Húsnæðismarkaðurinn þjóni frekar spákaupmönnum en fólkinu

Forseti ASÍ segir að réttur fjár­magns­eig­enda og verk­taka að búa til pen­inga á hús­næð­is­mark­aði sé met­inn framar rétti fólks til að lifa við öryggi. „Heimilið á að vera griða­staður og þarf að vera öruggt.“

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er hús­næð­is­mark­aður sem þjónar frekar spá­kaup­mönnum en þeirri grund­vall­ar­þörf fólks að eiga sér heim­ili. Réttur fjár­magns­eig­enda og verk­taka að búa til pen­inga á þessum mark­aði er met­inn framar rétti fólks til að lifa við öryggi. Samkvæmt öllum helstu spám má vænta tölu­verðra hækk­ana á þessum óhefta mark­aði, ef ekk­ert verður að gert.“

Þetta segir Drífa Snædal for­seti ASÍ í viku­legum pistli sínum í dag.

Pistill­inn hefst á því að hún rifjar upp að fyrr á árum hafi hún unnið hjá Kvenna­at­hvarf­inu og eftir þá reynslu sé hún sann­færð um að ekk­ert sé verra en að njóta ekki heim­il­is­ör­yggis. „Heimilið á að vera griða­staður og þarf að vera öruggt. Þetta grund­vall­ar­sjón­ar­mið rifj­að­ist upp fyrir mér þegar ég heim­sótti nýtt fjöl­býl­is­hús sem Samtök um kvenna­at­hvarf hafa látið reisa til þess að auð­velda konum og börnum leið­ina aftur út í lífið eftir dvöl í athvarf­inu sjálfu. Bygging þessa húss er nauð­syn­leg, en líka afleið­ing af grimmum hús­næð­is­mark­aði þar sem tekju­lítið fólk hefur fá tæki­færi til að koma sér upp þaki yfir höf­uðið.“

Drífa segir að það sé skýr krafa verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að stjórn­völd breyti við­horfum sínum og hús­næð­is­málin verði eitt af stóru mál­unum við myndun nýrrar rík­is­stjórnar. Rétt­ur­inn til öryggis verði að vera í for­grunni og stór­felld upp­bygg­ing hús­næðis án hagn­að­ar­sjón­ar­miða verði að eiga sér stað.

Nauð­syn­legt sé að koma hús­næð­is­eig­endum í skjól fyrir verð­bólgu og vaxta­breyt­ingum þannig að fólk hafi mögu­leika á að skipu­leggja fram­tíð­ina. Réttindi leigj­enda verði að tryggja með nýjum lögum og binda verði endi á búsetu í atvinnu­hús­næði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár