Vilja ekki selja Landsbankann

Skoð­ana­könnun meðal allra þing­manna sýnir að Fram­sókn­ar­menn eru ekki á þeim bux­unum að selja hlut í Lands­bank­anum, þó að salan sé í fjár­lögum. Sjálf­stæð­is­menn setja sterka fyr­ir­vara. Borg­un­ar­málið varpar skugga á ferlið.

Afar ólík­legt er að meiri­hluti sé á Alþingi fyrir sölu rík­is­ins á tæp­lega 30 pró­senta hlut sínum í Lands­bank­anum á þessu ári. Nær eng­inn vilji er innan Fram­sókn­ar­flokks til söl­unnar og allir þing­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna eru mót­fallnir henni. Þing­flokkur Bjartrar fram­tíðar er klof­inn til helm­inga í mál­inu. Allir sjálf­stæð­is­menn sem svör­uðu vilja selja, en setja mikla fyr­ir­vara.

Kjarninn spurði alla 63 þing­menn Alþingis hvort þeir væru hlynntir því að ríkið seldi 28,3 pró­senta hlut sinn í bank­anum á þessu ári. Mikill meiri­hluti svar­aði spurn­ing­unni, 45 af 63, en 18 vildu ekki svara. Svar­hlut­fall var 100 pró­sent meðal þing­manna Bjartrar fram­tíðar, Vinstri grænna og Pírata. Allir þing­menn, að einum und­an­skildum, svör­uðu hjá Sam­fylk­ingu.

Gert er ráð fyrir því í fjár­lögum árs­ins 2016 að 71,3 millj­arðar fáist fyrir hlut­inn. Banka­sýsla rík­is­ins hóf und­ir­bún­ing að sölu­ferli síð­asta haust.

16 þing­menn sem svör­uðu Kjarn­anum eru fylgj­andi söl­unni á þessu ári og 29 and­vígir. Þeir sem eru fylgj­andi söl­unni eru allir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks sem svör­uðu, einn þing­maður Fram­sókn­ar­flokks og þrír þing­menn Bjartrar fram­tíðar. Þeir sem eru and­vígir eru allir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks sem svör­uðu, að einum und­an­skildum, allir þing­menn Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna og Pírata, og þrír þing­menn Bjartrar fram­tíðar.

Aðeins einn ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar svar­aði fyr­ir­spurn Kjarnans; Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra. Svar barst einnig frá aðstoð­ar­manni Sigrúnar Magn­ús­dóttur umhverf­is­ráð­herra, hvar stóð að rík­is­stjórnin hafi ekki tekið málið fyrir. 

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði á þingi í jan­úar að það lægi ekk­ert á að selja fyrr en menn væru vissir um að það sé æski­legt.

Spurn­ingin var send þing­mönnum í tölvu­pósti. Póst­ur­inn var ítrek­aður í tvígang til þeirra sem höfðu ekki svarað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár