Guðmundur Andri: Er krafa um að Harpa skili hagnaði misráðin?

Ekki hefur verið hægt að reka Hörpu nema fyrir árleg við­bót­ar­fram­lög frá eig­endum til rekst­urs­ins. Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar veltir því fyrir sér hvort sú krafa að húsið skili hagn­aði sé mis­ráðin.

Guðmundur Andri Thorsson
Guð­mundur Andri Thorsson Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spyr hvort sú krafa um að Harpa skili hagn­aði sé ekki mis­ráðin, í færslu á Facebook-síðu sinni í morgun. Hann veltir því fyrir sér hvort ekki sé eðli­legt að ríki og borg styrki þessa starf­semi svo að hún geti verið þjóð og húsi til sóma, fólki greidd sóma­sam­leg laun, hvort sem það starfi við að þjón­usta gesti eða við upp­setn­ingu tón­leika og ann­arra við­burða.

[links]Mikil óánægja hefur verið á meðal starfs­manna Hörpu með það að laun for­stjór­ans, Svan­hildar Kon­ráðs­dóttur, hafi verið hækkuð um 20 pró­sent í fyrra. Meðal ann­ars sögðu 20 þjón­ustu­full­trúar sem störf­uðu hjá fyr­ir­tæk­inu upp störfum í gær eftir fund með for­stjór­anum. Stutt er síðan að starfs­fólk Hörpu tók á sig launa­lækkun vegna erf­ið­leika í rekstri.

Guð­mundur Andri segir jafn­framt að launa­hækk­anir rík­is­for­stjóra að und­an­förnu hafi verið afar mis­ráðnar og rang­látar, hvað svo sem þeir heita og hvers kyns sem þeir eru. Hann telur að gott sé hjá Svan­hildi að fara fram á leið­rétt­ingu á þessum mis­tökum en hún greindi frá því í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær að hún hefði óskað eftir því að laun hennar verði lækkuð aft­ur­virkt í sam­ræmi við úrskurð kjara­ráðs frá því í febr­úar 2017.

Reksturinn hefur þurft árleg viðbótarframlög

Ekki hefur verið hægt að reka Hörpu nema fyrir árleg við­bót­ar­fram­lög frá eig­endum til rekst­urs­ins. Tap Hörpu frá byrjun árs 2011 og til síð­ustu ára­móta hefur numið rúm­lega 3,4 millj­örðum króna. Tap af rekstri Hörpu í fyrra, áður en árlegt fjár­fram­lag ríkis og borgar er reiknað með, var tæp­lega 1,6 millj­arður króna. Þegar búið er að bæta fjár­fram­lagi eig­end­anna við var tapið hins vegar 243,3 millj­ónir króna á árinu 2017.

Framlag íslenska rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar, eig­enda Hörpu, er tvenns konar. Annars vegar greiða eig­end­urnir upp­hæð vegna fjár­­­mögn­unar á fast­­eign­inni sjálfri og hins vegar vegna fram­lags til rekstrar Hörpu. Frá árinu 2011 hefur fram­lag vegna fjár­­­mögn­unar kostn­aðar við bygg­ingu Hörpu numið rúm­lega sex millj­örðum króna. Þær greiðslur munu standa yfir til árs­ins 2046 og aukast í krónum talið ár frá ári.

Til við­­bótar ákváðu eig­endur Hörpu að greiða rekstr­­ar­fram­lag vegna hennar frá byrjun árs 2013 og út árið 2016. Sam­tals nam fram­lag eig­end­anna til rekstrar Hörpu á því tíma­bili um 700 millj­­ónum króna.

Uppsafnað tap 11,5 milljarðar króna

Í maí 2017 var ákveðið að gera við­auka við samn­ing Hörpu við eig­endur sína sem í fólst að þeir leggðu félag­inu til 450 millj­ónir króna í við­bót­ar­fram­lag á síð­asta ári. Þetta fram­lag tryggði þó rekst­ur­inn ein­ungis út árið 2017. Í árs­reikn­ingi Hörpu kemur fram að í jan­úar 2018 hafi verið ákveðið að leggja Hörpu til 400 millj­ónir króna til við­bótar á árinu 2018 til að tryggja lausa­fjár­stöðu félags­ins út það ár.

Tap­rekstur síð­ustu ára hefur leitt til þess að eig­in­fjár­staða Hörpu er nú orðin nei­kvæð um 47,5 millj­ónir króna. Hún var jákvæð um 196 millj­ónir króna í lok árs 2016.

Ef rekstr­ar­tap Hörpu, fram­lög ríkis og Reykja­vík­ur­borgar vegna skulda hennar og rekstr­ar­fram­lögin sem ríkið hefur reitt af hendi eru lögð saman kemur í ljós að upp­safnað tap Hörpu frá byrjun árs 2011 og til loka árs 2017 er um 11,5 millj­arðar króna. Til við­bótar munu að minnsta kosti bæt­ast við um 1,5 millj­arður króna vegna fram­lags ríkis og borgar í ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár