Draugaskipið

Skammt undan ströndum Jemen liggur skip við festar. Ekki væri slíkt í frá­sögur fær­andi nema vegna þess að skipið, sem er hlaðið olíu, hefur legið þarna í sjö ár og er að ryðga í sundur. Ef olían færi í sjó­inn yrði tjónið gríð­ar­legt.

Haustið 1976 var skipi hleypt af stokk­unum í japönsku skipa­smíða­stöð­inni Hitachi Zosen Corporation. Slíkt var reyndar engin nýlunda. Fyr­ir­tækið, sem var stofnað árið 1881, var á þessum tíma stórt í sniðum, starfs­menn í kringum 25 þús­und. Fram eftir 20. öld­inni var smíði skipa af ýmsu tagi, þar á meðal olíu­skipa, burða­rás­inn í starf­sem­inni.

Eftir olíu­krepp­una 1973 dró mjög úr smíði stórra olíu­skipa, ásamt ýmsu því sem til­heyrði olíu­vinnslu, og starfs­fólki fækk­aði. Skipið sem hljóp af stokk­unum 1976 hafði verið pantað mörgum árum fyrr og fékk nafnið Esso Japan. Þótt skipið væri ekki meðal stærstu olíu­flutn­inga­skipa heims á þessum tíma var það samt sem áður engin smá­smíði: 362 metra langt og 70 metra breitt. Tankar skips­ins gátu rúmað um það bil þrjár millj­ónir tunna (1 tunna ca. 158 lítrar).

Fljótandi olíutankur

Árið 1988 var Esso Japan lagt við festar um sjö kíló­metrum (4,3 mílum) undan landi við Jemen. Þá var skipið komið í eigu jem­enska þjóð­ar­ol­íu­fé­lags­ins (undir stjórn rík­is­ins) og í stað þess að sigla með olíu milli landa var skipið gert að fljót­andi olíu­tanki og nafni þess jafn­framt breytt í FSO Safer. Árum saman lá skipið á þessum sama stað í Rauða­haf­inu úti fyrir borg­inni Al Hudaydah. Um svera pípu­lögn streymdi olían frá dælu­stöð í landi í tank­ana um borð í Safer og þaðan í olíu­flutn­inga­skip sem fluttu farm­inn til kaup­enda. Fjöldi slíkra fljót­andi olíu­tanka er úti fyrir ströndum margra landa, meðal ann­ars á Persaflóa og undan ströndum Venes­ú­ela.

[adspot]Þótt FSO Safer hafi ekki siglt um heims­ins höf eftir að skip­inu var breytt í geymslut­ank árið 1988 þurfti það samt sem áður við­hald og umhirðu. Slíku var lengi vel sinnt þokka­lega og í skýrslu frá 2001 kom fram að þótt ástand skips og bún­aðar fengi ekki topp­ein­kunn væri allt í ágætu standi.

Í hendur Húta

Á und­an­förnum árum hefur Jemen iðu­lega verið í fréttum einkum vegna átaka og hung­ursneyðar. Saga lands­ins er löng og flókin og verður ekki rakin hér.

Árið 2004 efndi hópur Zaidi múslima til upp­reisnar gegn stjórn­inni í einu hér­að­anna í norð­ur­hluta lands­ins. Leiðtogi þessa hóps hét Hussein al Houthi og sam­tök upp­reisn­ar­manna síðan kennd við hann og nefnd Hútar. Kröfur upp­reisn­ar­manna sner­ust fyrst og fremst um sjálfs­stjórn og bætt kjör í hér­uðum þar sem Zaidi múslimar voru meiri­hluti íbú­anna. Hussein al Houthi féll í átökum við stjórn­ar­her­inn haustið 2004.

Arabíska vorið svo­nefnda, sem hófst um ára­mótið 2010 - 2011 leiddi til mik­illa inn­an­lands­á­taka í Jemen. Stjórnin féll og Hútum óx ásmegin og til að gera langa sögu stutta náðu þeir skömmu eftir upp­haf borg­ara­styrj­ald­ar­innar í land­inu árið 2015 undir sig strand­svæð­unum í suð­ur­hluta lands­ins og borg­inni Al Hudaydah. Fljót­andi olíu­tank­ur­inn FSO Safer var sömu­leiðis kom­inn í hendur Húta.

Vaxandi áhyggjur, ryð og gas

Nú eru 7 ár síðan FSO Safer komst í hendur Húta. Á þessum tíma hefur við­haldi skips og bún­aðar í engu verið sinnt og það veldur áhyggjum. Ekki liggja fyrir nákvæmar upp­lýs­ingar um magn olíu í skip­inu en talið að það sé rúm­lega 1,1 milljón tunna. Sums staðar þar sem fjallað hefur verið um skipið má lesa að það sé nán­ast full­hlaðið, með um 3 millj­ónir tunna.

Áhyggjur vegna ástands skips­ins fara vax­andi. Þær snú­ast einkum um mikla ryð­myndun á skrokki skips­ins og hins vegar gas­myndun í farm­inum. Undir „venju­legum“ kring­um­stæðum myndi sér­stakur loft­hreinsi­bún­aður koma í veg fyrir gas­myndun í olí­unni en bún­að­ur­inn er ekki lengur not­hæfur. Gas­mynd­unin gæti leitt til spreng­ingar og þá myndi olían dreifast um haf­svæðið í grennd­inni. Ryð­mynd­unin á skrokknum getur leitt til þess að olía fari að leka í sjó­inn. Þess má geta að skrokkur FSO Safer er ein­faldur en í dag er lög­bundið að olíu­skip skuli hafa tvö­faldan byrð­ing. Ef olían í tönkum skips­ins færi í sjó­inn yrðu afleið­ing­arnar miklar og alvar­legar. Stærstu hafn­irnar á svæð­inu, í Hudaydah og As Salif yrðu lok­aðar vikum eða mán­uðum saman. Um þessar tvær hafnir fer stór hluti þeirrar mat­væla sem berst til lands­ins (neyð­ar­að­stoð) og um það bil helm­ingur íbúa lands­ins, sem eru sam­tals um 30 millj­ónir, treystir á. Fisk­veiðar, sem tæpar 2 millj­ónir íbúa treysta á, sér til við­ur­væris, myndu leggj­ast af um langa hríð og fleira mætti nefna. Það er því mikið í húfi.

FSO Safer rætt í Öryggisráðinu

Á fyrsta degi júlí­mán­aðar árið 2020 var hald­inn fundur í Örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna. Á dag­skrá var eitt mál: FSO Safer. Að fundi loknum sendi Örygg­is­ráðið frá sér yfir­lýs­ingu. Þar kom fram að nauð­syn­legt væri að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir það sem gæti orðið eitt alvar­leg­asta umhverf­isslys sög­unnar, eins og það var orðað. Í sept­em­ber sama ár náð­ust samn­ingar milli stjórnar Húta og Sam­ein­uðu þjóð­anna um að full­trúar sam­tak­anna fengju leyfi til að skoða FSO Safer.

Svört skýrsla og samkomulag

Nokkuð dróst að full­trúar SÞ gætu skoðað skipið því bréf frá stjórn Húta um að öryggi sendi­nefnd­ar­innar væri tryggt barst ekki fyrr en seint og um síðir. Í októ­ber 2021 kynnti nefndin nið­ur­stöður skoð­un­ar­ferð­ar­innar. Þar kom fram að ástand skips­ins væri mjög var­huga­vert og brýnt væri að bregð­ast við sem allra fyrst. Í mars á þessu ári var und­ir­ritað sam­komu­lag milli stjórnar Húta og Sam­ein­uðu þjóð­anna um að dæla olí­unni úr FSO Safer yfir í annað skip. Kostn­að­ur­inn við þetta verk er áætl­aður jafn­gildi tæpra 11 millj­arða íslenskra króna. Þótt það séu miklir pen­ingar eru það þó smá­aurar miðað við það tjón sem yrði ef olían færi i sjó­inn. Kostn­aður af völdum slíks slyss gæti numið jafn­gildi 2800 millj­arða íslenskra króna.

[adspot]

Hver á að borga?

Þegar stjórn Húta sam­þykkti að nefnd á vegum SÞ fengi að skoða FSO Safer til­kynnti hún jafn­framt að fjár­magn til hugs­an­legs björg­un­ar­starfs yrði að koma frá öðrum en Jemenum. Fundur um hugs­an­lega fjár­mögnun var hald­inn í Hollandi í maí á þessu ári, þar tókst að fá lof­orð fyrir um það bil helm­ingi þess fjár sem til þarf. Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa nú sett af stað sér­stakt átak til að safna þeim pen­ingum sem enn skortir. Í yfir­lýs­ingu frá Sam­ein­uðu þjóð­unum er skorað á þjóðir heims að bregð­ast við og leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrir alvar­legt umhverf­isslys. Fyrir nokkrum dögum til­kynnti danski utan­rík­is­ráð­herr­ann að Danir myndu leggja til jafn­gildi 130 millj­óna króna. „Ef aðrar þjóðir leggja hlut­falls­lega jafn mikið fram er fjár­mögnun tryggð“ sagði Jeppe Kofod utan­rík­is­ráð­herra. Hann sagði jafn­framt að almenn­ingur í Jemen ætti það skilið að ríkar þjóðir rétti fram hjálp­ar­hönd.

Ef tekst að tryggja fjár­magn til að tæma olí­una úr FSO Safer gæti verkið haf­ist innan nokk­urra mán­aða að sögn tals­manns Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár