Fyrrverandi Kaupþingsmaður til Doha Bank í Katar

Guðni Stilholt Aðal­steins­son hefur tekið við fram­kvæmda­stjóra­stöðu hjá banka í Mið­aust­ur­löndum.

Íslenski banka­mað­ur­inn Guðni Stilholt Aðal­steins­son hefur sest í fram­kvæmda­stjórn Doha Bank, eins stærsta banka Katar. Þar gegnir hann fram­kvæmda­stjóra­stöðu sem kall­ast „chief trea­sury and invest­ment officer“. Þetta má sjá á heima­síðu Doha Bank.

Guðni hét áður Guðni Níels Aðal­steins­son og var meðal ann­ars fram­kvæmda­stjóri fjár­stýr­ingar hjá Kaup­þingi áður en sá banki féll í októ­ber 2008. Eftir það starf­aði hann stutt­lega hjá breska fjár­mála­eft­ir­lit­inu.

Hann hefur einnig gegnt stjórn­enda­störfum hjá Allied Irish Banks og Lehman Brothers og starf­aði um nokk­urra ára skeið hjá breska fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Legal & General. Í fyrra­sumar greindi Frétta­blaðið frá því að Guðni hefði ráðið sig til íslenska fjár­mála­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Alva sem rek­ur Net­gíró, Aktiva og Inkasso sem fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs. Það virð­ist þó hafa verið stutt stopp og hann hefur nú sest í fram­kvæmda­stjórn Doha Bank í Katar.

Í stjórn Doha Bank sitja níu menn, sem sam­kvæmt heima­síðu bank­ans eru allir leið­togar í sínum atvinnu­vegum í Katar. Stjórn­ar­for­maður bank­ans er Sjeik Fahad Bin Mohammad Bin Jabor Al Thani. Auk hans bera þrír aðrir stjórn­ar­menn eft­ir­nafnið Al Thani.

Kaupþing, bank­inn sem Guðni starf­aði hjá fyrir banka­hrun, hafði mik­inn áhuga á að setja á fót starf­semi í Mið­aust­ur­löndum á sínum tíma. Áform hans sner­ust meðal ann­ars um að opna útibú í Doha og Dúbaí.

Það skil­aði því meðal ann­ars að Mohamed bin Khalifa Al Thani, sem til­heyrir kon­ungs­fjöl­skyld­unni í Katar, keypti á 5,01 pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir 25,6 millj­arða króna þann 22. sept­em­ber 2008, skömmu fyrir banka­hrun, án þess að hann þyrfti að leggja út eina ein­ustu krónu. Kaupþing lán­aði að fullu fyrir kaup­unum. Við það varð Al Thani þriðji stærsti hlut­hafi bank­ans, sem lifði aðeins í tæpar þrjár vikur eftir að við­skiptin voru um garð gengin. Sá Al Thani er ekki á meðal þeirra sem sitja í stjórn Doha Bank í dag.

Fjórir fyrr­ver­andi stjórn­endur Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, Sigurður Ein­ars­son og Magnús Guð­munds­son, og einn stærsti hlut­hafi bank­ans, Ólafur Ólafsson, voru dæmdir til þungra fang­els­is­dóma vegna máls­ins í febr­úar 2015. Þeim var gefið að hafa framið umboðs­svik og stundað mark­aðs­mis­notkun eða átt hlut­deild í slíkum brotum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár