Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að bankaskatturinn svokallaði þurfi að fara. Það sé grundvallaratriði að íslenskir bankar búi við eðlileg og samkeppnishæf skilyrði til að sinna viðskiptavinum sínum.
Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu hans á Twitter þar sem hann hlekkjar í frétt Fréttablaðsins frá því í morgun þar sem kom fram að ef sérstakur bankaskattur yrði afnumin með öllu myndi söluandvirðið sem ríkissjóður getur vænst að fá fyrir hlutafé í Íslandsbanka og Landsbanka, yrðu þeir seldir að fullu, hækka um 70 milljarða króna.
Þetta er mat Bankasýslu ríkisins sem kynnti þá greiningu fyrir efnahags- og viðskiptanefnd í síðustu viku. Ef skatturinn verður lækkaður niður í 0,145 prósent, líkt og stendur til að gera í nokkrum skrefum á næstu árum, mun söluandvirðið aukast um 44 milljarða króna.
Yfirlýst stefna sitjandi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, sem Bjarni situr í, er að selja hluta af eign ríkisins í fjármálakerfinu. Heimild er til þess í fjárlögum að selja allt hlutafé í Íslandsbanka og allt að 66 prósent hlut í Landsbankanum.
Skatturinn á að lækka í skrefum til 2024
Í byrjun september síðastliðinn kynnti Bjarni nýtt frumvarp um lækkun á bankaskatti. Samkvæmt því verður hinn sérstaki bankaskattur lækkaður úr 0,376 prósent af heildarskuldum þeirra fjármálafyrirtækja sem greiða hann í 0,145 prósent.
Frumvarpið hafði áður verið lagt fram í apríl síðastliðnum og þegar gengið til efnahags- og viðskiptanefndar. Þá átti fyrsta skref lækkunarinnar að taka gildi á næsta ári, 2020.
Þegar fjármálaáætlun var breytt í júní var hins vegar ákveðið að fresta lækkun bankaskattsins um eitt ár. Hann mun því ekki byrja að lækka á næsta ári, heldur árið 2021, og vera komin til framkvæmda að öllu leyti árið 2024. Þær breytingar voru gerðar vegna breyttra aðstæðna í íslensku efnahagslífi, aðallega vegna gjaldþrots WOW air og loðnubrests.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir