Átta prósent af auðæfum heimila í skattaskjólum

Áætlað hefur verið að lág­marki átta pró­sent af heild­ar­auð­æfum heim­ila í heim­inum sé í skatta­skjólum. Helstu ein­kenni skatta­skjóla eru leynd og ógagn­sæi. Vís­inda­vef­ur­inn tók saman grein um skatta­skjól.

Verkamenn mótmæla við höfuðstöðvar lögfræðistofunnar Mossack Fonseca í Panama eftir að starfsemi hennar kom í ljós með umfangsmesta gagnaleka sögunnar.
Verka­menn mót­mæla við höf­uð­stöðvar lög­fræði­stof­unnar Mossack Fonseca í Panama eftir að starf­semi hennar kom í ljós með umfangs­mesta gagna­leka sög­unnar. Mynd: EPA

Áætlað er að að minnsta kosti átta pró­sent af heild­ar­auð­æfum heim­ila heims­ins séu í skatta­skjólum. Þetta eru um það bil 5.800 milj­arðar evra. Þar af er talið að í Sviss séu 1.800 milj­arðar evra. 5.800 millj­arðar evra eru um 820.000 millj­arðar íslenskra króna. Þó er afar erfitt að finna út þessar fjár­hæðir þar sem eitt helsta ein­kenni skatta­skjóla er leynd og ógagn­sæi.

Leyndin innsta eðli skattaskjóla

„Leyndin er innsta eðli skatta­skjóla en með auknu alþjóð­legu sam­starfi, kröf­unni um aukið gagn­sæi í við­skiptum og auk­inni rann­sókn­ar­blaða­mennsku hafa mynd­ast glufur í hana,” segir í nýju svari á Vís­inda­vef Háskóla Íslands. Vís­inda­vefnum hafa borist nokkrar spurn­ingar und­an­farna daga í tengslum við umræð­una um skatta­skjól og Panama­skjölin úr lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca í Panama.

Tvær spurn­ingar hljóð­uðu svo:

„Hvernig bý ég til aflands­fé­lag í skatta­skjóli án þess að nokkur kom­ist að því?“ og „Hvað getið þið sagt mér um alþjóð­legar skattaparadísir?”

Vís­inda­vef­ur­inn tók því saman svör og fróð­leik um þetta umtal­aða fyr­ir­bæri sem hefur fellt for­sæt­is­ráð­herra og afhjúpað fjölda íslenskra stjórn­mála­manna og við­skipta­jöfra.

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði við HÍ, og Jóhannes Hraun­fjörð Karlsson hag­fræð­ingur, skrifa svarið.

Google greiddi ekki tekjuskatt

Þar kemur meðal ann­ars fram að á síð­ustu ára­tugum hafi stjórn­völd í nokkrum litlum eyríkjum nýtt sér hið síminnk­andi mark­aðs­kerfi heims­ins og boðið upp á hag­stætt skattaum­hverfi til að fá til sín auð­uga ein­stak­linga og fjöl­þjóð­leg fyr­ir­tæki sem skatt­greið­endur. Reuters greini til að mynda frá því að Google hafi talið um 11 millj­aðra evra fram sem hagnað í Bermúda árið 2014 og þannig kom­ist hjá að greiða tekju­skatt af þeirri upp­hæð.

Vís­inda­vef­ur­inn til­greinir fjögur helstu ein­kenni skatta­skjóla sam­kvæmt OECD:

1. Enginn eða mjög lágur tekju­skattur

2. Skortur á skil­virkum upp­lýs­inga­skiptum

3. Skortur á gagn­sæi

4. Engin raun­veru­leg starf­semi fer þar fram

Ýta undir skattsvik, peningaþvætti, mútur og spillingu

„Skatta­skjól gegna þrí­þættu hlut­verki: í fyrsta lagi eru þau aðsetur fyrir svokölluð skúffu­fyr­ir­tæki, það er engin raun­veru­leg starf­semi fer þar fram heldur er þar ein­göngu póst­fang, í öðru lagi útvega þau mögu­leika á að skrá og færa bók­hald eftir smekk við­kom­andi, en ekki við­ur­kenndum bók­halds­reglum, og síð­ast en ekki síst koma þau í veg fyrir að skatt­yf­ir­völd geti rann­sakað banka­reikn­inga við­kom­andi,” segir á Vís­inda­vefnum. „Öll þessi atriði hafa áhrif á skatt­kerfi ann­arra ríkja en skatta­skjól­anna og ýta undir skatt­svik, skatta­snið­göngu, pen­inga­þvætti, mútur og spill­ingu.”

Sagan rakin til eftirstríðsáranna

Farið er stutt­lega yfir sögu skatta­skjóla á vefnum, hvar segir að hana megi rekja til áranna eftir fyrri heims­styrj­öld­ina þegar ríki meg­in­lands Evrópu hækk­uðu skatta til að borga fyrir hörm­ungar stríðs­ins.

„Yfir­stéttin vildi ekki greiða sinn hlut í upp­bygg­ing­unni og skattsvika­iðn­að­ur­inn varð til með flutn­ingi fjár­magns frá Frakk­landi til Sviss,” segir Vís­inda­vef­ur­inn. „Á níunda ára­tugnum bætt­ust fleiri skatta­kjól í hóp­inn: London, Hong Kong, Singapúr, Jersey, Lúx­em­borg, Bahama­eyjar, Panama og svo fram­vegis. Eins og áður segir hefur verið áætlað að lág­marki átta pró­sent af heild­ar­auð­æfum heim­ila heims séu í skatta­skjólum, eða um það bil 5.800 milj­arðar evra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár