Aukið álag á vatnssvæði kallar á að lögum sé framfylgt

Miklar breyt­ingar hafa orðið á vatns­nýt­ingu á Íslandi síðan fyrstu vatna­lögin voru sett 1923. Nýt­ing­ar­mögu­leikar hafa auk­ist til muna og vatna­fram­kvæmdir fela gjarnan í sér mikið inn­grip í vatnafar með til­heyr­andi áhrifum á líf­ríki og ásýnd umhverfis.

Eign­ar­réttur og nýt­ing­ar­réttur á sam­eig­in­legum auð­lindum land­ans hafa gjarnan verið þrætu­epli milli skoð­ana­fylk­inga. Íslend­ingar deila um hverjir eigi í raun fisk­inn í sjónum, fjöllin, árnar og foss­ana og hverjir hafi afnota­rétt af þessum ger­semum. Á Íslandi er gnægð ríku­legra auð­linda og því eru hags­munir miklir og er vatnið engin und­an­tekn­ing þar. Sátt er um að Íslend­ingar þurfi á sér­stökum vatna­lögum að halda þrátt fyrir að útfærslan liggi ekki alltaf í augum uppi.

Um þetta er fjallað í sér­stökum kafla um vatna­lög og sið­fræði vatns í umfjöllun um vatn hér á Kjarn­anum.

Svandís Svav­ars­dóttir, alþing­is­maður og fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra, segir að margar ástæður séu fyrir því að hafa sér­stök vatna­lög. „Vatn er nátt­úru­lega, eins og margir tala um, upp­haf og endir alls en um leið eru mjög miklir hags­munir sem tengj­ast vatni. Það er bæði orka og alls kyns notkun sem land­bún­aður nýtir sér og byggir á. Þannig að ein­hvern veg­inn þarf almanna­valdið eða sam­fé­lagið sem slíkt að búa til ramma hvernig þessi nýt­ing eigi sér stað,“ segir hún. Hún telur að Íslend­ingar þurfi að koma sér saman um hvernig haldið sé utan um vatns­auð­lind­ina vegna þess að þrátt fyrir að mikið sé um lindir og upp­sprettur á Íslandi þá megi ekki ganga að vatn­inu sem vísu.

Þörf á nýjum lögum á nýjum tímum

Fyrstu vatna­lög á Íslandi voru sett árið 1923 eða fyrir 94 árum. Þá voru aðrir tímar og taka lögin mið af því bænda­sam­fé­lagi sem var til staðar á þeim tíma. Lögin voru upp­haf­lega heild­ar­lög­gjöf um vatn og tóku meðal ann­ars til vatns­nýt­ingar, vatns­rétt­inda, fram­kvæmda við vötn, vatns­verndar, umferðar um vötn og lax- og sil­ungs­veiði.

[links]Mikið er fjallað um vatns­rétt­indi land­eig­enda og segir í Hvítbók nátt­úru­verndar, sem unnin var fyrir Umhverf­is­ráðu­neytið árið 2011, að á þeim langa tíma sem lið­inn sé síðan lögin voru sett hafi nýt­ing­ar­mögu­leikar auk­ist til muna og vatna­fram­kvæmdir feli gjarnan í sér mikið inn­grip í nátt­úru­legt vatnafar með til­heyr­andi áhrifum á líf­ríki og ásýnd umhverf­is­ins.

Nefndar eru sem dæmi stórar virkj­ana­fram­kvæmdir með vatns­miðlun og umfangs­miklum vatna­flutn­ingum milli vatna­svæða. Bent er á að vatns­notkun hafi auk­ist og enda þótt Ísland sé auð­ugt af vatni sé álag á vatna­svæði sums staðar orðið umtals­vert. Einnig er tekið fram að mjög hafi verið gengið á vot­lend­is­svæði lands­ins með fram­ræslu. Eftir ára­langa vinnu við gerð nýrra frum­varpa á árunum 2001 til 2011 voru ný vatna­lög sam­þykkt vorið 2011 á Alþingi og gilda þau enn í dag.

[adspot]

Þarf að bregðast við í tæka tíð

Svandís telur mik­il­vægt af farið sé eftir Evr­ópu­lög­gjöf um vatna­til­skip­un­ina. „Hún er vatns­vernd­ar­lög­gjöf sem snýst í raun og veru um það að halda utan um vöktun á vatni og vatns­gæðum. Og passa upp á það að gæðin dvíni ekki í raun og veru milli tíma­bila,“ segir hún. Þannig þurfi Íslend­ingar að vita nákvæm­lega hvar vernd­ar­svæðin séu, hvernig vernd­inni sé háttað og að tryggja með­vit­und almenn­ings og umgengni atvinnu­lífs­ins við vatnið. „Þannig erum við að tryggja sjálf­bærni til fram­tíðar og ekki að ganga á rétt kom­andi kyn­slóða til þess að njóta vatns­ins um ókomna tíð,“ bætir hún við.

Svandís telur að í raun og veru sé mjög mik­il­vægt fyrir Íslend­inga að bregð­ast við áður en þeir sitji uppi með ein­hvers konar vanda­mál en segir að það sé hugs­an­lega ekki hefð­bundin röð athafna á Íslandi.

„Við erum vön að bregð­ast við þegar allt er komið í steik. En með vatna­til­skip­un­inni erum við komin með kort­lagn­ingu og yfir­sýn yfir það hversu aðgengi­legt vatnið er og hver gæði þess eru og svo fram­vegis. Þannig að vökt­unin er í raun aðal­at­riðið til þess að við vitum nákvæm­lega hvað við erum með í hönd­unum,“ segir hún og bætir við að oft vanti upp á kort­lagn­ingu á íslenskri nátt­úru. Það gildi ekki bara um vatnið heldur einnig um jarð­minjar og um vist­kerfin, gróð­ur­inn og líf­ríkið. Hún telur að Íslend­ingar viti í raun og veru ekki nóg um landið sitt.

„Við höldum að við vitum allt en það er ekki þannig og vatnið teng­ist í raun og veru öllum vist­kerf­unum. Það er því partur af því að við þurfum að vita hver staða þess er á hverjum tíma á hverjum stað,“ segir hún.

Svandís segir að eign­ar­réttur þurfi að vera algjör­lega skýr í lög­unum, það er hags­munir hvers séu í fyr­ir­rúmi. „Ég hef almennt mjög miklar áhyggjur af eign­ar­rétt­ar­hug­mynd­inni í allri umræðu um íslenska nátt­úru, ekki bara um vatnið heldur um nátt­úr­una yfir­leitt. Við breyt­ingu núna síð­ast á nátt­úru­vernd­ar­lög­unum þá tókst ekki að breyta því ákvæði sem lítur að eign­ar­rétt­inum sem er mjög sterkur í íslenskum rétti. Þar hefði ég viljað stíga skýr­ari skref í átt­ina að almanna­rétt­inum,“ segir hún og telur að lyk­il­at­riðið sé að auð­lindir eigi að vera í þágu heild­ar­innar.

Iðulega vantar fjármagn

Svandís seg­ist ekki átta sig á því hvort núver­andi vatna­lög séu full­nægj­andi í fram­kvæmd­inni. „Vandinn með lög­gjöf er að lög­gjaf­inn er með skýra hug­mynd um það hvernig hann vill að sam­fé­lagið líti út. En síðan þegar kemur að fram­kvæmd­inni þá skortir oft fjár­magn og fólk og eft­ir­lit til þess að fram­fylgja henni,“ segir hún. Hugs­an­lega eigi þetta við um vatns­vernd­ar­lög­gjöf­ina, þar sem gert sé ráð fyrir mjög stífri kort­lagn­ingu á gæðum vatns og áætl­unum. En hún segir að fjár­magn þurfi til þess að fram­fylgja lög­gjöf­inni og að vand­kvæðum hafi verið bundið að fjár­magna til­skip­un­ina til fulls.

Fyrstu árin var inn­leið­ing vatna­til­skip­unar fjár­mögnuð beint úr rík­is­sjóði en sam­kvæmt Evr­óputil­skip­un­inni þá á að nýta gjald­töku til þess að fjár­magna eft­ir­litið. Kröfur eru um að atvinnu­lífið, fyr­ir­tæki og hags­muna­að­ilar taki þátt í fjár­mögnun til­skip­un­ar­innar, til dæmis fisk­eldi sem notar gríð­ar­lega mikið vatn. Svandís segir að mikil tregða sé í íslensku atvinnu­lífi að taka þátt í slíkri fjár­mögnun og að stjórn­völd hafi ekki haft póli­tískt þrek í að klára þetta. Vegna þess að ekki gengur að fá atvinnu­lífið með í þá fjár­mögnun þá telur hún að rík­is­sjóður eigi að sjá um hana enda sé ekki um miklar fjár­hæðir að ræða. „Mér finnst óverj­andi að þetta falli niður vegna þess að það er ekki hægt að fjár­magna þetta. Þetta eru slík verð­mæti að það verður að gera það,“ segir hún. En kannski þurfi Íslend­ingar fyrst og fremst að verða með­vit­að­ari og ekki taka vatn­inu sem gefnu.

Vatn verðmæti í sjálfu sér

Guð­mundur Andri Thorsson, rit­höf­undur og skáld, telur að mik­il­vægt sé fyrir Íslend­inga að hafa útópískar hug­myndir og frá­leita drauma að leið­ar­ljósi. Það er að segja ef þessir draumar snú­ist um sam­vinnu og virð­ingu fyrir mann­lífi og nátt­úru og umhyggju og ást gagn­vart jörð­inni. Hann telur að Íslend­ingar verði að átta sig á því að vatn sé verð­mætt í sjálfu sér. Það sé ekki bara verð­mætt vegna þess að hægt er að selja það, sýna það ferða­mönnum eða að virkja það. Hann bendir á að vatn sé sjálf for­senda lífs­ins því þar sem er vatn þar er líf. „Og við þurfum að fara að gera okkur grein fyrir því að við getum ekki farið að láta skamm­sýn nytja­sjón­ar­mið ráða ein­göngu umgengni okkar við vatnið og yfir­leitt bara við nátt­úr­una,“ segir hann.

Hægt er að lesa nánar um stöðu vatns á Íslandi í umfjöllun Kjarnans „Bláa gullið“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vatn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár