Nýtt valdajafnvægi á Norður-Írlandi – Sögulegur kosningasigur en snúin staða

Í fyrsta skipti í hund­rað ára sögu Norður-Írlands er lýð­veld­is­flokkur með flestu sætin á þing­inu í Stormont. Óljóst er hins vegar hvort kosn­ing um sam­ein­ingu Írlands sé í sjón­máli.

Sinn Féin, flokkur lýð­veld­is­sinna á Norður-Írlandi vann sögu­legan sigur í þing­kosn­ingum 5. maí og allt bendir til þess að Michelle O'Neill, for­maður Sinn Féin, verði fyrsti lýð­veld­is­sinn­aði fyrsti ráð­herra Norður-Írlands.

„Í dag er nýtt upp­haf sem ég trúi að muni leiða til tæki­færis til að end­ur­hugsa sam­bönd í þessu sam­fé­lagi á grund­velli sann­girni, á grund­velli jöfn­uðar og á grund­velli félags­legs rétt­lætis,“ sagði O'Neill þegar úrslit kosn­ing­anna lágu fyrir.

O'Neill boðar þannig nýja tíma en sam­bands­sinnar hafa verið við stjórn­völ­inn á Norður-Írlandi í heila öld, allt frá árinu 1922 þegar Írland fékk fullt sjálf­stæði en nyrstu sýsl­unar voru eftir í Stóra-Bret­landi og mynd­uðu Norður-Írland.

Sinn Féin stærsti flokkurinn í fyrsta sinn í 100 ára sögu Norður-Írlands

Sinn Féin hlaut 27 af 90 þing­sætum á þing­inu í Stormont. Lýð­ræð­is­legi sam­bands­flokk­ur­inn (DUP) tap­aði þremur sætum frá síð­ustu kosn­ingum og hlaut 25 þing­sæti. Lýð­ræð­is­legi sam­bands­flokk­ur­inn hefur verið stærsti flokk­ur­inn á norður-írska þing­inu frá upp­hafi.

Alliance-flokk­ur­inn (APNI), sem leggur áherslu á sam­vinnu kaþ­ólskra og mót­mæl­enda og skil­greinir sig hvorki sem sam­bands- né lýð­veld­is­sinna, hlaut 17 sæti, rúm­lega tvö­falt fleiri en í síð­ustu kosn­ingum, og Ulster-sam­bands­flokk­ur­inn níu sæti, einu færra en í síð­ustu kosn­ingum. Verka­manna­flokkur sós­í­alde­mókrata (SDLP), flokkur lýð­veld­is­sinna, tap­aði fjórum sætum og hlaut átta sæti. Fjögur þing­sæti skipt­ast á milli ann­arra flokka.

[adspot]Líkt og fyrr segir hafa lýð­veld­is­sinnar aldrei verið fleiri á norð­ur­írska þing­inu en ekki er hægt að full­yrða hvort meiri­hluti þeirra á þing­inu sé tryggður og stóra spurn­ing er því hvort raun­hæft verði í nán­ustu fram­tíð að kjósa um sam­ein­ingu við Írland?

Ekki var langt liðið á taln­ingu atkvæða þegar ljóst var í hvað stefndi: Sinn Féin var að verða stærsti flokk­ur­inn á þing­inu í Stormont, í fyrsta sinn í hund­rað ára sögu Norður-Írlands. Rory Caroll, frétta­rit­ari The Guardian á Írlandi, fylgd­ist með við­brögðum stuðn­ings­manna Sinn Féin í þá tvo sól­ar­hringa sem taln­ing atkvæða stóð yfir og segir hann áhuga­vert hversu lág­stemmdur fögn­uð­ur­inn var en það hafi verið skila­boðin frá flokknum þar sem Sinn Féin er jú agaður flokkur. „Ekki vera í sig­ur­vímu, ekki fagna of snemma og í guð­anna bænum, ekki hrópa nein IRA-slag­orð,“ segir Caroll að skila­boðin frá Sinn Féin hafi verið.

Sambandið við Bretland og trúarbrögð

Stjórn­mál á Norður-Írlandi hafa alla tíð ein­kennst af tvennu: Trú­ar­brögðum og afstöðu til sam­bands­ins við Bretland þar sem sam­bands­sinnar eru almennt mót­mæl­enda­trúar en lýð­veld­is­sinnar kaþ­ólikkar.

Sinn Féin, eða „Við sjálf“, er vinstri-­þjóð­ern­is­flokkur sem berst fyrir sam­ein­ingu Írlands og Norð­ur­-Ír­lands og er starf­ræktur bæði á Írlandi og í Norð­ur­-Ír­land­i. Flokk­ur­inn var stjórn­mála­armur írska lýð­veld­is­hers­inis (IRA) sem barð­ist harka­lega fyrir því að binda enda á bresk yfir­ráð á Norður-Írlandi.

Átökin stóðu sem hæst á síð­ari hluta tutt­ug­ustu aldar og ganga undir nafn­inu „Vand­ræðin“ (The Troubles). Meira en 3.600 manns lét­ust og þús­undir særð­ust. Átök­in voru milli þeirra sem vildu að Norður-Írland til­heyrði áfram Stóra-Bret­landi og þeirra sem vildu sam­einað Írland. Kaþól­ikk­ar voru flest­ir þjóð­ern­is­sinn­ar en mót­mæl­end­ur drottn­ing­ar­holl­ir, það er sam­bands­sinn­ar.

Í fyrsta skipti í hund­rað ár er Sinn Féin stærsti stjórn­mála­flokk­ur­inn á Norður-Írlandi. Ljóst er að erfitt verk­efni er fyrir höndum þar sem stjórn­mála­kerfið krefst sam­vinnu milli sam­bands­sinn­aðra og lýð­veld­is­sinn­aðra flokka.

Krafa um samstarf sambandssinna og lýðveldissinna

Sérstök lög gilda á Norður-Írlandi sem eiga að tryggja dreif­ingu valds. Þannig skipt­ast störf fyrsta ráð­herra og stað­geng­ils fyrsta ráð­herra á milli stærsta sam­bands­sinn­aða flokks­ins og stærsta lýð­veld­is­sinn­aða flokks­ins. Þessu fyr­ir­komu­lagi var komið á með frið­ar­sam­komu­lag­inu árið 1998 (The Good Friday Agreement) í þeim til­gangi að binda enda á „Vand­ræðin“.

Lýð­ræð­is­legi sam­bands­flokk­ur­inn hefur þegar gefið í skyn að hann geti ekki hugsað sér að starfa undir fyrsta ráð­herra Sinn Féin. Það flækir málin en mynda þarf rík­is­stjórn innan 24 vikna frá kosn­ingum. Takist það ekki verður gengið til kosn­inga á ný.

Brexit flækir málin

Í kjöl­far Brexit hefur Sinn Féin aukið kröfur sínar um sjálf­stæði Norð­ur­-Ír­lands . Sinn Féin hefur vísað til þess að sam­einað Írland gæti verið innan Evr­ópu­sam­bands­ins þar sem 56 pró­sent íbúa Norð­ur­-Ír­lands kusu gegn Brex­it.

En staðan eftir Brexit er flókn­ari. Við útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­bandi náð­ist sam­komu­lag um svo­kall­aða Norður-Írlands­bókun (the Nortern Ireland protocol) sem á að tryggja að landa­mærin milli Írlands og Norður-Írlands hald­ist opin. Hart hefur verið deilt um bók­un­ina milli Breta og ESB og þær kostn­að­ar­sömu við­skipta­deilur sem bók­unin getur valdið. Þá segja sam­bands­sinnar á Norður-Írlandi bók­un­ina í raun búa til landa­mæri og grafi þannig undan stöðu lands­ins gagn­vart Bret­landi og hefur Lýð­ræð­is­legi sam­bands­flokk­ur­inn kraf­ist þess að Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands breyti bók­un­inni, helst afnemi hana, ann­ars muni flokk­ur­inn ekki getað starfað með Sinn Féin í rík­is­stjórn Norður-Írlands.

Helsta bar­áttu­mál Sinn Féin snýr hins vegar að því að kanna vilja Norður-Íra til sam­ein­ingu við Írland. En flækju­stigin eru mörg, fyrst þarf að mynda starf­hæfa rík­is­stjórn og auk þess hefur stuðn­ingur við sam­einað Írland ekki mælst mik­ill upp á síðkastið. Búist var við að stuðn­ingur við sam­einað Írlandi myndi aukast eftir útgöngu Breta úr ESB en svo varð ekki raunin. Samkvæmt nýj­ustu könn­unum er um 30 pró­sent Norður-Íra fylgj­andi sam­ein­ingu við Írland.

Ástlaust hjónaband?

Corell, frétta­rit­ari The Guardian á Írlandi, líkir fyr­ir­komu­lag­inu á norð­ur­írska þing­inu við ást­laust hjóna­band. „Sam­bands­sinnar og lýð­veld­is­sinnar verða að deila völdum, þeir eiga ekki ann­arra kosta völ, þeir eru fastir í ást­lausu hjóna­bandi,“ segir Corell. Þetta fyr­ir­komu­lag hafi hins vegar borgar sig það sem friður hefur ríkt á Norður-Írlandi frá því að frið­ar­sam­komu­lagið var und­ir­ritað.

Staðan er því nokkuð snúin. Á sama tíma og Sinn Féin fagnar sögu­legum kosn­inga­sigri verður erfitt að ná þeirra helsta bar­áttu máli í gegn: Að sam­eina Írland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár