Fráveitumál á Íslandi í ólestri

Ekki er nægi­lega vel hugað að frá­rennsl­is­málum og hreinsun skólps að mati sér­fræð­inga. Í fyrsta lagi þurfa sveit­ar­fé­lög að fylgja reglu­gerðum betur eftir og í öðru lagi þarf að end­ur­skoða hreinsun skólps.

Nánast engin síun er á örplasti og fara agnir, sem eru minni en millimetri og niður í hundrað míkrómetra, gegnum hreinsistöðvar og út í umhverfið.
Nánast engin síun er á örplasti og fara agnir, sem eru minni en milli­metri og niður í hund­rað míkró­metra, gegnum hreinsi­stöðvar og út í umhverfið. Mynd: Bára Huld Beck

Sér­fræð­ingar virð­ast flestir vera sam­mála um að frá­veitu­málum og skólp­hreinsun sé ábóta­vant í mörgum sveit­ar­fé­lögum á Íslandi. Þrátt fyrir reglu­gerðir og lög hvernig frá­veitu­málum eigi að vera háttað er pottur brot­inn víða varð­andi þau mál­efni. Eitt brýn­asta málið, tengt mengun vegna frá­rennslis, er svo­kallað örplast sem rennur með skólpi og frá­veitu­vatni út í sjó­inn óhindrað. Fleiri þættir hafa áhrif á mengun og mætti nefna aukna ferða­mennsku, stór­iðju og ofan­vatns­mengun.

Fremur reglan en undantekningin að þéttbýli hunsi reglur

Tryggvi Þórð­ar­son, vatna­vist­fræð­ingur hjá Umhverf­is­stofnun, segir að það sé fremur reglan en und­an­tekn­ingin að þétt­býli á land­inu hafi ekki upp­fyllt lög og reglu­gerð um frá­veitur og skóp þó að þau hefðu átt að vera búin að því í síð­asta lagi árið 2005 en þá rann út síð­asti frest­ur­inn.

[links]Tryggvi segir að nauð­syn­legar fram­kvæmdir séu dýrar og til dæmis sé venju­legt að veitu­kerfið sé ein­ungis tvö­faldað um leið og verið sé að taka upp ein­hverja göt­una og end­ur­nýja í henni. Hann telur að miðað við þró­un­ina hingað til muni lík­leg­ast taka ein­hverja ára­tugi fyrir sveit­ar­fé­lögin að fram­fylgja kröfum laga og reglu­gerðar að fullu.

Að sögn Tryggva eru áhrif meng­unar af völdum skólps mis­jöfn eftir því hversu við­kvæmur stað­ur­inn í nátt­úr­unni sem skólpið er leitt út í er. Hann segir að meng­unin fari líka eftir fjölda íbúa­í­gilda eða svoköll­uðum per­sónu­ein­ingum sem geta verið tals­vert fleiri en íbú­arnir. Magn meng­un­ar­efn­anna er metið út frá per­sónu­ein­ingum en ein per­sónu­ein­ing jafn­gildir því sem einn maður lætur frá sér á einum sól­ar­hring. Hann bendir á að vegna atvinnu­rekstrar sé oft tvö til þrefalt meira af per­sónu­ein­ingum en íbúum.

Einnig eru bakt­er­íur í skólp­inu sem hafa ekki bein áhrif á vist­kerfið en segja aðal­lega til um smit­hættu. Tryggvi segir að kröfur séu um að saur­bakt­er­íur þurfi að vera undir ákveðnum mörkum í vatni eftir losun. Kerfið sé við­kvæm­ast fyrir mengun af völdum nær­ing­ar­efna, þ.e. áburð­ar­efna eða líf­ræns efnis. Ein helsta meng­unin af völdum þess­ara efna er skólp­mengun og telur hann að þörf sé á úrbótum í þeim málum.

Ferðamennska eykur álag á kerfið

Fleiri þættir spila inn í skólp­mengun og einn þeirra er fjölgun ferða­manna. Samkvæmt Ferða­mála­stofu komu tæp­lega 1.800.000 ferða­menn til lands­ins á síð­asta ári og jókst um 39 pró­sent frá árinu áður en ekk­ert lát virð­ist vera á þeirri fjölgun. Einn ferða­maður sem dvelur á Íslandi er eins og einn íbúi eða ein per­sónu­ein­ing; sama mengun kemur frá honum og venju­legum íbúa. Tryggvi segir að ferða­mennskan auki álagið á stað­inn í nátt­úr­unni þar sem skólpið er leitt út í og á hreinsi­stöðv­arnar. Hann segir að hreinsi­stöðv­arnar nái aldrei nema hluta af meng­un­inni, mis­mikið eftir því hvort um eins þreps, tveggja þrepa eða ítar­legri hreinsun en tveggja þrepa er að ræða. Öll umframmengun sem hreinsi­bún­að­ur­inn ræður ekki við sleppi því í gegn og kom­ist út í umhverfið.

Annar þáttur sem Tryggvi bendir á í sam­bandi við vanda með kerfið er vatns­notkun hjá almenn­ingi. „Ef ekki er hugsað um þetta og ef verið er að fara óspar­lega með vatn og það notað í of miklu magni þá kostar það stærri leiðslur. Bæði vatns­leiðslur þar sem þarf að leiða vatnið inn í borg­ina og bæina og eins í lögn­unum fyrir frá­rennsli,“ segir hann. Kostn­aður sé gríð­ar­legur í stórum hreinsi­stöðvum en sá kostn­aður mið­ist við vatns­magnið en ekki beint mengun vatns­ins. Hann segir að þannig auk­ist umfangið vegna auka­vatns á öllum bún­aði bæði í lögnum og í hreinsi­bún­aði sé hann til staðar.

[adspot]

Örplast fer beint út í sjó

Sumarið 2016 vann MATÍS skýrslu um losun örplasts með skólpi í sam­starfi við Sænsku umhverf­is­rann­sókn­ar­stofn­un­ina (IVL), Finnsku umhverf­is­stofn­un­ina (SYKE) og Aalto-háskól­ann í Finn­landi. Rann­sakað var hvort skólp­hreinsi­stöðvar væru gátt fyrir öragnir út í umhverfið. Plast­agnir mynd­ast með tvenns konar hætti, ann­ars vegar með nið­ur­broti af stærra plasti og hins vegar geta þetta verið öragnir sem not­aðar eru í til dæmis snyrti­vörur. Að mati sér­fræð­inga ógna þær líf­ríki hafs­ins en í skýrsl­unni er greint frá því að eina hreins­unin sem fram­kvæmd er á Íslandi, meðal ann­ars í Kletta­garða­stöð­inni og skólp­hreinsi­stöð­inni í Hafn­ar­firði, sé gróf­síun. Agnir sem eru minni en milli­metri og niður í hund­rað míkró­metra fara gegnum stöðv­arnar og út í umhverfið. Annað er upp á ten­ingnum í Svíþjóð og Finn­landi þar sem 99 pró­sent öragna setj­ast í óhrein­indin sem skilj­ast frá frá­veitu­vatni eftir for­hreinsun. Ljóst er því að úrbóta er þörf í hreinsi­stöðvum á Íslandi.

Hrönn Jör­unds­dóttir, sviðs­stjóri og sér­fræð­ingur hjá MATÍS, vann að skýrsl­unni en hún segir að rann­sóknir á örplasti séu til­tölu­legar nýjar af nál­inni og því sé enn verið að bæta við þekk­ing­una á þessu sviði. Áhrif stærra plasts sé aug­ljós­ara og þess vegna sé örplastið lúm­skara ef svo mætti að orði kom­ast og smæð þess því sér­stakt áhyggju­efni. Hún segir að örplast sé talið hafa tvenns konar áhrif á umhverfið. Í fyrsta lagi inni­heldur plast fjölda óæski­legra efna. Mikið af efna­sam­böndum séu í plasti, eins og mýk­ing­ar­efni og lit­ar­efni, sól­ar­vörn og svo fram­vegis, sem geta lekið úr því. Það geti gerst inni í lík­ama dýr­anna og þá séu meng­andi efnin komin inn í fæðu­keðju okkar. Plast sé í eðli sínu feitt efni og mengun í sjónum sem er fitu­sækin sæki í plastið. Það dragi í raun í sig meng­andi efni úr sjónum sem geti losnað þegar þau koma inn í lík­amann.

Vandamálið hverfur ekki

Í öðru lagi segir hún að áhrifa gæti sem minna hafa verið rann­sökuð og vitað er um. Hrönn segir að hugs­an­lega hafi plast­ögnin sjálf áhrif á líf­verur. Þegar plast­ögnin sé orðin mjög lítil þá getur hún mögu­lega kom­ist yfir þarma­vegg­ina, út úr þörm­unum og inn í blóð­rás­ina. Og þegar hún sé farin að flakka um lík­amann með blóð­rásinni þá geti hún kom­ist hvert sem er. Ekki er vitað um áhrifin af því, að sögn Hrannar, og erfitt að meta.

Hrönn segir að Íslend­ingar verði að hugsa skólp­hreinsun upp á nýtt og fara að taka ábyrgð á þessum hlutum. Ekki sé ein­ungis mik­il­vægt að huga að líf­rænni mengun heldur verði að skilja að plast­agnir og lyfja­leifar komi úr skólp­inu sem fer út í sjó og menga út frá sér. Plastið brotni ekki niður og því hverfi vanda­málið ekki þrátt fyrir að því sé dælt út í sjó.

Hægt er að lesa nánar um stöðu vatns á Íslandi í umfjöllun Kjarnans „Bláa gullið“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vatn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár