Kort sýnir breytingar á fasteignamati

Þjóðskrá Íslands kynnti nýtt fast­eigna­mat í gær. Á vefnum má finna gagn­virkt kort sem sýnir hlut­falls­breyt­ingar fast­eigna­mats á öllu land­inu.

Heild­ar­mat fast­eigna á Íslandi hækkar um 7,8 pró­sent um næstu ára­mót, sam­kvæmt nýju fast­eigna­mati Þjóð­skrár Íslands sem kynnt var í gær. Fast­eigna­matið hækkar á 94,6 pró­sent eigna en lækkar á 5,4 pró­sent eigna frá fyrra ári.

Fjöl­býli hækkar meira en sér­býli. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkar fast­eigna­mat fjöl­býlis um 11,7 pró­sent en sér­býli hækkar um 6,5 pró­sent. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hækkar fast­eigna­mat fjöl­býlis um 8,6 pró­sent en sér­býli um 5,5 pró­sent.

Jón Ævar Pálma­son verk­fræð­ing­ur hefur birt á heima­síðu sinni act­u­ar­y.is gagn­virkt kort sem sýnir hlut­falls­breyt­ingu fast­eigna­mats á land­inu öllu. Á síð­unni kemur fram að fast­eigna­matið sé lagt til grund­vallar álagn­ingu opin­berra gjalda fyrir næsta alm­an­aksár og geti fast­eigna­eig­endur gert athuga­semdir við matið fram til 1. sept­em­ber á skra.is.

Kortið má sjá hér að neð­an. Betri mynd fæst af hverjum lands­hluta með því að þysja inn kort­ið.

Eins og kom fram í Kjarn­anum í gær þá hækk­aði íbúða­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að með­al­tali um 9,2 pró­sent. Fast­eigna­matið gildir fyrir næsta ár, og er ætlað að end­ur­spegla verð­lag fast­eigna í febr­úar á þessu ári. Mesta hækk­unin verður í Bústaða­hverfi, um 20,1 pró­sent. Í Fell­unum í Breið­holti hækkar fast­eigna­matið um 16,9 pró­sent og um 16,3 pró­sent í Rétt­ar­holt­i.

Sé miðað við mið­gildi mats­breyt­ingar þá hækkar fast­eigna­mat mest í þremur póst­núm­erum utan höf­uð­borg­ar­svæðis; í Búðardal um 22,4 pró­sent, á Pat­reks­firði um 22,2 pró­sent og í Vík um 19 pró­sent.

Mest lækkar fast­eigna­mat í þremur póst­núm­erum; á Blöndu­ósi um -8,2 pró­sent, á Hvamms­tanga um -6,8 pró­sent og í Hrísey um -6,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár