Húsnæði ætti ekki að vera uppspretta ávöxtunar – heldur heimili fólks

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að hús­næð­is­mark­að­ur­inn eigi ekki að vera fjár­fest­ing­ar­mark­aður. Það sé eitt að fjár­festa í eigin hús­næði til að eiga sama­stað og búa við hús­næð­is­ör­yggi, annað þegar íbúð­ar­kaup séu orðin fjár­fest­ing­ar­kostur fyrir ávöxtun.

Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar telur að það þurfi alvöru­breyt­ingar sem treysti stöðu leigj­enda með því að draga úr verð­þrýst­ingi á mark­aðnum „sem lekur yfir í allt verð­lag“.

Þetta kom fram í ræðu Kristrúnar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hún hóf mál sitt á því að segja að stórar sam­fé­lags­legar breyt­ingar ættu sér ekki stað nema stjórn­mála­menn hefðu kjark til að veita slíkum málum og breyt­ingum for­ystu. „Það þarf kjark til að tala ekki bara um hlut­ina sem snerta fólk í dag­legu lífi þess sem verk­fræði­legt úrlausn­ar­efni. Hvernig sam­fé­lagi við viljum búa í er hápóli­tískt mál.“

Kristrún sagði að sama hvað stjórn­ar­liðar segðu um lífs­kjör í land­inu þá vissi meiri­hluti lands­manna að alvar­leg staða væri uppi á hús­næð­is­mark­aði.

„Hús­næð­is­mark­að­ur­inn á ekki að vera fjár­fest­ing­ar­mark­aður. Það er eitt að fjár­festa í eigin hús­næði til að eiga sama­stað og búa við hús­næð­is­ör­yggi, annað þegar íbúð­ar­kaup eru orðin fjár­fest­ing­ar­kostur fyrir ávöxtun. Talað er um að fram­boðs­skortur sé ástæðan fyrir að fólk sé fast á leigu­mark­aði, of lítið hafi verið byggt og verðið því hækkað mikið,“ sagði hún.

Hér þarf þjóðarsátt

Þing­mað­ur­inn benti á að frá árinu 2005 hefðu 35.000 nýjar íbúðir verið byggðar. „Á sama tíma hefur íbúðum sem eru í eigu ein­stak­linga sem eiga tvær eða fleiri íbúðir og fyr­ir­tækja fjölgað um 23.000. 67 pró­sent af við­bót­ar­fram­boði á hús­næð­is­mark­aði hafa ratað til ein­stak­linga sem ætla ekki að búa sjálfir í íbúð­inni sem og til fyr­ir­tækja. Þessar íbúðir áttu að vera heim­ili fólks. Þarna býr vissu­lega fólk í dag á almennum leigu­mark­aði en með tak­mark­aða vernd sem gerir því erfitt fyrir að kalla þetta öruggt heim­ili,“ sagði hún.

Kristrún greindi frá því að víða í Evrópu væri leigu­mark­aður sem tæki mið af eins konar þjóð­ar­sátt um að hús­næði ætti ekki að vera upp­spretta ávöxt­unar heldur heim­ili fólks.

„Hér þarf slíka þjóð­ar­sátt. Það þarf alvöru­breyt­ingar sem treysta stöðu leigj­enda, við­kvæmra hópa og ungs fólks með beinum hætti og meiri­hluta fólks í þessu landi með óbeinum hætti, með því að draga úr verð­þrýst­ingi á mark­aðnum sem lekur yfir í allt verð­lag. Nær væri að fólk með auka­fjár­magn fjár­festi í ein­hverju sem raun­veru­lega skapar hér verð­mæti og atvinnu­tæki­færi og heim­ilin væru látin í friði,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár