Milljarðakvóti Tálknfirðinga suður í Garð

Samn­ingar á loka­stigi um kaup Nesfisks í Garði á Kópi BA með 1200 tonna kvóta. „Svona ger­ast kaupin á eyr­inni,“ segir sveit­ar­stjór­inn sem heyrði af mál­inu í dag.

Tálknarfjörður
Tálkn­ar­fjörður Skuggi er yfir þorp­inu þessa dag­ana. Kvóti þorps­búa er á förum og þar með stór hluti af útsvars­tekj­unum. Hér eru þorps­búar á góðri stundu. Mynd: Tálkna­fjarð­ar­hreppur

Rúmlega þús­und tonna kvóti Þórs­bergs að verð­mæti þrír millj­arðar króna er á leið­inni suður í Garð, ef áform ganga eftir. Heim­ildir Stund­ar­innar herma að samn­ingar séu á loka­stigi um að Nes­fiskur í Garði kaupi fiski­skipið Kóp BA, stærstu eign Þórs­bergs á Tálkna­firði. Ef kaupin ganga eftir standa eftir fisk­vinnslu­hús og vélar, verð­litlar eignir í landi. Eigendur Þórs­bergs hafa und­an­farið átt í við­ræðum við Odda á Pat­reks­firði og fleiri aðila um kaup á fyr­ir­tæk­inu. Heim­ildir Stund­ar­innar herma að slitnað hafi upp úr þeim við­ræðum en þess í stað verði skip og kvóti seldur suður í Garð. Sömu heim­ildir herma að kaup­verðið, rúmir þrír millj­arðar, sé að hluta greitt með smá­báta­kvóta og pen­ingum. 

Þórsberg hefur átt í vand­ræðum und­an­farin ár vegna tap­rekst­urs. Eigendur 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár