Samanburður lána í Fyrstu fasteign „afar villandi“

Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur kynnti Fyrstu fasteign í Hörpu 15. ágúst 2016.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son hag­fræð­ingur kynnti Fyrstu fast­eign í Hörpu 15. ágúst 2016. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Seðla­banki Íslands segir að sam­an­burður á greiðslu­byrði og eft­ir­stöðvum verð­tryggðra og óverð­tryggðra fast­eigna­lána sem er að finna í grein­ar­gerð með frum­varpi til laga um stuðn­ing til að kaupa á fyrstu íbúð (einnig þekkt sem Fyrsta fast­eign) sé „afar vill­andi“. Þær fjár­hæðir sem þar eru settar fram séu ekki sam­bæri­legar á milli ára og rétt­ara hefði verið að setja sam­an­burð sem þennan fram á föstu verð­lagi. Þetta kemur fram í umsögn Seðla­bank­ans um frum­varpið.

Upp­lýs­ingar sem byggðu á sam­an­burð­inum sem Seðla­bank­inn gagn­rýnir er einnig að finna í kynn­ingu sem haldin var á Fyrstu fast­eign í Hörpu nýverið. Seðla­bank­inn tekur þó ekki beina afstöðu til frum­varps­ins, þar sem að það snýr fyrst og fremst að „tekju­skipt­ingu og til­færslu á skatt­byrði milli kyn­slóða.“

Seðla­banki Íslands gagn­rýnir einnig frum­varp um til laga um breyt­ingu á lögum um vexti og verð­trygg­ingu, sem á að banna hluta Íslend­inga að taka 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán, í umsögn sinni um það frum­varp. Þar segir að til­gangur frum­varps­ins sé óljós en virð­ist vera sá að mæta skorti á upp­lýs­inga­gjöf vegna lán­veit­inga. „Ef svo er væri æski­legra að bregð­ast við því með beinum hætti frekar en að tak­marka þá val­kosti sem standa hluta lán­tak­enda til boða, sér­stak­lega þar sem ekki er metið til hve margra bannið mun lík­lega ná. Í frum­varp­inu er sú teg­und lána sem lagt er til að verði óheimil mjög skýrt til­greind, en bannið mun því ekki ná til láns­forma sem við­búið er að komi fram verði það að veru­leika, og geta líkt nán­ast alger­lega eftir því formi sem bannað verður. Því er lík­legt að verði afar erfitt að ná þeim mark­miðum sem frum­varpi þessu er ætlað að ná.“

Seðla­bank­inn bendir á að í frum­varp­inu sé lögð til breyt­ing á lögum um vexti og verð­trygg­ingu. „Í kjöl­far álits ESA um að algjört bann á geng­is­tryggðum lánum fæli í sér brot á 40 gr. EES samn­ings­ins hefur verið unnið að breyt­ingum á þessum lögum. Samhliða hafa einnig verið lagðar til breyt­ingar er lúta að tak­mörkun lán­veit­inga í erlendum gjald­miðlum til óvar­inna aðila. Seðla­bank­inn telur afar brýnt að þessar breyt­ingar nái fram að ganga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár