva og starfs­fólk,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Nú sé svo komið að stöðva þurfti dælur og verið sé að hreinsa þær og annan búnað stöðv­ar­innar. „Við hvetjum fólk til að nota ekki kló­settin sem rusla­fötur. Blaut­klútar, hvort sem þeir eru not­aðir á and­lit og lík­ama eða til þrifa og sótt­hreins­unar, eiga heima í rusl­inu.“

Skapar mikið álag á allan búnað hreinsistöðva og starfsfólk

[links]Fyr­ir­tækið sá ástæðu til að vekja athygli á mál­inu síð­ast­lið­inn föstu­dag.

„Gríð­ar­legt magn af rusli berst nú í hreinsi­stöðvar frá­veitu Veitna í Kletta­görðum og í Ána­naustum. Svo virð­ist sem magn blaut­klúta, sem hent er í sal­erni, hafi auk­ist marg­falt und­an­farna daga og skapar það mikið álag á allan búnað hreinsi­stöðva og starfs­fólk.

Mikil vinna og kostn­aður felst í því að hreinsa dælur og farga rusl­inu og þegar álag er mikið aukast líkur á bil­unum í bún­aði með til­heyr­andi afleið­ingum,“ stóð í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins fyrir helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár