Ætla að byggja 525 hagkvæmar íbúðir sérstaklega fyrir ungt fólk

Alls búa 45 pró­sent lands­manna á aldr­inum 18-29 ára í for­eldra­húsum. Reykja­vík­ur­borg hefur kynnt verk­efni sem í felst að byggja yfir 500 íbúðir sér­stak­lega fyrir ungt fólk, og á hag­kvæman hátt. Borg­ar­stjóri vill fá ríkið með.

Reykja­vík­ur­borg kynnti í morgun nýtt verk­efni um hag­kvæmar íbúðir fyrir ungt fólk. Til stendur, í fyrsta áfanga verk­efn­is­ins, að byggja að minnsta kosti 525 íbúðir á sjö mis­mun­andi reitum.

Samkvæmt verk­efn­inu verður lóðum úthlutað á föstu verði, sem er kr. 45.000 á hvern fer­metra ofanjarðar auk gatna­gerð­ar­gjalda, nema ann­ars sé sér­stak­lega getið. Það á að skila því að íbúð­irnar verði mun ódýr­ari en nýjar íbúðir á mark­aði í dag eru.

Reit­irnir sem um ræðir eru í Úlf­arsár­dal (40 íbúðir), á Kjal­ar­nesi (tíu íbúðir), í Gufunesi (164 íbúðir), í Bryggju­hverfi við Elliða­ár­vog (163 íbúðir), við Sjó­manna­skól­ann (40 íbúðir), á Veð­ur­stofu­reit (50 íbúðir) og í Skerja­firði (72 íbúðir).

Verk­efnið er afrakstur þess að borgin aug­lýsti fyrr á þessu ári eftir hug­myndum að sam­starfs­að­ilum til að þróa og hanna hag­kvæmt hús­næði fyrir ungt fólk og fyrstu kaup­endur á ákveðnum lóðum í borg­inni. Til stendur að vinna upp­bygg­ing­una á grunni þeirra hug­mynda sem skilað var inn. Á fund­inum í morgun fóru þeir sam­starfs­að­ilar sem borgin hefur valið yfir frum­hug­myndir sínar um hag­kvæmt hús­næði fyrir ungt fólk á reit­unum. Reykja­vík­ur­borg leggur ríka áherslu á að fram­kvæmdir hefj­ist eins fljótt og auðið er og að þær gangi hratt fyrir sig.

Ungu fólki í foreldrahúsum fjölgar

Staða ungs fólks á hús­næð­is­mark­aði hefur versnað til muna á síð­ustu árum. Í nýrri skýrslu sem Íbúða­lána­sjóður og vel­ferð­ar­ráðu­neytið kynntu á Hús­næð­is­þingi í vik­unni kom meðal ann­ars fram að sðstoð við að kaupa fyrstu íbúð hefur auk­ist gríð­ar­lega. Á árunum 1990-2009 var það hlut­fall rúm­lega 40 pró­sent en frá 2010 hefur það verið tæp­lega 60 pró­sent.

Í könnun MMR sem birt var í vik­unni kom einnig fram að 45 pró­sent Íslend­inga á aldr­inum 18-29 ára búa í for­eldra­húsum. Í fyrra var það hlut­fall 37 pró­sent og árið 2016 var það 29 pró­sent.

Vill fá ríkisvaldið og fjármögnunaraðila með

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, ræddi verk­efnið í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut á mið­viku­dag. Þar sagði hann að huga þyrfti sér­stak­lega að ungu fólki og fyrstu kaup­endum á hús­næð­is­mark­aði. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Dagur sagði að verk­efnið, sem borgin kynnti í morgun, byggi á því að kallað hefði verið eftir nýjum hug­myndum og nýrri hugsun fyrir fyrstu kaup­endur. „Við erum að leggja undir þetta lóðir á einum sjö stöðum í borg­inni. Það voru fjöldi aðila sem sendu inn hug­myndir. Þeim hefur nú verið gefið ein­kunn og við erum nú að hefja við­ræður við þá um lóða­út­hlut­anir. Í þessum fyrsta áfanga verða þetta yfir 500 íbúðir. 525 íbúðir alla­vega. Hugs­an­lega er hægt að fjölga þeim eitt­hvað í skipu­lags­vinn­unni. Þannig að þarna er líka að koma inn nýtt spenn­andi verk­efni með nýsköpun, með þarfir þessa hóps sem hefur verið dálítið útundan í mínum huga og við myndum gjarnan vilja fá rík­is­valdið og fjár­mögn­un­ar­að­ila með í næstu skref í þessu þannig að þetta nýt­ist eins vel og við viljum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár