Hyggjast byggja upp fráveitur í COVID-19 faraldri

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp um sér­stakt átak í frá­veitu­málum á Íslandi. Samkvæmt því á að veita á tíu ára tíma­bili fram­lag úr rík­is­sjóði sem nemur hlut­deild í kostn­aði við frá­veitu­fram­kvæmdir á vegum sveit­ar­fé­laga.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, hefur lagt fram frum­varp um sér­stakt átak í frá­veitu­málum á Íslandi. Samkvæmt því skal veita á tíu ára tíma­bili, frá 2020 til 2030, fram­lag úr rík­is­sjóði sem nemur hlut­deild í kostn­aði við frá­veitu­fram­kvæmdir á vegum sveit­ar­fé­laga. Gert er ráð fyrir að 200 millj­ónum verði veitt til frá­veitu­fram­kvæmda á árinu 2020.

Meg­in­mark­mið frum­varps­ins er að styrkja frá­veitu­fram­kvæmdir á vegum frá­veitna sveit­ar­fé­laga til þess að upp­fylla lög um upp­bygg­ingu og rekstur frá­veitna, lög um stjórn vatna­mála og reglu­gerð um frá­veitur og skólp.

Ef frum­varpið verður að lögum mun ráð­herra aug­lýsa árlega eftir umsóknum frá frá­veitum sveit­ar­fé­laga um styrk­hæf verk­efni á vef ráðu­neyt­is­ins. Umsækj­endum er gert að sækja um styrki staf­rænt og skulu umsókn­inni fylgja grein­ar­góðar upp­lýs­ingar um fram­kvæmd­ina og kostnað. Skilyrði fyrir fjár­stuðn­ingi er að fram­kvæmdin sé áfangi í heild­ar­lausn á frá­veitu­málum sveit­ar­fé­lags í sam­ræmi við sam­þykkta áætlun.

Fram kemur í grein­ar­gerð með frum­varp­inu að í fjár­auka­lögum fyrir árið 2020, sem sam­þykkt voru 30. mars, sé lagt til að veitt verði tæp­lega 18 millj­arða króna fjár­heim­ild til sér­staks tíma­bund­ins fjár­fest­ing­ar­átaks til að vinna gegn sam­drætti í hag­kerf­inu í kjöl­far heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru.

Ástand fráveitumála víða þannig að fráveitur í þéttbýli uppfylla ekki ákveðnar kröfur

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra skip­aði vinnu­hóp þann 1. októ­ber 2019 sem falið var það verk­efni að gera til­lögur að fyr­ir­komu­lagi stuðn­ings rík­is­ins við sveit­ar­fé­lög vegna frá­veitu­fram­kvæmda. Í skýrslu vinnu­hóps­ins kemur fram að ástand frá­veitu­mála sé víða þannig að frá­veitur í þétt­býli upp­fylla ekki kröfur sem gerðar eru í reglu­gerð um frá­veitur og skólp.

[links]Samkvæmt þessum kröfum skal meðal ann­ars vera safn­ræsi í þétt­býli þar sem fjöldi per­sónu­ein­inga er 2.000 eða fleiri og hreinsi­virki og útrás sem mið­ast við við­kvæmni þess svæðis sem skólp­inu er veitt í. Kostn­aður við að ljúka við fram­kvæmdir við hreinsi­stöðvar og snið­ræsi hefur verið áætl­aður um 20 millj­arðar króna og kostn­aður við end­ur­bætur á lagna­kerfum 20 millj­arðar til við­bótar.

Frá­veitu­nefnd lét árið 2003 meta eft­ir­stand­andi fjár­þörf og var hún metin um 11 millj­arðar, sem jafn­gildir 23 millj­örðum eða 28 millj­örðum í dag eftir því hvort miðað er við neyslu- eða bygg­ing­ar­vísi­tölu. Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum sem Samorka hefur tekið saman fyrir ráðu­neytið er kostn­aður við núver­andi og áætl­aðar frá­veitu­fram­kvæmdir sveit­ar­fé­laga næstu 10 árin á bil­inu 25 til 30 millj­arðar króna sé miðað við upp­lýs­ingar frá 33 frá­veitum sveit­ar­fé­laga. Ef miðað er við fram­kvæmdir sem snúa að snið­ræsum, dælu­stöðvum, hreinsi­virkjum og útrásum gæti þessi kostn­aður verið um 15 millj­arðar.

Plastagnir úr dekkjum og vegamálningu ein helsta uppspretta örplasts sem berst í haf og vötn

Samkvæmt sam­an­tekt sjáv­ar­líf­tækni­set­urs­ins Biopol eru plast­agnir sem mynd­ast við slit á dekkjum og vega­máln­ingu ein helsta upp­spretta örplasts sem berst með regni og leys­inga­vatni í haf og vötn. Til þess að bregð­ast við þessu væri hægt að leiða vatn af vegum og götum í sett­jarnir eða í ofan­vatns­rásir með síun gegnum jarð­veg og reyna þannig að fanga örplastið áður en vatn­inu er veitt í við­taka. Kostn­aður við hreinsun ofan­vatns með þessum hætti er áætl­aður um 2,5 millj­arðar króna. Samkvæmt skýrslu EFLU um kostnað og leiðir til auk­innar eins þreps hreins­unar skólps umfram gróf­síun og mögu­leika á nýt­ingu seyru er heild­ar­kostn­aður við slíkar breyt­ingar áætl­aður 8 til 15 millj­arðar króna, að við­bættum kostn­aði við að koma seyru í nýt­ingu, um 2 millj­örðum, sam­tals 10 til 17 millj­arðar, að því er fram kemur í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Rekstr­ar­kostn­aður er met­inn um 500 til 850 millj­ónir króna en auk þess kemur 100 milljón króna kostn­aður á ári við dreif­ingu seyr­unnar á land.

Akureyrarbær fagnar frumvarpinu

Í umsögn Akur­eyr­ar­bæjar kemur fram að bæj­ar­ráðið fagni frum­varp­inu og vekur athygli á því að Akur­eyr­ar­bær hafi þegar hafið umfangs­miklar­frá­veitu­fram­kvæmdir. Bæjarráð hvetur til þess að tryggt verði að styrkir vegna frá­veitu­fram­kvæmda nái einnig til þeirra sveit­ar­fé­laga sem þegar hafa hafið kostn­að­ar­sam­arfram­kvæmdir á und­an­förnum árum en ekki ein­göngu til­þeirra sveit­ar­fé­laga sem dregið hafa að fara íslíkar fram­kvæmdir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár