Áhrif Bláu plánetunnar láta á sér kræla

Eftir frum­sýn­ingu heim­ilda­þátta BBC um líf­ríkið í haf­inu hefur fólk í Bret­landi og víðar tekið við sér og ákveðin vit­und­ar­vakn­ing virð­ist hafa átt sér stað. Sir David Attenborough seg­ist vera furðu­lost­inn yfir við­brögð­unum.

Blue Planet II er heim­ilda­mynda­flokkur frá árinu 2017 þar sem fjallað er um líf­ríkið í haf­inu. BBC fram­leiddi þætt­ina en þeir voru sýndir víða um heim, meðal ann­ars í Rík­is­sjón­varp­inu í apríl síð­ast­liðnum. Í lýs­ingu á þátt­unum segir að dreg­inn sé saman mik­ill fróð­leikur um líf­ríki hafs­ins, furðu­skepnur sem þar leyn­ast, haf­strauma og veð­ur­fars­leg áhrif þeirra um allan heim.

Nátt­úru­vís­inda­mað­ur­inn og heim­ilda­mynda­gerða­mað­ur­inn Sir David Attenborough leggur nafn sitt við þætt­ina og er jafn­framt þulur.

Nú þegar tæpir sjö mán­uðir eru liðnir frá frum­sýn­ingu athug­aði BBC hvað Attenborough fynd­ist um við­brögð við þátt­unum en í kringum þá hefur orðið mikil vit­und­ar­vakn­ing varð­andi plast­notkun og þann gríð­ar­lega úrgang sem fer út í sjó á degi hverjum út um allan heim.

Hægt að hafa áhrif

Í svari sínu segir Attenborough vera furðu­lost­inn yfir við­brögð­unum og þeim áhrifum sem þætt­irnir hafa haft. Fyrsti þátt­ur­inn kom út þann 29. októ­ber síð­ast­lið­inn og sló hann áhorfs­met í Bret­landi fyrir árið 2017.

Michael Gove umhverf­is­ráð­herra Bret­lands segir að þætt­irnir „ásæki hann“ og kollegi hans í Skotlandi, Roseanna Cunningham, not­aði tæki­færið þegar hún hélt ræðu í Holyrood að boða breyt­ingar í þessum málum. Jafn­framt segir Erik Solheim, yfir­maður umhverf­is­mála hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, að þætt­irnir hafi hjálpað til við að koma af stað „öldu aðgerða.“ Þetta kemur fram í fyrr­nefndri umfjöllun BBC.

Attenborough segir sjálfur að margir hafi skrifað og sent aðstand­endum þátt­anna skila­boð þar sem fólk seg­ist vilja gera eitt­hvað í mál­unum sjálft og bætir hann við að hægt sé að gera ein­falda hluti til að hjálpa til. „Viðbrögð ykkar sýna að ef við byrjum að taka lítil skref sem eru ein­föld í fram­kvæmd, þá getum við innan tíðar haft raun­veru­leg áhrif,“ segir hann.

Víða um Bretland hefur fólk gripið til aðgerða. Sumir hafa brugðið á það ráð að end­ur­nýta plast­diska og -áhöld í stað­inn fyrir að henda þeim og hafa heilu fjöl­skyld­urnar tekið þá ákvörðun að hætta að nota plast á heim­il­inu.

Mynd: MichaelisScientists
Mynd: MichaelisScientists

Notkun plastumbúða hefur aukist

Notkun plast­um­búða á Íslandi jókst á árunum 2014 til 2016 úr 13.660 tonnum í 15.029 tonn, eða um 10 pró­sent. Plast­um­búðir sem skil­uðu sér til end­ur­vinnslu voru 4.478 tonn árið 2014 og 6.411 tonn tveimur árum síð­ar. Plast­um­búðir sem skil­uðu sér til brennslu með orku­nýt­ingu voru 423 tonn árið 2014 og 666 tonn árið 2016. Plast­úr­gang­ur, þ.e. annar en plast­um­búð­ir, sem skil­aði sér til end­ur­vinnslu voru 193 tonn árið 2014 og 666 tonn tveimur árum síð­ar.

Þetta kom fram í svari Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra í febr­úar síð­ast­liðnum við fyr­ir­spurn frá Olgu Mar­gréti Cilia um mengun af völdum plast­notk­unar. Í svar­inu kemur fram að áreið­an­legar tölur séu til frá End­ur­vinnsl­unni hf. og Úrvinnslu­sjóði yfir notkun plast­um­búða, þ.e. magn umbúða sem settar eru á markað og afdrif þeirra, til dæmis til end­ur­vinnslu. Ekki séu til áreið­an­legar tölur yfir notkun ann­ars plasts en plast­um­búða. Umhverf­is­stofnun safni þeim tölum saman frá þeim aðilum sem með­höndla úrgang.

Jafn­framt segir í svar­inu að erfitt sé að leggja mat á hversu stór hluti þetta er af þeim plast­úr­gangi sem fellur til þar sem tölur yfir notkun vantar og tölu­verður hluti plast­úr­gangs fer að öllum lík­indum með blönd­uðum úrgangs­straumum til förg­un­ar.

Evr­ópu­sam­bandið ræðst gegn plast­mengun

Kjarn­inn greindi frá því fyrr á árinu að Evr­ópu­sam­bandið hefði ein­sett sér að allar plast­um­búðir verði gerðar úr end­ur­vinn­an­legu efni fyrir árið 2030. Þannig verði dregið veru­lega úr notkun einnota plasts og skorður settar við notkun örplasts.

Áætlun ESB til að bregð­ast við plast­mengun er ætlað að vernda nátt­úr­una, verja íbú­ana og styrkja fyr­ir­tækin, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá sendi­nefnd Evr­ópu­sam­bands­ins á Íslandi.

„Ef við umbreytum ekki plast­notkun okkar og fram­leiðslu, verður meira af plasti en fiski í sjónum okkar árið 2050. Við verðum að koma í veg fyrir að plast kom­ist í vatnið okk­ar, mat­inn og jafn­vel í lík­ama okk­ar. Eina lang­tíma­lausnin er að draga úr plast­úr­gangi með því að end­ur­vinna meira og end­ur­nýta. Þetta er áskorun sem borg­ar­arn­ir, iðn­fyr­ir­tæki og stjórn­völd þurfa að takast á við í sam­ein­ing­u,“ er haft eftir Frans Timmermans, fyrsta vara­for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB, í til­kynn­ing­unni.

Minna en þriðj­ungur af því plasti sem Evr­ópu­búar fram­leiða ratar í end­ur­vinnslu. Plast­rusl er 85 pró­sent af draslinu sem finnst á strand­svæðum víða um ver­öld. Plast­efni er jafn­vel farið að koma sér fyrir í lungum fólks og á mat­ar­borð­inu. Það er örplast í lofti, vatni og fæð­unni og áhrif þess á heilsu okkar eru óþekkt. Evr­ópu­sam­bandið hyggst takast á við þessi úrlausn­ar­efni af fullri festu.

Átak á Íslandi til að sporna við plastnotkun

Verk­efnið Plast­laus sept­em­ber var árvekn­i-á­tak sem ætlað var að vekja fólk til umhugs­unar um ofgnótt og skað­semi plasts í umhverf­inu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti.

Á vef­síðu átaks­ins www.plast­laussept­em­ber.is kemur fram að plast end­ist í þús­undir ára og sé því afar slæmur kostur fyrir einnota notk­un. Plast brotnar niður á mjög löngum tíma og þá í örplast sem ekki er betra fyrir umhverf­ið. Plast er ein­göngu hægt að end­ur­vinna í annað plast af lélegri gæð­um. Allt plast sem notað er og fer ekki í end­ur­vinnslu safn­ast fyrir á urð­un­ar­stöðum eða í nátt­úr­unni og veldur þar skaða um ókomna tíð.

Plast endar þannig allt of oft í nátt­úr­unni og þá sér­stak­lega í ám, vötnum og sjó. Plast dregur til sín ýmis meng­un­ar­efni og þegar það endar í vef líf­vera geta efnin þar með endað í fæðu manna. Mjúk­plast inni­heldur stundum horm­ón­arask­andi efni, til að mynda þalöt, sem eru skað­leg mann­fólki.

Í byrjun síð­asta sum­ars tóku fjórar nágranna­konur sig til í Foss­vog­inum og byrj­uðu að spjalla um þessa gegnd­ar­lausu plast­notkun í sam­fé­lag­inu. Hug­myndin kom erlendis frá en átakið Plastic Free July var hrundið af stað í Ástr­alíu í júlí­mán­uði. Þessum konum datt í hug í fram­hald­inu að fara út í slíkt átak á Íslandi. Þær þéttu hóp­inn og fengu fleiri konur með sér sem höfðu áhuga á mál­efn­in­u.

Þær sáu fljót­lega að ekki gekk að hafa slíkt átak yfir sum­arið og út varð að hafa sept­em­ber plast­lausan enda skól­arnir að byrja og haust­ið. „Sum­arið fór að miklu leyti í að koma vef­síð­unni í loftið og skipu­leggja starf á sam­fé­lags­miðl­u­m,“ sagði Jóhanna Gísla­dótt­ir, for­maður stjórnar félags­ins í kringum verk­efnið og dokt­or­snemi í umhverf­is- og auð­linda­fræði, í sam­tali við Kjarnann í októ­ber síð­ast­liðnum.

Jóhanna taldi að meira aðhald þyrfti frá stjórn­völdum hvað þessi mál varð­ar. Setja þyrfti skýr­ari reglur og þyrftu stjórn­völd að setja fé í rann­sóknir á plast­notkun og hvað fari út í sjó­inn við strendur Íslands. „Við þurfum að fara að vakna,“ sagði hún og bætti því við að hún sjálf hefði ekki verið nægi­lega með­vituð um plast­notkun sína og afleið­ingar hennar áður en hún fór af stað með verk­efn­ið. „Þess vegna töldum við þörf á því að koma með árvekn­i-á­tak og vekja athygli á þessu.“

Mynd: Birgir Þór Harðarson
Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Örplast fannst í neyslu­vatni Reyk­vík­inga

Í frétt Kjarn­ans frá því í byrjun febr­úar á þessu ári segir að í vatns­sýnum sem safnað var úr vatns­veitu Veitna í Reykja­vík hafi komið í ljós að 0,2 til 0,4 plast­agnir hafi fund­ist í hverjum lítra vatns. Samkvæmt til­kynn­ingu frá Veitum eru þetta mun betri nið­ur­stöður en birtar voru í erlendri skýrslu um örplast í neyslu­vatni sem var í fréttum hér á landi á síð­asta ári. Sér­fræð­ingur sem Kjarn­inn tal­aði við sagði að þrátt fyrir jákvæðar nið­ur­stöður þá bæri að taka þær alvar­lega. Frek­ari rann­sókna væri þörf.

Örplast er heiti á plast­ögnum sem eru minni en 5 milli­metrar að þver­máli. Örplast getur ann­ars vegar verið fram­leitt örplast, sem til dæmis finnst í snyrti­vörum, eða örplast sem verður til við nið­ur­brot, til að mynda úr dekkj­um, inn­kaupa­pokum eða fatn­að­i.

Nið­ur­stöður mæl­inga Veitna sam­svara því að 1 til 2 slíkar agnir finn­ist í 5 lítrum vatns. Tekin voru stór sýni, eða 10 til 150 lítr­ar­. Kom fram í fyrr­nefndri erlendri skýrslu að 83 pró­sent þeirra 159 sýna sem hún byggir á, og tekin voru víðs vegar í heim­in­um, inni­héldu að með­al­tali tutt­ugu­falt og allt að 400-falt magn plast­agna miðað við það sem fannst í neyslu­vatni Reyk­vík­inga.

Lifum ekki í ein­angr­uðum heimi

Hrönn Jör­unds­dótt­ir, sviðs­stjóri og sér­fræð­ingur hjá MAT­ÍS, sagði í sam­tali við Kjarn­ann að nauð­syn­legt væri að finna upp­sprettu örplasts, þ.e. hvaðan það komi. Hún sagði að þau hjá MATÍS væru að skoða þessi mál og að til stæði að birta skýrslu um örplast á Íslandi í náinni fram­tíð.

Varð­andi nið­ur­stöður úr sýna­töku Veitna þá sagði hún að það væri jákvætt að lítið örplast hafi greinst í sýn­unum en á hinn bóg­inn þá væri það áhyggju­efni að plast­agnir hafi fund­ist yfir­höf­uð. Þetta sýndi að örplast sé víðar en fólk geri sér grein fyr­ir. „Það verður að taka þetta alvar­lega, við erum ekki laus við þetta í okkar umhverfi frekar en aðr­ir,“ sagði hún og bætti því við að Íslend­ingar lifi ekki í ein­angr­uðum heimi og að þetta snerti okkur öll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vatn

Mest lesið undanfarið ár