Íbúðaverð hækkar mest í Bústaðahverfi og Fellunum

Íbúða­hús­næði hækkar um 8,5% yfir allt landið sam­kvæmt nýju fast­eigna­mati, sem kynnt er í dag. Mesta hækk­unin er í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 11,7 pró­sent.

Íbúða­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkar að með­al­tali um 9,2% sam­kvæmt nýju fast­eigna­mati sem Þjóðskrá kynnir í dag. Fast­eigna­matið gildir fyrir næsta ár, og er ætlað að end­ur­spegla verð­lag fast­eigna í febr­úar á þessu ári. Mesta hækk­unin verður í Bústaða­hverfi, um 20,1%. Í Fellunum í Breið­holti hækkar fast­eigna­matið um 16,9% og um 16,3% í Rétt­ar­holti.

Á þremur svæðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækkar fast­eigna­matið milli ára, um 0,8% á Kjal­ar­nesi, 3,5% í Garðabæ vestan Hraun­holts­brautar og um 4,1% á Arn­ar­nesi í Garðabæ.

Sérbýli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækka að með­al­tali um 6,5% en fjöl­býli hækka mun meira, um 11,7% að með­taltali. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er mun­ur­inn ekki eins mik­ill, eða 5,5% hækkun í sér­býli og 8,6% í fjöl­býli.

Hækkar mest á Suðurnesjum og Vestfjörðum

Hækkunin á fast­eigna­mat­inu utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er mest á Vest­fjörðum, 6,9% og Suð­ur­nesjum, 6,8%. Á Vest­ur­landi er hækk­unin 5,8%, 0,2% á Norð­ur­landi vestra, 5,7% á Norð­ur­landi eystra, 5,6% á Aust­ur­landi og 4,8% á Suð­ur­landi.

Í ein­staka byggða­lögum er mesta hækk­unin í Vopna­fjarð­ar­hreppi, um 12,1% og um 12% í Vest­ur­byggð. Það lækkar hins vegar mest í Akra­hreppi, um 4,8% og á Blöndu­ósi um 3,6%.

Heildarmatið hækkar um 7,8%

Heild­ar­mat fast­eigna á Íslandi hækkar um 7,8 pró­sent frá yfir­stand­andi ári, og verður 6.293 millj­arðar króna. Fast­eigna­matið hækkar á 94,6% eigna en lækkar á 5,4% eigna.

Frekari upp­lýs­ingar um fast­eigna­matið birt­ast síðar í dag og þá verður greint nánar frá fast­eigna­mat­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár