Hafa tekist á við vaxtarverki vegna heimsfaraldursins

CrankWheel er íslenskt nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki sem hefur vaxið nokkuð að und­an­förnu vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, enda gerir tækni­lausn fyr­ir­tæk­is­ins sölu­fólki kleift að leysa störf sín af hendi úr fjar­lægð.

Jói Sigurðsson, sem sést hér fyrir miðju á myndinni og Þorgils Sigvaldason, sem stendur lengst til hægri, fengu hugmyndina að CrankWheel árið 2014.
Jói Sig­urðs­son, sem sést hér fyrir miðju á mynd­inni og Þorgils Sig­valda­son, sem stendur lengst til hægri, fengu hug­mynd­ina að CrankWheel árið 2014. Mynd: Leifur Wilberg

Haustið 2014 fengu tveir skóla­fé­lagar úr æsku hug­mynd sem þeir síðan fylgdu eftir og er í dag orðin að tækni­lausn­inni CrankWheel, sem fjöl­mörg fyr­ir­tæki víða um heim nýta sér í dag­legum rekstri. Um er að ræða hug­bún­að­ar­lausn fyrir sölu­fólk, sem ein­faldar síma­sölu og gerir hana lík­ari því að vera á fjar­fundi með við­skipta­vin­inum. Vöxt­ur­inn hefur aldrei verið hrað­ari en eftir að heims­far­ald­ur­inn fór að geisa.

„Þú hringir í ein­hvern, bara venju­legt sím­tal, og getur svo bætt við skjá­deil­ingu, lif­andi vídjóstraum af skjánum hjá þér,“ segir Jói Sig­urðs­son, sem stofn­aði fyr­ir­tækið ásamt Þorgils Sig­valda­syni. Jói segir við Kjarnann að CrankWheel geri sölu­fólki kleift að kom­ast lengra í fyrstu sím­tölum sínum við mögu­lega við­skipta­vini.

Notkunin er ein­föld, en sá sem fær sím­talið þarf ekki að setja upp neitt for­rit hjá sér til þess að geta séð það sem sölu­mað­ur­inn vill sýna honum með skjá­deil­ingu. Þetta hefur komið sér vel á dögum kór­ónu­veirunnar, þegar ekki hefur verið hægt að senda sölu­fólk út af örk­inni til þess að hitta við­skipta­vini augliti til auglitis. Það er eig­in­lega bara búið að vera brjálað að gera, segir Jói.

Nýliðunarhraðinn um það bil þrefaldur

„Í mars­mán­uði fengum við þrefalt fleiri nýskrán­ingar en í febr­úar. Og það hefur bara haldið áfram, við höfum verið með nokkurn veg­inn þre­faldan nýlið­un­ar­hraða hjá okkur síð­ustu mán­uði miðað við það sem við erum vanir,“ segir Jói, en einnig hafa margir sem voru þegar að nota CrankWheel aukið notkun sína og „stækkað pakk­ann“ sem þeir eru að kaupa.

„Við verð­leggjum CrankWheel í svona pökkum sem inni­lega ákveðið mikla notkun, en ekki fjölda not­enda, þannig að þú getur alveg bætt við slatta af fólki í Crankwheel án þess að þurfa endi­lega að stækka pakk­ann, en ef það er miklu meiri notkun þá þarftu að stækka,“ útskýrir Jói og bætir við að sem dæmi hafi tveir stórir við­skipta­vinir úti í heimi fært sig mikið til yfir í notkun CrankWheel í stað þess að senda sölu­fólk sitt á ferð­ina.

Um er að ræða stór fyr­ir­tæki, annað með að minnsta kosti þrjú hund­ruð sölu­menn og hitt með á milli fimm til sex hund­ruð slíka. „Það eru ákveðnir vaxt­ar­verkir sem fylgja því að vaxa svona hratt, við erum búnir að þurfa að bæta við okkur miðl­urum sem reka hug­bún­að­inn og gera ýmis­legt til að stækka hann og láta hann þola meira álag,“ segir Jói.

Veltu því fyrir sér hvað vantaði í sölumennsku

Hug­myndin að CrankWheel kvikn­aði sem áður segir haustið 2014, nánar til­tekið 1. sept­em­ber, sem Jói segir að hann muni alltaf þar sem það er afmæl­is­dagur með­stofn­anda hans, sem aldrei er kall­aður annað en Gilsi.

Kveikjan var sam­tal þeirra tveggja um sölu­mennsku­s­töf, sem Gilsi hafði sinnt um nokk­urra ára skeið fyrir fyr­ir­tæki á borð við trygg­inga­fé­lög, banka og fjar­skipta­fyr­ir­tæki. Jói, sem lýsir sér sem tækni­kall­inum í sam­starf­inu, var nýlega hættur störfum hjá Google og hafði hug á að stofna sitt eigið fyr­ir­tæki frá grunni og þeir voru búnir að vera að velta því fyrir sér hvaða tól sölu­fólki vant­aði.

„Þegar ég spurði hann hvað hann not­aði, ef hann væri að selja fólki sem ætti heima úti á landi eitt­hvað og þyrfti að sýna þeim papp­íra, þá sagð­ist hann bara keyra til þeirra,“ segir Jói. Þar með var hug­myndin fædd.

Reksturinn í plús síðustu tvö ár

Jói segir rekstur fyr­ir­tæk­is­ins hafa verið sjálf­bæran und­an­farin rúm tvö ár, en hann og Gilsi hafa sjálfir sett fjár­muni í upp­bygg­ingu fyr­ir­tæk­is­ins og auk þess fengið tvo styrki frá Tækni­þró­un­ar­sjóði, en ekki tekið á móti utan­að­kom­andi fjár­fest­ingu.

„Þetta hefur byggst upp hægt og rólega. Við vorum komnir með fyrsta við­skipta­vin­inn í sept­em­ber 2015 og það er gaman að segja frá því að sá við­skipta­vinur er enn í við­skiptum við okkur. Raunar end­ast flestir mjög lengi, það hætta fáir sem koma í við­skipti við okkur,“ segir Jói.

Við­skipta­vinir CrankWheel eru víða, helst í Banda­ríkj­unum, Bret­landi og ann­ars staðar í Evrópu en raunar eru þeir um allan heim, segir Jói og bætir við að helst sé um að ræða tvo hópa við­skipta­vina. Margir af stærstu við­skipta­vin­unum eru fyr­ir­tæki sem eru svipuð og Já er hér heima, svo­kall­aðar gulu línur.

Erlendis hafa slík fyr­ir­tæki víða þró­ast yfir í að verða alhliða mark­aðs­skrif­stofur fyrir lítil fyr­ir­tæki og ein­yrkja í rekstri og bjóða gulu-síð­urnar upp á gerð ein­faldra heima­síðna þar sem þjón­usta litlu fyr­ir­tækj­anna er kynnt.

Sölumenn þeirra hringja þá sölu­sím­tölin sín og með hjálp CrankWheel getur fyr­ir­tækja­eig­and­inn fengið að sjá hvernig mögu­leg heima­síða hans fyr­ir­tækis gæti litið út og útfært útlitið í sam­ráði við sölu­mann­inn.

Hinn stóri við­skipta­vina­hóp­ur­inn eru fyr­ir­tæki sem nota CrankWheel til að selja líf- og sjúk­dóma­trygg­ingar, aðal­lega í Banda­ríkj­unum. Þá er CrankWheel notað bæði til þess að sýna glærur og ein­hverja sölu­kynn­ingu, en einnig til þess að sýna við­skipta­vin­inum trygg­inga­skil­málana og fá hann til að stað­festa að hann hafi farið í gegnum þá.

„Áður var mjög erfitt að gera þetta, því þú gast ekki stað­fest þetta með því að senda tölvu­póst, en þú getur stað­fest þetta ef þú ert með við­skipta­vin­inn í sím­anum og hann stað­festir að hafa séð þessa síðu, þessa síðu og svo fram­vegis,“ segir Jói.

Átta til níu starfsmenn að jafnaði

Jói segir að ein­ungis hann og Gilsi starfi fyrir CrankWheel hér á Íslandi, en svo eru þeir með starfs­menn víða um ver­öld­ina, í Banda­ríkj­unum, Bret­landi, Póllandi, Úkraínu og í Suður-Ameríku líka. Alls starfa fjórir hjá CrankWheel í fullu starfi og fjórir til fimm eru í hluta­starfi.

Frá upp­hafi hefur CrankWheel aðal­lega unnið í fjar­vinnu, segir Jói, en þeir Gilsi sjást þó stundum á skrif­stofu fyr­ir­tæk­is­ins í Kringl­unni þó að oft líði heilu vik­urnar þar sem þeir vinni á sitt­hvorum staðnum. Það urðu því ekki miklar breyt­ingar á dag­legum rekstri þegar mælt var með fjar­vinnu vegna far­ald­urs­ins, nema hvað vöxt­inn varð­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár