Fermetrinn á tæpar 840 þúsund krónur

Miklar fram­kvæmdir hafa verið í mið­bænum und­an­farin ár og nú eru íbúðir komnar á sölu við Hverf­is­götu 85-93. Ein tveggja her­bergja íbúðin í hús­inu er sett á 38,9 millj­ónir króna.

Nýjar íbúðir við Hverf­is­götu 85 til 93 eru nú komnar á sölu. Á fast­eigna­vef Mbl.is má finna aug­lýs­ingu frá fast­eigna­söl­unni Miklu­borg en í henni kemur fram að ásett verð á nýja tveggja her­bergja íbúð í hús­inu sé 38,9 millj­ónir króna. Íbúðin er 46,4 fer­metrar að stærð sem þýðir að fer­metra­verðið er 838 þús­und krónur.

Íbúðin er á annarri hæð með svölum og stæði í bíl­geymslu og skipt­ist eignin í for­stofu, bað­her­bergi, eld­hús opið inn í stofu og svefn­her­bergi. Geymsla er í kjall­ara. Fer­metra­verðið lækkar aðeins þegar íbúð­irnar stækka og er til að mynda 70,9 fer­metra íbúð sett á 46,9 millj­ónir króna. Fer­metra­verðið á henni er því rúmar 660 þús­und krónur.

Á vef­síðu Vita­borgar kemur fram að húsið sé fimm hæðir með 70 íbúðum og tveim atvinnu­rýmum á jarð­hæð við Hverf­is­götu. Í hús­inu eru 57 tveggja her­bergja íbúðir, 12 þriggja her­bergja og ein fjög­urra her­bergja. Stærð íbúða er á bil­inu 44 til 122 fer­metrar. Bíla­stæði í bíla­kjall­ara fylgja öllum íbúðum.

Fermetraverð nýbygginga hærra en annarra íbúða

Í mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs frá því í maí síð­ast­liðnum kemur fram að ásett verð nýbygg­inga hækki nú hraðar en ásett verð ann­arra íbúða. Aug­lýst fer­metra­verð í nýbygg­ingum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi hækkað um 8 pró­sent síð­ast­liðið ár sam­an­borið við 5 pró­sent hækkun á ásettu verði ann­arra íbúða. Ásett fer­metra­verð nýbygg­inga mæld­ist 100.000 króna hærra en ann­arra íbúða og var fer­met­er­inn á um 600.000 krón­ur.

Í skýrsl­unni segir að nýjar íbúðir selj­ast nú í auknum mæli undir ásettu verði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Tæp­lega helm­ingur allra seldra nýbygg­inga selst nú undir ásettu­ verði sam­an­borið við um um 80 pró­sent eldri íbúða. Í jan­úar til mars í fyrra seld­ust að með­al­tali 33 pró­sent nýrra íbúða undir ásettu verði en fyrstu þrjá mán­uði þessa árs var það hlut­fall 48 pró­sent.

Aðrar íbúðir en nýbygg­ingar hafa í gegnum tíð­ina verið tals­vert lík­legri til að selj­ast undir ásettu verði og fyrri hluta árs mælist það hlut­fall að með­al­tali 81 pró­sent. Á sama tíma­bili í fyrra var það hins vegar um 79 pró­sent.

Á sama tíma hefur ásett verð hækkað hraðar á nýbyggðum íbúðum en á öðrum innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Í apríl síð­ast­liðnum var aug­lýst fer­metra­verð í nýbygg­ingum að með­al­tali um 8 pró­sent hærra en í apríl 2018 en í öðrum íbúðum hækk­aði aug­lýst með­al­fer­metra­verð um 5 pró­sent á sama tíma­bil­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár