Aldrei fundist eins margar blautþurrkur við strendur landsins

Samkvæmt taln­ingu Umhverf­is­stofn­unar hefur fjöldi svo­kall­aðra blaut­klúta auk­ist frá taln­ingu síð­ustu ára.

Alls voru tíndir 977 blaut­klútar í fjör­unni í Bakkavík á Sel­tjarn­ar­nesi í síð­ustu viku en aldrei hafa fund­ist eins margir blaut­klútar í einni hreins­un­ar­ferð. Þetta kemur fram í frétt Umhverf­is­stofn­unar í dag.

Til sam­an­burðar voru alls tíndir 753 blaut­klútar árið 2017 og 605 árið 2018.

Í síð­ustu viku fóru starfs­menn Umhverf­is­stofn­unar í fjör­una í Bakkavík á Sel­tjarn­ar­nesi að tína rusl, vegna vökt­un­ar­verk­efnis stofn­un­ar­innar. Vöktunin felur í sér að tína allt rusl á 100 metra kafla, fjórum sinnum á ári. Ruslið er flokkað eftir staðl­aðri aðferða­fræði og eru gögnin notuð til að fylgj­ast með þróun á magni og sam­setn­ingu rusls á ströndum. Í frétt Umhverf­is­stofn­unar kemur fram að fljót­lega hafi orðið áber­andi hversu mikið var af blaut­klútum, sem síðan var stað­fest eftir taln­ingu á rusl­inu eins og áður segir.

[links]Umhverf­is­stofnun ítrekar við til­efnið að kló­settið er ekki rusla­fata en stofn­unin hóf vöktun rusls á ströndum sum­arið 2016, sam­kvæmt aðferða­fræði og leið­bein­ingum frá OSPAR. Vaktað er fyr­ir­fram afmarkað svæði á hverri strönd. Til­gangur vökt­un­ar­innar er að finna upp­runa rusls á ströndum, hvaða flokkar rusls safn­ast mest fyrir, meta magn sem safn­ast fyrir yfir ákveðið tíma­bil og að fjar­lægja ruslið. Með vökt­un­inni upp­fyllir Ísland hluta af aðgerð­ar­á­ætlun OSPAR, um að draga úr skað­semi úrgangs í hafi og á ströndum. OSPAR er samn­ingur um verndun haf­rýmis Norð­austur-Atl­ants­hafs­ins sem Ísland hefur stað­fest.

Blautklútarnir langstærsta vandamálið

Árlega fara um 70 til 80 milljón tonn af skólpi gegnum hreinsi­stöðvar Veitna. Þar af eru um 200 tonn af fitu sem hellt er í nið­ur­föll en áætlað er að um 65 tonn af blaut­þurrkum sé hent í kló­sett á ári, sam­kvæmt frétt RÚV frá því í jan­úar síð­ast­liðnum.

Langstærsta vanda­málið eru blaut­klút­arnir, sem allt of margir henda í kló­settið. Það ger­ist ítrekað að blaut­klútar stífla skólp­hreinsi­dælur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Íris Þór­ar­ins­dóttir, tækni­stjóri frá­veitu hjá Veitum, sagði í sam­tali við RÚV að flestir þessir klútar væru úr fínum plast­trefjum og leyst­ust því alls ekki upp eins og kló­sett­pappír gerir í frá­veitu­kerf­inu.

Blaut­klút­arnir vefj­ast utan um dæl­urnar og bland­ast við fitu og annan úrgang. „Og myndar köggla, og það er þetta sam­bland af blaut­klútum og öðru rusli, og fitu, sem líka kemur mikið í frá­veitu­kerfið en ætti ekki að gera það, sem er að mynda þessa fitu­hlunka,“ sagði Íris.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár