Villur í fjármálaáætlun - billjón króna munur

Fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar sem kynnt var í síð­ustu viku hefur verið upp­færð. Villur hafa verið leið­réttar raf­rænt. Nýtt upp­lag farið í prent. Þingmenn hefðu viljað nýta sér helg­ina til að skoða tölu­legar for­sendur áætl­un­ar­innar.

Fjár­mála­á­ætlun fyrir næstu fimm ári, sem rík­is­stjórnin kynnti í síð­ustu viku hefur verið upp­færð. Í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu kemur fram að af tækni­legum orsökum höfðu skýr­ing­art­öflur í grein­ar­gerðum til­tek­inna mál­efna­sviða ekki skilað sér með réttum hætti.

„Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan og almenn grein­ar­gerð sem henni fylgdi voru rétt og tóku engum breyt­ingum. Upp­færðri útgáfu skjals­ins var dreift raf­rænt á föstu­dag,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Áætlunin er nú komin aftur í prent og verður dreift um miðja viku.

Þingmenn stjórn­ar­and­stöðunna höfðu kvartað undan því að svo margar villur færi að finna í áætl­un­inni að tím­inn yfir nýliðna helgi hefði ekki nýst sem skildi til að und­ir­búa umræður um málið.

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata sagði á Facebook að hann hefði fundið 10 millj­arða mun á mál­efna­sviði um fjár­magns­kostnað og líf­eyr­is­skuld­bind­ingar. Billjón króna mun í áætl­uðu marka­miði um útflutn­ings­tekjur og þó nokkrar afrit­un­ar­villur þar sem mark­miðin eru nákvæm­lega þau sömu og á fyrra ári, þar sem vísað er til árs­ins 2018 en ekki 2019.

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar sagði í Silfrinu á RÚV í gær að þing­menn hefðu fengið þær fréttir á föstu­dag að ein­staka töflur undir ákveðnum mál­efna­sviðum væru ekki réttar. „Þar eru töl­urnar,“ sagði Hanna sem sagð­ist held að hún væri ekki eini þing­mað­ur­inn sem hafði ætlað sér að nota helg­ina til að kafa djúpt ofan í áætl­un­ina. „Það frest­ast.“

Rík­is­stjórnin kynnti fjár­mála­á­ætlun sína á mið­viku­dag í síð­ustu viku. Þar verða inn­viða­fjár­fest­ingar í for­grunni í rík­is­fjár­mál­unum og fjár­fest­ingar auknar og munu nema 338 millj­ónum á næsta fimm ára tíma­bili.

Banka­skattur verður lækk­aður, sem og trygg­inga­gjald og neðra tekju­skatt­þrep ein­stak­linga.

Lestu um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár