Íslendingar henda fjórfalt meira rusli í klósettið en Svíar

Alþjóð­legi kló­sett­dag­ur­inn er í dag, 19. nóv­em­ber, og er þema árs­ins 2018 sal­ern­is­lausnir í anda nátt­úr­unnar, sam­kvæmt Sam­ein­uðu þjóð­unum.

Ekki er nóg að eiga gott frá­veitu­kerfi, það þarf líka að kunna að umgang­ast það. Aðskota­hlutir eins og blaut­þurrkur, dömu­bindi, mat­ar­olía og feiti geta myndað stíflur í lögnum, dæli­stöðvum og skólp­hreinsi­stöðvum, sem geta leitt til þess að óhreinsað skólp flæðir upp úr kerf­inu með til­heyr­andi óþæg­indum. Talið er að Íslend­ingar hendi fjór­falt meira rusli í kló­settið en Svíar. Þetta kemur fram á Vís­inda­vef Háskóla Íslands

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) og UNICEF telja að 4,5 millj­arður manna búi án öruggs kló­setts og 892 millj­ónir gangi örna sinna á víða­vangi.

Til að vekja athygli á þessum vanda, og styðja við sjötta sjálf­bærn­is­mark­miðið, hafa Sam­ein­uðu þjóð­irnar skil­greint 19. nóv­em­ber sem alþjóð­lega kló­sett­dag­inn. Þema árs­ins 2018 eru sal­ern­is­lausnir í anda nátt­úr­unnar. Með því er átt við þurrkló­sett þar sem hægt er að vinna saur­inn í áburð á tún og nota vot­lendi sem nátt­úru­lega hreinsun á vatni, segir á Vís­inda­vefnum.

Þar kemur jafn­framt fram að áður en ákveðið var að reisa fyrstu frá­veit­una í Reykja­vík 1911 hafi fólk losað koppa og notað vatn í ræsi og skurði ofanjarðar. Lækurinn, sem Lækj­ar­gata í miðbæ Reykja­víkur er nefnd eftir, hafi verið einn slíkur. Lækurinn hafi átt til að stífl­ast og þar sem hann tók líka við regn­vatni og afrennsli af götum, þá hafi komið fyrir að saur­blandað vatn flæddi yfir bakka hans alla leið yfir á Aust­ur­völl. Á þessum tíma hafi margir dáið úr vatns­bornun far­öldrum, eins og tauga­veiki.

[links]Enski lækn­ir­inn John Snow, sem fæddur var árið 1813, var fyrstur til að bera kennsl á tengsl drep­sótta og óhreins drykkj­ar­vatns, sam­kvæmt Vís­inda­vefnum. „Með því að skrá ferðir þeirra sem sýkt­ust af kól­eru í London 1854 komst hann að því að allir hefðu notað vatn úr sama vatns­brunn­inum á Breiða­stræti í Soho-hverf­inu. Þessi upp­götvun mark­aði upp­haf hrein­læt­is­bylt­ing­ar­innar sem gekk út á að leggja aðskild vatns- og frá­veitu­kerfi í hús eins og við þekkjum í hinum vest­ræna heimi í dag. Nú minn­ast menn John Snow og hans fram­lags með sam­tökum sem kennd eru við hann, John Snow Society.

Nú, rúmri einni og hálfri öld eftir upp­götvun John Snows, og rúmri öld eftir bygg­ingu fyrsta hol­ræsis á Íslandi, er langt því frá að allir í heim­inum njóti frá­veitu eins og við gerum á Íslandi,“ segir á vefnum.

Fráveitumál á Íslandi í ólestri

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um frá­veitu­mál á síð­asta ári en sér­fræð­ingar virð­ast flestir vera sam­mála um að frá­veitu­málum og skólp­hreinsun sé ábóta­vant í mörgum sveit­ar­fé­lögum á Íslandi. Þrátt fyrir reglu­gerðir og lög hvernig frá­veitu­málum eigi að vera háttað er pottur brot­inn víða varð­andi þau mál­efni. Eitt brýn­asta mál­ið, tengt mengun vegna frá­rennsl­is, er svo­kallað örplast sem rennur með skólpi og frá­veitu­vatni út í sjó­inn óhindr­að. Fleiri þættir hafa áhrif á mengun og mætti nefna aukna ferða­mennsku, stór­iðju og ofan­vatns­meng­un.

Tryggvi Þórð­ar­son, vatna­vist­fræð­ingur hjá Umhverf­is­stofn­un, sagði í sam­tali við Kjarnann að það væri fremur reglan en und­an­tekn­ingin að þétt­býli á land­inu hefðu ekki upp­fyllt lög og reglu­gerð um frá­veitur og skóp þó að þau hefðu átt að vera búin að því í síð­asta lagi árið 2005 en þá rann út síð­asti frest­ur­inn.

Hann sagði að nauð­syn­legar fram­kvæmdir væru dýrar og til dæmis væri hefð­bundið að veitu­kerfið væri ein­ungis tvö­faldað um leið og verið væri að taka upp ein­hverja göt­una og end­ur­nýja í henni. Hann taldi að miðað við þró­un­ina hingað til myndi lík­leg­ast taka ein­hverja ára­tugi fyrir sveit­ar­fé­lögin að fram­fylgja kröfum laga og reglu­gerðar að fullu.

Kerfið viðkvæmast fyrir skólpmengun

Að sögn Tryggva eru áhrif meng­unar af völdum skólps mis­jöfn eftir því hversu við­kvæmur stað­ur­inn í nátt­úr­unni sem skólpið er leitt út í er. Hann sagði að meng­unin færi líka eftir fjölda íbúa­í­gilda eða svoköll­uðum per­sónu­ein­ingum sem geta verið tals­vert fleiri en íbú­arn­ir. Magn meng­un­ar­efn­anna er metið út frá per­sónu­ein­ingum en ein per­sónu­ein­ing jafn­gildir því sem einn maður lætur frá sér á einum sól­ar­hring. Hann benti á að vegna atvinnu­rekstrar væri oft tvö til þrefalt meira af per­sónu­ein­ingum en íbú­um.

Einnig eru bakt­er­íur í skólp­inu sem hafa ekki bein áhrif á vist­kerfið en segja aðal­lega til um smit­hættu. Tryggvi sagði að kröfur væru um að saur­bakt­er­íur þyrftu að vera undir ákveðnum mörkum í vatni eftir los­un. Kerfið væri við­kvæm­ast fyrir mengun af völdum nær­ing­ar­efna, þ.e. áburð­ar­efna eða líf­ræns efn­is. Ein helsta meng­unin af völdum þess­ara efna er skólp­mengun og taldi hann að þörf væri á úrbótum í þeim mál­u­m.

Ferða­mennska eykur álag á kerfið

Fleiri þættir spila inn í skólp­mengun og einn þeirra er fjölgun ferða­manna. Einn ferða­maður sem dvelur á Íslandi er eins og einn íbúi eða ein per­sónu­ein­ing; sama mengun kemur frá honum og venju­legum íbúa. Tryggvi sagði að ferða­mennskan yki álagið á stað­inn í nátt­úr­unni þar sem skólpið er leitt út í og á hreinsi­stöðv­arn­ar. Hann sagði að hreinsi­stöðv­arnar næðu aldrei nema hluta af meng­un­inni, mis­mikið eftir því hvort um eins þreps, tveggja þrepa eða ítar­legri hreinsun en tveggja þrepa er að ræða. Öll umframmengun sem hreinsi­bún­að­ur­inn ræður ekki við slippi því í gegn og kæm­ist út í umhverf­ið.

Annar þáttur sem Tryggvi benti á í sam­bandi við vanda með kerfið er vatns­notkun hjá almenn­ingi. „Ef ekki er hugsað um þetta og ef verið er að fara óspar­lega með vatn og það notað í of miklu magni þá kostar það stærri leiðsl­ur. Bæði vatns­leiðslur þar sem þarf að leiða vatnið inn í borg­ina og bæina og eins í lögn­unum fyrir frá­rennsl­i,“ sagði hann. Kostn­aður væri gríð­ar­legur í stórum hreinsi­stöðvum en sá kostn­aður mið­ist við vatns­magnið en ekki beint mengun vatns­ins. Hann sagði að þannig ykist umfangið vegna auka­vatns á öllum bún­aði bæði í lögnum og í hreinsi­bún­aði væri hann til stað­ar.

Örplast fannst í neyslu­vatni Reyk­vík­inga

Í frétt Kjarn­ans frá því í byrjun febr­úar á þessu ári segir að í vatns­sýnum sem safnað var úr vatns­veitu Veitna í Reykja­vík hafi komið í ljós að 0,2 til 0,4 plast­agnir hafi fund­ist í hverjum lítra vatns. Samkvæmt til­kynn­ingu frá Veitum eru þetta mun betri nið­ur­stöður en birtar voru í erlendri skýrslu um örplast í neyslu­vatni sem var í fréttum hér á landi á síð­asta ári. Sér­fræð­ingur sem Kjarn­inn tal­aði við sagði að þrátt fyrir jákvæðar nið­ur­stöður þá bæri að taka þær alvar­lega. Frek­ari rann­sókna væri þörf.

Örplast er heiti á plast­ögnum sem eru minni en 5 milli­metrar að þver­máli. Örplast getur ann­ars vegar verið fram­leitt örplast, sem til dæmis finnst í snyrti­vörum, eða örplast sem verður til við nið­ur­brot, til að mynda úr dekkj­um, inn­kaupa­pokum eða fatn­að­i.

Nið­ur­stöður mæl­inga Veitna sam­svara því að 1 til 2 slíkar agnir finn­ist í 5 lítrum vatns. Tekin voru stór sýni, eða 10 til 150 lítr­ar­. Kom fram í fyrr­nefndri erlendri skýrslu að 83 pró­sent þeirra 159 sýna sem hún byggir á, og tekin voru víðs vegar í heim­in­um, inni­héldu að með­al­tali tutt­ugu­falt og allt að 400-falt magn plast­agna miðað við það sem fannst í neyslu­vatni Reyk­vík­inga.

Lifum ekki í ein­angr­uðum heimi

Hrönn Jör­unds­dótt­ir, sviðs­stjóri og sér­fræð­ingur hjá MAT­ÍS, sagði í sam­tali við Kjarn­ann að nauð­syn­legt væri að finna upp­sprettu örplasts, þ.e. hvaðan það komi. Hún sagði að þau hjá MATÍS væru að skoða þessi mál og að til stæði að birta skýrslu um örplast á Íslandi í náinni fram­tíð.

Varð­andi nið­ur­stöður úr sýna­töku Veitna þá sagði hún að það væri jákvætt að lítið örplast hafi greinst í sýn­unum en á hinn bóg­inn þá væri það áhyggju­efni að plast­agnir hafi fund­ist yfir­höf­uð. Þetta sýndi að örplast sé víðar en fólk geri sér grein fyr­ir. „Það verður að taka þetta alvar­lega, við erum ekki laus við þetta í okkar umhverfi frekar en aðr­ir,“ sagði hún og bætti því við að Íslend­ingar lifi ekki í ein­angr­uðum heimi og að þetta snerti okkur öll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár