Menntun bankamanna hefur tekið stakkaskiptum frá hruni

Þegar íslensku bank­arnir störf­uðu út um allan heim og stærð þeirra var marg­föld lands­fram­leiðsla voru ein­ungis 8,8 pró­sent starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja með masters­gráðu. Í dag er hlut­fall starfs­manna sem hafa lokið háskóla­námi miklu hærra.

Fyrir hrun skorti töluvert á það að starfsmenn fjármálafyrirtækja hefðu haft viðveru í háskólum landsins.
Fyrir hrun skorti tölu­vert á það að starfs­menn fjár­mála­fyr­ir­tækja hefðu haft við­veru í háskólum lands­ins. Mynd: Kjarninn.

Fjöldi þeirra starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja sem hafa lokið að minnsta kosti masters­gráðu eða MBA námi hefur hlut­falls­lega auk­ist mikið á und­an­förnum árum.

Í októ­ber síð­ast­liðnum var staðan þannig að 23,7 pró­sent starfs­manna þeirra höfðu lokið masters­gráðu eða MBA námi og 36,5 pró­sent höfðu lokið BS/BA gráðu eða sam­bæri­legu háskóla­námi. Þá höfðu 0,6 pró­sent lokið dokt­ors­námi og því höfðu tæp­lega 61 pró­sent starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja lokið ein­hvers konar háskóla­námi.

Þetta kemur fram í kjara­könnun sem Gallup gerði fyrir Sam­tök starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja (SSF) í októ­ber í fyrra. Alls tóku 2.786 félags­menn sam­tak­anna þátt, sem þýðir að þátt­takan var 74 pró­sent. Þorri félags­manna í sam­tök­unum vinnur hjá bönkum lands­ins.

Þessi mennt­un­ar­staða er tölu­vert önnur en þegar íslenska banka­út­rásin stóð sem hæst. Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar kemur fram að í maí 2008, þegar íslensku bank­arnir Kaupþing, Lands­banki Íslands og Glitnir störf­uðu út um allan heim ásamt fjölda stórra fjár­fest­inga­fé­laga og stærð bank­anna var marg­föld íslensk þjóð­ar­fram­leiðsla eftir tutt­ugu­faldan vöxt á rúmum sex árum, voru ein­ungis 8,8 pró­sent starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja með masters­gráðu eða höfðu lokið MBA námi. 28 pró­sent höfðu lokið BA/BS gráðu eða sam­bæri­legu háskóla­námi.

Á sama tíma höfðu 62,9 pró­sent starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna ekki lokið neinni háskóla­gráðu.

Yngra fólkið mun betur menntað

Þróunin í átt að mennt­aðra vinnu­afli innan fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna hefur verið stöðug frá banka­hruni. Í októ­ber 2010, þegar búið var að end­ur­reisa föllnu bank­ana með nýjum kenni­tölum hafði hlut­fall þeirra sem sem lokið höfðu masters­gráðu eða MBA námi hækkað í 11,8 pró­sent og fjöldi þeirra sem lokið höfðu grunn­gráðu í háskóla einnig hækkað lít­il­lega. Í febr­úar 2013 var hlut­fall masters­gráðu­hafa og þeirra sem lokið höfðu MBA námi orðið 15,7 pró­sent og í sama mán­uði þremur árum síðar 20,2 pró­sent. Að sama skapi hefur hlut­fall þeirra sem hefur lokið BA/BS námi eða sam­bæri­legu vaxið umtals­vert á tíma­bil­inu og var orðið 35,4 pró­sent í febr­úar 2016.

Það kemur kannski lítið á óvart en yngra starfs­fólk fjár­mála­fyr­ir­tækja er mun lík­legra til að vera með háskóla­menntun en það sem eldra er. Þannig eru 78 pró­sent slíkra sem eru undir 34 ára annað hvort með BA/BS gráðu eða masters- og/eða dokt­ors­gráðu. Í ald­urs­hópnum 35-44 er það hlut­fall enn hærra, eða 84 pró­sent. Þar af hafa 38 pró­sent þeirra sem til­heyra hópnum lokið masters- eða dokt­ors­gráðu. Í ald­urs­hópnum 55 til 68 ára snýst dæmið hins vegar við. Þar eru ein­ungis 24 pró­sent með háskóla­menntun. Hlutfall þeirra starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja sem eru á því ald­urs­bili sem eru með masters- eða dokt­ors­gráðu er sjö pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár