Sólveig Anna: Samningurinn í gær er „draumasamningur íslenskrar auðstéttar“

Formaður Eflingar segir félagið ekki ætla að láta „láta smala okkur inn í ein­hverja rétt sem Samtök atvinnu­lífs­ins hafa reist til þess að þurfa ein­hvern veg­inn að gleypa það sem aðrir hafa und­ir­ritað og það sem við teljum óásætt­an­legt.“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, fagnar ekki kjara­samn­ingi VR, LÍV og sam­flots iðn­að­ar­manna við Samtök atvinnu­lífs­ins sem und­ir­rit­aður var í gær og gagn­rýnir vinnu­brögðin sem við­höfð voru við samn­ings­gerð­ina harð­lega. „Að láta sem svo að mara­þon­fundir séu ein­hvern veg­inn eitt­hvað til að dásama þegar stað­reyndin er sú að með því að fall­ast strax á nálg­un­ina um skamm­tíma­samn­ing þá glutr­uðu menn frá sér tæki­fær­inu til að byggja upp raun­veru­lega sam­stöðu.“

[links]Þetta kom fram í við­tali við hana í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun.

Hún segir að til­boði Eflingar um gerð skamm­tíma­samn­ings, sem hljóð­aði upp á 56.700 króna flata krónu­tölu­hækkun á öll laun og 15 þús­und króna fram­færslu­upp­bót til við­bótar auk útgreiðslu hag­vaxt­ar­auka vegna síð­ustu samn­inga, gegn því að semja út jan­úar 2024 hafi ein­fald­lega ekki verið svarað. Sólveig Anna segir að Efl­ing­ar­fólk hafi gert sér gein fyrir því að þau yrðu sett aft­ast í röð­ina þar sem full vit­neskja væri innan Samtaka atvinnu­lífs­ins um að þau muni sækja hart fram. „Viðbrögð Samtaka atvinnu­lífs­ins hafa verið bók­staf­lega engin. Við erum ennþá að bíða eftir því að rík­is­sátta­semj­ari setji niður fund. Ég reikna nú með því fyrst að þessi stór­kost­legi sigur, innan gæsalappa, hafi unn­ist að láta menn þarna skrifa undir þennan drauma­samn­ing íslenskrar auð­stéttar þá komi nú brátt að okkur.“

Sólveig Anna reiknar með að fundur með Eflingu verði boð­aður í dag og að fundað verði í þess­ari viku. „Þá fáum við að sjá hvað útsend­urum íslenskrar auð­stéttar þókn­ast að segja við okkur á þeim fundi.“

Búið að semja við 80 prósent almenna markaðarins

Samið var um 6,75 pró­sent launa­hækk­anir fyrir félags­menn VR, LÍV og sam­flot iðn­að­ar­manna í gær, út jan­úar 2024. Þær geta mest orðið 66 þús­und krónur á mán­uði. Áður hafði Starfs­greina­sam­band Íslands samið um krónu­tölu­hækk­anir sem geta mest orðið 52 þús­und krónur á mán­uði. Inni í þessum tölum er hinn svo­kall­aði hag­vaxt­ar­auki, sem samið var um í lífs­kjara­samn­ing­unum sem gerðir voru 2019 og hefði feng­ist greiddur næsta vor hvort sem samist hefði eður ei. Verði þessir samn­ingar sam­þykktir mun vera búið að semja fyrir um 80 pró­sent af almenna mark­aðnum.

[adspot]Sólveig Anna gagn­rýnir þessa samn­inga í rúm­lega níu pró­sent verð­bólgu og miklum hag­vexti og tekur undir orð Stefáns Ólafs­sonar, sér­fræð­ings hjá Eflingu, sem sagði að sér virt­ist sem að samið hefði verið af sér í bull­andi hag­vexti. Hún gagn­rýnir líka orð­ræðu um að nýju samn­ing­arnir taki við af lífs­kjara­samn­ing­unum og bendir á að þeir muni skila mun minni kaup­mátt­ar­aukn­ingu ef ein­hverri en fyrri samn­ingar. Auk þess voru samn­ing­arnir sem skrifað var undir í gær pró­sentu­samn­ingar á meðan að lífs­kjara­samn­ing­ur­inn var krónu­tölu­samn­ingur.

Ætla ekki að láta smala sér í rétt sem Samtök atvinnulífsins hafa reist

Sólveig Anna segir að Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, þreyt­ist ekki á að að til­kynna að nú standi þeir sem hafi ekki enn samið frammi fyrir samn­ingum sam­bæri­legum þeim sem þegar hafi verið skrifað undir. Þeir sem fyrstir skrifa undir leggi lín­urnar. „Það var auð­vitað full vit­neskja um það við samn­inga­borðið milli starfs­greina­sam­bands­ins og Samtaka atvinnu­lífs­ins að þetta yrði sú nálgun sem yrði farið í. Við munum ekki sætta okkur við þetta og við munum ekki láta smala okkur inn í ein­hverja rétt sem Samtök atvinnu­lífs­ins hafa reist til þess að þurfa ein­hvern veg­inn að gleypa það sem aðrir hafa und­ir­ritað og það sem við teljum óásætt­an­legt. Ég reikna með því að það sé tölu­verð bar­átta framundan hjá Efl­ing­ar­fólki.“

[adspot]Rík­is­stjórnin kynnti til­lögur í gær sem eiga að liðka fyrir kjara­samn­ingum, en í þeim fel­ast meðal ann­ars bygg­ing meira hús­næðis, hækkun bóta og breytt barna­bóta­kerfi. Sólveig Anna segir að Efling eigi eftir að greina til­lög­urnar betur. Henni sýn­ist sem þær flestar hafi hvort eð er átt fram að ganga og að hrika­legt væri að þurfa að „horfast í augu við það að tæki­færið sem opn­ast á kjara­samn­ings­vetri til þess að sækja fram sam­einuð og ná ein­hverju sem raun­veru­lega skilar verka- og lág­launa­fólki, vinn­andi fólki, ein­hverju sem tekur því að tala um, því var bara glutrað niður. Það var bara gefið frá sér ein­hvern veg­inn á, liggur við, fyrstu mín­útum sem menn löbbuðu inn í hús­næði rík­is­sátta­semj­ara.“

Segir „ömurlegt“ að landsbyggðin og hærri launaðir hafi ekki staðið með leigutökum

Hún bendir á að um 50 pró­sent af félags­fólki Eflingar sé á leigu­mark­aði og að sá mark­aður hafi breyst í skrímsli. Það að engin nið­ur­staða hafi náðst í að koma á ein­hvers­konar leigu­þaki eða -bremsu sé þyngra en tárum taki. „Ég veit ekki hvort við í Eflingu náum að magna upp nógu mikla pressu á stjórn­völd til að skila okkur ein­hverju meira. Við munum auð­vitað reyna það og leggja mikið á okkur til að ná ein­hverju slíku fram. En þegar stórir sigrar hafa unn­ist hjá sam­tökum vinn­andi fólks með risa­stór mál­efni eins og raun­veru­lega upp­bygg­ingu á hús­næði þá hefur það verið vegna þess að fólk er kannski ósam­mála um ýmis­legt en það nær að sam­ein­ast um risa­stór mál­efni sem sam­staða nær um að séu félags­lega og sam­fé­lags­lega svo mik­il­væg að það þurfi að gera eitt­hvað í þeim.“ Sólveig Anna segir að hús­næð­is­málin hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu séu þannig mál­efni. „Það að lands­byggð­ar­fé­lögin og svo félög hærri laun­aðra, sem eru ekki í þeirri stöðu að vera með 50 pró­sent sinna félags­manna á leigu­mark­aði, hafi ein­hvern veg­inn ekki viljað standa með okkur í þessu, er afskap­lega ömur­legt að upp­lifa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár