„Það skiptir máli fyrir budduna hvar þú býrð“

Þing­maður Við­reisnar telur að gera verði þá kröfu til rík­is­valds­ins að það sýni sam­fé­lags­lega ábyrgð og gott for­dæmi og lækki lóð­ar­leigu. Lóð­ar­leiga í Reykja­nesbæ sé til að mynda rúm­lega 600 pró­sent hærri en lóð­ar­leigan í Kópavogi.

Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar.
Guð­brandur Ein­ars­son þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

„Það skiptir máli fyrir budd­una hvar þú býrð.“ Þannig hóf Guð­brandur Ein­ars­son þing­maður Við­reisnar ræðu sína undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Hann sagði að sam­an­burður Byggða­stofn­unar á fast­eigna­mati og fast­eigna­gjöldum árið 2020 hefði leitt í ljós að lóð­ar­leiga í Reykja­nesbæ væri áber­andi hæst miðað við við­mið­un­ar­svæðin, eða 126.000 krónur á ári, sem væri 38,7 pró­sent hærra en í Grund­ar­firði þar sem næst­hæsta lóð­ar­leigan væri 91.000 krónur á ári.

„Álagn­ingin að með­al­tali í Reykja­nesbæ er 1,75 pró­sent af lóð­ar­mati á móti 1,9 í Grund­ar­firði. Lægst er lóð­ar­leigan í Kópavogi miðað við krónu­tölu, tæpar 17.000 krónur á ári, og því er lóð­ar­leiga í Reykja­nesbæ rúm­lega 600 pró­sent hærri en lóð­ar­leigan í Kópavogi,“ sagði hann.

Benti þing­mað­ur­inn á að ríkið væri stór land­eig­andi í Reykja­nesbæ og rukk­aði 2 pró­sent lóð­ar­leigu á meðan sveit­ar­fé­lagið veitti 25 pró­sent afslátt af lóð­ar­leigu af því landi sem sveit­ar­fé­lagið á.

„Þeir sem borga lóð­ar­leigu til Reykja­nes­bæjar greiða því 1,5 pró­sent lóð­ar­leigu. Land­eig­endur aðrir en ríkið hafa ekki ljáð máls á því að lækka leigu á landi á meðan ríkið er ekki til við­tals um lækkun leigu. Stjórn­endur Reykja­nes­bæjar reyndu á sínum tíma að fá ríkið til þess að lækka lóð­ar­leig­una, en þau svör sem emb­ætt­is­menn veittu voru á þann veg að íbúðir á Ásbrú­ar­svæð­inu hafi verið seldar svo ódýrt og þess vegna ætti að ná inn tekjum í gegnum lóð­ar­leigu í stað­inn.

Það skýtur skökku við að þeir sem hafa keypt á Ásbrú­ar­svæð­inu sitji uppi með okur­lóð­ar­leigu vegna þess að ríkið seldi eignir sem það fékk næstum gef­ins á útsölu­prís. Það verður að gera þá kröfu til rík­is­valds­ins að það sýni sam­fé­lags­lega ábyrgð og gott for­dæmi og lækki lóð­ar­leigu. Það getur ekki gengið að íbúar í Reykja­nesbæ greiði 600 pró­sent hærri lóð­ar­leigu en íbúar í Kópavogi,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár