Bandarískur sjóður fjárfestir í Heimavöllum fyrir 300 milljónir

Íbúða­leigu­fé­lagið Heima­vellir hefur lokið end­ur­fjár­mögnun að and­virði þriggja millj­arða króna við banda­rískan fjár­fest­inga­sjóð sem jafn­framt keypti hluta­bréf í Heima­völlum fyrir um 300 millj­ónir króna.

Íbúða­leigu­fé­lagið Heima­vellir hefur lokið end­ur­fjár­mögnun að and­virði þriggja millj­arða króna við banda­rískan fjár­fest­inga­sjóð fyrir milli­göngu Fossa mark­aða. Þá hefur banda­ríski fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn jafn­framt keypt hluta­bréf í Heima­völlum fyrir um 300 millj­ónir króna.

Í byrjun maí hefst almennt útboð á nýju hlutafé í félag­inu sem í kjöl­farið verða tekin til við­skipta í Kauphöll Íslands. Skrán­ing­ar­lýs­ing vegna hluta­fjár­út­boðs­ins hefur þegar verið birt og þessa dag­ana fara fram kynn­ingar með fjár­festum.

Í yfir­lýs­ingu er haft eftir Guð­brandi Sig­urðs­syni fram­kvæmda­stjóra að það að erlendir aðilar séu til­búnir að fjár­magna félagið yfir lengri tíma og koma inn sem hlut­hafar sýni traust á starf­semi félags­ins. „Mark­miðið er að Heima­vellir, sem er stærsta leigu­fé­lag sinnar teg­undar á Íslandi, sé í dreifðri eign­ar­að­ild og jafn­framt góð við­bót í hóp skráðra félaga í Kauphöll Íslands sem gefi fjár­festum kost á frek­ari áhættu­dreif­ingu í eigna­söfnum sínum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár