Árlegur heildarkostnaður við fæðingarorlof myndi hækka um 5,6 milljarða ef tekjuþak yrði afnumið

Samkvæmt svari félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Evu Pandoru Bald­urs­dóttur má gera ráð fyrir að kostn­aður vegna greiðslna úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði yrði 15,9 millj­arðar króna á ári ef tekju­þak yrði afnumið.

Gera má ráð fyrir að kostn­aður vegna greiðslna úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði yrði 15.921 millj­ónir króna ef ekki yrði um að ræða hámarks­greiðslu úr sjóðnum. Samkvæmt fjár­laga­tölum árið 2017 verður heild­ar­kostn­aður vegna fæð­ing­ar­or­lofs for­eldra 10.355,8 millj­ónir króna.

Þetta kemur fram í svari Þor­steins Víglunds­sonar, starf­andi félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, við fyr­ir­spurn frá Evu Pandoru Bald­urs­dóttur, fyrr­ver­andi þing­manns Pírata, um fæð­ing­ar­or­lof þann 26. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Rúmir 133 millj­arðar hafa farið í fæð­ing­ar­or­lof frá árinu 2001. Eva Pandora spurði hver árlegur heild­ar­kosn­aður fyrir fæð­ing­ar­or­lof hafi verið á árunum 2000 til 2017 og hver hann myndi vera ef tekju­þakið yrði afnumið. Einnig spurði hún hver heild­ar­kostn­að­ur­inn yrði ef tekju­þakið yrði hækkað um 20 og 50 pró­sent.

Myndi hækka um 5,1 milljarð ef hámarksgreiðslan yrði hækkuð um 50%

Hámarks­greiðsla úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði til for­eldra barna sem fæð­ast, eru ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur 15. októ­ber 2016 eða síðar er 500.000 krónur á mán­uði. Ef tekju­þak yrði hækkað um 20 pró­sent má gera ráð fyrir að heild­ar­kostn­aður vegna fæð­ing­ar­or­lofs for­eldra yrði 15.004 millj­ónir króna ef hámarks­greiðsla úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði yrði hækkuð í 600.000 krónur á mán­uði. Þarna er einnig miðað við fjár­lög árið 2017.

Í svar­inu kemur fram að verði hámarks­greiðsla úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði hækkuð um 50 pró­sent verði hún 750.000 krónur á mán­uði til for­eldra í fæð­ing­ar­or­lofi. Sé miðað við slíka hækkun megi gera ráð fyrir að kostn­aður vegna greiðslna úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði yrði 14.655 millj­ónir króna, eða 6.031 millj­ónir króna vegna feðra og 8.624 millj­ónir króna vegna mæðra. Sé jafn­framt miðað við fjár­lög fyrir árið 2017 hvað varðar kostnað vegna fæð­ing­ar­styrkja á árinu megi gera ráð fyrir að heild­ar­kostn­aður vegna fæð­ing­ar­or­lofs for­eldra yrði 15.436 millj­ónir króna ef hámarks­greiðsla úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði yrði hækkuð í 750.000 krónur á mán­uði.

Feður fengu fyrst þrjá mánuði árið 2003

Einnig kemur fram í svar­inu að þegar heild­ar­kostn­aður við fæð­ing­ar­or­lof er tek­inn saman fyrir árin 2000 til 2017 ber að hafa í huga að sjálf­stæður réttur feðra til greiðslna úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði sem og fæð­ing­ar­styrks var inn­leiddur í áföngum í lögum um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof.

Þannig fengu feður sjálf­stæðan rétt til greiðslna úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði eða fæð­ing­ar­styrks í einn mánuð vegna barna sem fædd­ust, voru ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur á árinu 2001. Um var að ræða tvo mán­uði vegna barna sem fædd­ust, voru ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur á árinu 2002 og þrjá mán­uði vegna barna sem fædd­ust, voru ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur frá og með 1. jan­úar 2003.

Ekkert hámark fyrir árið 2005

Í svar­inu kemur enn fremur fram að það beri að hafa í huga þegar heild­ar­kostn­aður við fæð­ing­ar­or­lof er tek­inn saman fyrir árin 2000 til 2017 að hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði hafi verið mis­háar á umræddu tíma­bili auk þess sem fjár­hæð fæð­ing­ar­styrks tók breyt­ingum á tíma­bil­inu.

Þá hafi ekki verið um að ræða til­tekið hámark á greiðslum úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði þegar lög um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof tóku gildi 1. jan­úar 2001 en slíkt hámark tók í fyrsta skipti gildi hvað varðar for­eldra barna sem fædd­ust, voru ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur 1. jan­úar 2005 eða síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár