Segir Seðlabankann hafa öll spil á hendi til að hafa hemil á húsnæðismarkaðnum

Seðla­banka­stjóri sendi frá sér ákall til ann­arra, sér­stak­lega aðila vinnu­mark­að­ar­ins og stjórn­valda, um að vinna með bank­anum gegn verð­bólg­unni. Vara­seðla­banka­stjóri segir mik­il­vægt að aðgerðir til að milda áhrif verð­bólgu verði ekki almennar.

Rannveig Sigurðardóttir og Ásgeir Jónsson.
Rannveig Sig­urð­ar­dóttir og Ásgeir Jónsson. Mynd: Bára Huld Beck

„Þetta er ákall frá okkur um að gera þetta saman. En við gætum gert þetta ein.“ Þetta sagði Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri á kynn­ing­ar­fundi vegna ákvörð­unar pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands um að hækka stýri­vexti um eitt pró­sentu­stig í 3,75 pró­sent.

Þar átti Ásgeir við bar­átt­una við að berja niður verð­bólg­una, sem mælist nú 7,2 pró­sent og upp­færðar spár bank­ans gera ráð fyrir að fari yfir átta pró­sent. Vaxta­tækið er helsta vopn Seðla­bank­ans í þeirri bar­áttu og hann hefur beitt því skarpt síð­ustu miss­eri, enda stýri­vextir farið úr 0,75 í 3,0 pró­sent á einu ári. Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar sem birt var í morgun var boðað að taum­haldið yrði hert enn frekar á næstu mán­uðum, sem þýðir að frek­ari vaxta­hækk­anir eru framundan. Sú fyrsta gæti komið í næsta mán­uði, þegar næsti vaxta­á­kvörð­un­ar­fundur verður hald­inn.

Rannveig Sig­urð­ar­dóttir, vara­seðla­banka­stjóri pen­inga­stefnu bank­ans, sagði á fund­inum að Seðla­bank­anum væri falið af Alþingi að halda verð­bólgu við 2,5 pró­sent mark­mið og að bank­inn hefði tækin til að ná henni niður. Það væri þó hægt að nota þau tæki, eins og vaxta­hækk­anir, minna ef aðrir tækju þátt í bar­átt­unni við verð­bólg­una með bank­anum. „Ef við förum yfir umræð­una eins og hún hefur verið þá held ég að það skipti veru­lega miklu máli að orð­ræðan á vinnu­mark­aði fari að snú­ast um að auka kaup­mátt en ekki nafn­laun. Ég held að það geti haft veru­leg áhrif á lang­tíma­verð­bólgu­vænt­ingar.“

[adspot]Þá sagði Rannveig að mik­il­vægt væri að þeir sem setji verð á vöru séu ekki að reyna að ná upp hagn­að­ar­margínu heldur virki­lega velti því fyrir sér hversu langt þurfi að ganga við að hækka verð. „Og síðan, eins og umræðan hefur verið svo­lítið núna, að ef hið opin­bera komi inn í til að milda áhrif verð­bólg­unnar, að það séu þá tar­get­erað en ekki almennar aðgerðir sem þar koma inn.“ Fyrir liggur að aukin verð­bólga mun hafa mest áhrif á þá sem hafa minnst milli hand­anna.

Vonbrigði að hert skilyrði hafi ekki bitið

Einn stærsti þátt­ur­inn í verð­bólg­unni er hús­næð­islið­ur­inn. Mikil hækkun á hús­næð­is­verði hefur því vigtað þungt í verð­bólgu­skrið­inu sem nú geisar, en án hús­næð­islið­ar­ins væri verð­bólga um fimm pró­sent.

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­bank­ans hefur reynt að hemja þessar hækk­anir með því að herða lán­þega­skil­yrði. Í sept­­em­ber í fyrra ákvað hún að setja reglur um hámark greiðslu­­byrðar á fast­­eigna­lánum og end­­ur­vekja hinn svo­­kall­aða sveiflu­­jöfn­un­­ar­auka. Áður hafði nefndin lækkað hámark veð­­­setn­ing­­­ar­hlut­­­falls fast­­­eigna­lána til neyt­enda lækkað úr 85 í 80 pró­­­sent en hámarks­­­hlut­­­fall fyrir fyrstu kaup­endur hélst óbreytt í 90 pró­­­sent.

Ásgeir sagði á fund­inum í dag að það væru von­brigði að hert lán­þega­skil­yrði hefðu ekki haldið betur aftur af hús­næð­is­mark­aðnum en raun ber vitni, en árs­hækkun hús­næð­is­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mæld­ist 22,2 pró­sent í mars. „Þetta er ákveðin til­rauna­starf­semi. Þessi skil­yrði hafa ekki áður verið þannig að við vitum ekki hvert sam­spil vaxta­hækk­ana verður við þessi skil­yrði. “

Hann sagði horfur á því að hús­næð­islið­ur­inn yrði „akk­eri“ fyrir verð­bólg­una þegar fram líða stundir. „Seðla­bank­inn ætti að hafa öll spil á hendi til að hafa hemil á þessum mark­aði. Það er bara spurn­ing hversu fast við viljum kveða að orði í því.“

Óvissa um hvort það hægi á verðhækkun húsnæðis

Það mikla skrið sem hús­næð­is­mark­að­ur­inn er á núna hófst eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á að Seðla­bank­inn lækk­aði vexti niður í sögu­lega lágar lægðir. Samhliða jók hann útlána­getu banka með því að afnema tíma­bundið sveiflu­jöfn­un­ar­auk­ann og bank­arnir ákváðu að nýta það svig­rúm aðal­lega til að lána til hús­næð­is­kaupa. Á sama tíma var geta lands­manna til að eyða pen­ingum skert veru­lega vegna þeirra tak­mark­ana sem far­ald­ur­inn setti og sparn­aður jókst því gríð­ar­lega sam­hliða því að ráð­stöf­un­ar­tekjur juk­ust, meðal ann­ars vegna mik­illa launa­hækk­ana. Lægri vextir, mik­ill upp­safn­aður sparn­aður og meiri ráð­stöf­un­ar­tekjur auð­veld­uðu kaup á stærra hús­næði og gerðu fleiri fyrstu kaup­endum kleift að kaupa sína fyrstu eign.

[links]Í nýjasta riti Pen­inga­mála, sem birt var í dag, er farið nokkuð ítar­lega yfir stöð­una á hús­næð­is­mark­aði. Þar er farið yfir þann mikla sam­drátt á fram­boði á mark­aðnum sem ýtt hefur undir verð­hækk­anir en bent á að bygg­inga­fram­kvæmdir hafi verið að glæð­ast að und­an­förnu sem ætti að auka fram­boð hús­næðis og létta á verð­þrýst­ingi á mark­aði.

Samkvæmt grunn­spá bank­ans eru horfur á að það hægi á verð­hækkun hús­næðis á seinni hluta þessa árs en nokkur óvissa er þó til staðar. „Þannig hafa stríðs­á­tök í Evrópu leitt til mik­illar verð­hækk­unar fjölda hrá­vara og skortur gæti orðið á aðföngum. Það gæti gert bygg­ing­ar­verk­tökum erfitt fyrir og leitt til bakslags í fram­boði hús­næðis og frek­ari hækk­unar hús­næð­is­kostn­aðar. Þá er einnig nokkur óvissa um áhrif kom­andi kjara­samn­inga og efna­hags­horfur almennt. Mikil fjölgun inn­flytj­enda og aukin skamm­tíma­leiga hús­næðis fyrir erlenda ferða­menn gæti einnig sett meiri þrýst­ing á hús­næð­is­verð en nú er gert ráð fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár