Lífeyrissjóðir lána meira en bankar

Útlán líf­eyr­is­sjóða til íbúð­ar­kaupa hafa þre­fald­ast á fjórum árum. Á sama tíma hefur heild­ar­um­fang lána sem bankar og aðrar inn­láns­stofn­anir veita til íbúð­ar­kaupa auk­ist um tæpan þriðj­ung.

Frá því að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins komu af fullum krafti inn á hús­næð­is­lána­mark­að­inn að nýju haustið 2015 hafa útlán þeirra til hús­næð­is­kaupa næstum þre­fald­ast. Þau voru 171,5 millj­arðar króna í októ­ber 2015 en í sama mán­uði fjórum árum síðar voru þau orðin 497,5 millj­arðar króna.

Hjá inn­láns­stofn­unum, bönk­unum og spari­sjóðum, hefur vöxt­ur­inn verið mun hæg­ari. Þar eru lang­fyr­ir­ferða­mestir stóru við­skipta­bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki.

Frá októ­ber 2015 og fram til sama mán­aðar í ár juk­ust útlán bank­anna til hús­næð­is­kaupa úr 733 millj­örðum króna í 960 millj­arða króna, að teknu til­liti til sölu Arion banka á 50 millj­arða lána­safni til Íbúða­lána­sjóðs í haust.

Upphæð íbúða­lána sem eru í eigu inn­láns­stofn­ana, þ.e. banka og spari­sjóða, er því 31 pró­sent hærri í dag en hún var fyrir fjórum árum síðan.

Aukning þeirra hjá inn­láns­stofn­unum var í krónum talið er 227 millj­arðar króna. Á sama tíma hefur umfang lána líf­eyr­is­sjóða auk­ist um 326 millj­arða króna, eða 99 millj­örðum krónum meira en hjá bönkum og spari­sjóðum.

Til við­bótar við þessar tvær teg­undir lán­veit­endenda þá lánar Íbúða­lána­sjóður líka hús­næð­is­lán, en ekki á sam­keppn­is­hæfum kjörum.

Þetta má lesa út úr nýj­ustu hag­tölum Seðla­banka Íslands um útlán inn­láns­stofn­anna og líf­eyr­is­sjóða.

Óvertryggð lán sækja á

Kjarninn greindi frá því á mið­viku­dag að verð­tryggð lán líf­eyr­is­sjóða og inn­láns­stofn­ana væru í dag mun lægra hlut­fall lána líf­eyr­is­sjóða og fjár­mála­stofn­ana til hús­næð­is­kaupa en þau hafa nokkru sinni áður verið. Samkvæmt hag­tölum Seðla­banka Íslands voru 78,7 pró­sent útlána líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga sinna verð­tryggð lán í októ­ber síð­ast­liðnum en 62,9 pró­sent útlána inn­láns­stofn­ana.

Til sam­an­burðar hófu líf­eyr­is­sjóð­irnir ekki að bjóða óver­tryggð lán fyrr en í októ­ber 2015 og því hefur breyt­ingin á útlánum þeirra á síð­ustu fjórum árum. Hjá bönk­unum voru 72 pró­sent allra útlána sem voru með veði í íbúð verð­tryggð í októ­ber 2015 en í dag er það hlut­fall komið niður í 62,9 pró­sent.

Metútlán í október

Kjarninn greindi frá því 6. des­em­ber síð­ast­lið­inn að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hefði aldrei lánað sjóðs­fé­lögum sínum meira í hús­næð­is­lán en þeir gerðu í októ­ber síð­ast­liðnum. Þá námu sjóðs­fé­lags­lán sjóð­anna 13,9 millj­örðum króna og juk­ust um 65 pró­sent á milli mán­aða. Fyrra útlána­met líf­eyr­is­sjóð­anna var sett í júní 2017 þegar þeir lán­uðu rúm­lega ell­efu millj­arða króna til hús­næð­is­kaupa. Því voru útlánin í októ­ber 26 pró­sent hærri en í fyrri met­mán­uði.

Auk þess hafa aldrei verið tekin fleiri lán hjá líf­eyr­is­sjóðum en í tíunda mán­uði árs­ins 2019, þegar þau voru 1.144 tals­ins. Fyrra metið var sett í ágúst 2017 þegar útlánin voru 789 tals­ins. Útlánin í októ­ber voru því 45 pró­sent fleiri en í fyrri met­mán­uði. Allt ofan­greint bendir til þess að tölu­vert líf sé í hús­næð­is­mark­aðnum um þessar mundir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár