Sérfræðingur Eflingar segir að svo virðist sem menn hafi samið af sér í bullandi hagvexti

Kaup­mátt­arrýrnun árs­ins 2022 verður ekki bætt í samn­ingnum sem und­ir­rit­aður var í dag og kaup­mátt­ar­aukn­ing á næsta ári verður mun minni en sú sem tryggð var í lífs­kjara­samn­ingnum, segir Stefán Ólafsson.

Stefán Ólafsson.
Stefán Ólafsson. Mynd: Skjáskot/RÚV

Telja menn að 6,75 pró­sent launa­hækkun í 9,4 pró­sent verð­bólgu og verð­bólgu­spá fyrir næsta ár upp á rúm 6 pró­sent sé við­un­andi?,“ spyr Stefán Ólafsson, pró­fessor emeritus við Háskóla Íslands sem starfar sem sér­fræð­ingur hjá Efl­ing­u-­stétt­ar­fé­lagi, í færslu á Facebook í dag. Tilefnið eru þeir kjara­samn­ingar sem VR, LÍV og sam­flot iðn­að­ar­manna skrif­uðu undir í dag og munu gilda út jan­úar 2024 verði þeir sam­þykktir í atkvæða­greiðslu.

[links]Með gerð samn­ing­anna er búið að semja fyrir 80 pró­sent almenna mark­að­ar­ins en stærsti hóp­ur­inn þar sem ósamið er við er Efling, næst fjöl­menn­asta stétt­ar­fé­lag lands­ins.

Stefán segir að kaup­mátt­arrýrnum árs­ins 2022 verði ekki bætti í samn­ingnum sem und­ir­rit­aður var í dag og kaup­mátt­ar­aukn­ing á næsta ári geti aldrei náð kaup­mátt­ar­aukn­ingu lífs­kja­rassamn­ings­ins, sem var rúm fjögur pró­sent á ári fyrir verka­fólk og að með­al­tali um tvö pró­sent hjá öllu full­vinn­andi fólki. Ef það verði kaup­mátt­ar­aukn­ing á næsta ári þá verði hún að óbreyttu í kringum 0,5 pró­sent að með­al­tali. „Þessu ná menn með því að telja hag­vaxt­ar­auk­ann sem samið var um í síð­asta samn­ingi (13.000 kr. á mán­uði) með í þess­ari 6,75 pró­sent hækkun. Menn hafa þá keypt hag­vaxt­ar­auk­ann tvisvar! Þetta telst vera nokkuð mikil nægju­semi. Svo virð­ist sem menn hafi samið af sér í bull­andi hag­vexti, sem nálg­ast upp­gripa­árið 2007!“

Að hámarki 66 þúsund krónur

Samn­ing­arnir sem Sam­tök atvinnu­lífs­ins und­ir­rit­uðu við VR, LÍV og sam­flot iðn­að­ar­manna í dag gilda frá 1. nóv­em­ber síð­ast­liðnum og til 31. jan­úar 2024. Í þeim fel­ast að almennar launa­hækk­anir verða 6,75 pró­sent og þær taka gildi frá 1. nóv­em­ber síð­ast­liðn­um. Hækk­unin getur þó að hámarki orðið 66 þús­und krón­ur, sem þýðir að þak hennar er rétt undir einni milljón króna mán­að­ar­laun­um. Þá var samið um að des­em­ber­upp­bót fyrir næsta ár verði 103 þús­und krónur og orlofs­upp­bót 56 þús­und krón­ur.

[adspot]Hag­vaxt­ar­auk­inn svo­kall­aði, sem átti að taka gildi 1. apríl næst­kom­andi, fellur sam­hliða nið­ur. Það þýðir að hag­vaxt­ar­auk­inn fellur inn í launa­hækk­un­ina. Auk þess taka nýjar launa­töflur gildi hjá fólki sem vinnur sam­kvæmt taxta sem leiða til ein­hverra hækk­ana umfram almennu hækk­un­ina.

Gerðir eru skamm­tíma­samn­ingar vegna við­sjár­verðra aðstæðna í efna­hags­líf­inu sem birt­ast í mik­illi þenslu og hárri við­var­andi verð­bólgu, sem mælist nú 9,3 pró­sent. Mikil alþjóð­leg óvissa vegna stríðs­á­taka og ann­arrar svipt­inga vigta þar líka inn í.

Samn­ing­arnir eru fram­leng­ing á lífs­kjara­samn­ingnum sem gerður var í apríl 2014 og með því er við­ræðum um öll önnur atriði en launa­lið­inn frestað fram í næstu lotu við­ræðna, sem stefnt er að því að ljúka seint á næsta ári. Þá er von­ast til að verð­bólga verði farin að hjaðna veru­lega og því betri for­sendur til að semja til lengri tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár