Ævintýrið um Carmen rúllurnar

Hvað gerir danskur kaup­maður sem finnst hann ekki hafa nóg fyrir stafni? Hjá Arne Bybjerg kaup­manni í danska bænum Kalund­borg var svarið ein­falt: að fram­leiða hár­rúllur. Hann gaf þeim nafnið Carmen.

Auglýsing frá upphafi áttunda áratugar síðustu aldar.
Aug­lýs­ing frá upp­hafi átt­unda ára­tugar síð­ustu aldar. Mynd: Wiki Commons

Árið 1962 rak kaup­mað­ur­inn Arne Bybjerg fjórar versl­anir í Kalund­borg á Sjálandi. Þar voru seld útvarps­tæki, plötu­spil­arar og sjón­vörp. Rekst­ur­inn gekk vel, græjurnar ruku út og æ fleiri Danir eign­uð­ust sjón­varps­tæki. Á þessum tíma var sent út í „sauða­lit­unum“, fyrsta útsend­ing í lit í Danmörku fór fram 26. ágúst 1967 „Gala-Abend der Schallplatte“ hét sá dag­skrár­liður.

Eins og áður sagði gekk rekst­ur­inn vel hjá Arne Bybjerg árið 1962 og Arne, sem var 34 ára, velti fyrir sér mögu­leikum á ein­hverju nýju „sem gæti sigrað heim­inn“ eins og hann komst síðar að orði í við­tali. Dag einn rak hann augun í aug­lýs­ingu frá hár­greiðslu- og rak­ara­stofu í Kaup­manna­höfn, þar var getið um raf­magns­hár­rúllur. Arne Bybjerg skildi ekki hvað átt var við en lagði leið sína á stof­una í Kaup­manna­höfn til að skoða raf­magns­rúll­urnar.

Þegar til átti að taka hitn­uðu rúll­urnar ekki og Arne Bybjerg sneri heim, þessar rúllur væru ekki neitt sem myndi sigra heim­inn. En samt sem áður fór hann aftur til Kaup­manna­hafnar og hann og eig­andi stof­unnar ákváðu að vinna að frek­ari þróun raf­magns­rúll­unnar. Það gekk brös­ug­lega og á end­anum keypti Arne Bybjerg hug­mynd­ina og þar með lauk þátt­töku stof­unnar í Kaup­manna­höfn í þessu upp­finn­inga­starfi.

[adspot]

Mörg ljón í veginum

Arne Bybjerg gerði sér grein fyrir að hann byggi ekki yfir þeirri tækni­kunn­áttu sem til þyrfti ef raf­magns­rúll­urnar áttu að verða að veru­leika. Hann setti sig í sam­band við Niels Christian Jørg­en­sen verk­fræð­ing sem var áhuga­maður um upp­finn­ingar. Niels Christian tók að sér að reyna að þróa „rúllu­hug­mynd­ina“ og fékk 15 krónur á tím­ann, það þótti þokka­legt tíma­kaup. Rúll­urnar, með litlum göddum á, skyldu vera úr plasti og fylltar vökva. Þeim var stungið á þar til gerða pinna, sem hitn­uðu, þegar stungið var í sam­band. Margs konar vanda­mál komu upp meðan á þró­un­ar­vinn­unni stóð: Rúll­urnar voru límdar saman og þrútn­uðu þegar vök­vinn innan í þeim hitn­aði. Í eitt skipti mun­aði minnstu að illa færi þegar lím í rúllu gaf sig og heitur vök­vinn lak út. Stúlka sem þá sat í stól á vinnu­stofu Niels Christian brennd­ist á höfði og missti hluta hárs­ins, sem óx þó aftur. En Niels Christian tókst á end­anum að leysa öll tækni­legu vanda­málin, hann fékk einka­leyfi á hug­mynd­inni en þeir Arne gerðu samn­ing um frí afnot þess síð­ar­nefnda á hug­mynd­inni.

Vakti litla athygli í upphafi

Arne Bybjerg var bjart­sýnn á að raf­magns­rúll­urnar myndu slá í gegn. Hann fékk glugga­skreyt­inga­mann sem hann þekkti til að hanna hentug box, fyrir rúll­urnar sem ákveðið var að skyldu heita Carmen, í hverju boxi 18 rúllur. Arne var stór­huga og lét í fyrstu fram­leiða, í hús­næði sem hann leigði, 10 þús­und sett. En þegar að því kom að selja rúll­urnar sýndu fáir þeim áhuga. Arne ákvað að stöðva fram­leiðsl­una, í bili, og fékk hár­sker­ann Søren Unmack til að selja rúll­urnar. Áður en Søren hellti sér í sölu­mennsk­una ákvað hann að prófa rúll­urnar, þannig að hann vissi hvað hann væri að bjóða.

Settar í þurrt hár

Þeir Arne Bybjerg og Niels Christian Jørg­en­sen höfðu alltaf gengið út frá því að raf­magns­rúll­urnar yrðu settar í blautt hár, eins og hafði tíðkast með „gömlu“ hár­rúll­urnar. Søren Unmack ákvað að prófa að setja rúll­urnar í þurrt hár, og viti menn: virk­aði full­kom­lega. Søren gekk svo hús úr húsi í Kalund­borg og kynnti Carmen rúll­urnar. Jafn­framt voru rúll­urnar, og notkun þeirra kynntar í versl­unum. Skemmst er frá því að segja að rúll­urnar seld­ust eins og heitar lummur, 10 þús­und settin sem upp­haf­lega voru fram­leidd klár­uð­ust fljótt og til að gera langa sögu stutta voru starfs­menn (80% konur) árið 1969 orðnir 3 þús­und tals­ins. Slíkur fjöldi starfs­fólks lá ekki á lausu í Kalund­borg og Arne Bybjerg gerði út rútu­bíla sem óku með starfs­fólk til og frá vinnu víða af Sjálandi.

Banda­ríkin urðu fljót­lega stærsta mark­aðs­svæðið og um miðjan sjö­unda ára­tug­inn fóru dag­lega tvær flug­vélar, hvor um sig með 10 tonna farm af rúllum, frá Danmörku vestur um haf. Klondyke Kalund­borg sögðu Danir.

Tvennt kom til

Ástæður þess að Carmen náði slíkum vin­sældum sem raun ber vitni voru einkum tvær. Á sjö­unda ára­tugnum var sítt hár í tísku hjá báðum kynjum og ekki síður hitt að Carmen rúll­urnar voru auð­veldar í notkun. Það þurfti ekki að bleyta hárið, og vera svo með rúll­urnar í hár­inu tímunum saman eða sitja undir hár­þurrku­hjálmi og láta sér leið­ast. Í við­tölum var Carmen iðu­lega lýst sem bylt­ingu.

Clariol kaupir

Banda­ríska fyr­ir­tækið Clariol, sem á þessum árum átti fjöld­ann allan af snyrti­vöru­versl­unum og apó­tekum var lang stærsti við­skipta­vinur Carmen. Árið 1969 keypti Clariol fyr­ir­tækið Carmen af Arne Bybjerg. Kaup­verðið nam sem jafn­gildir í dag 3 millj­örðum danskra króna, um það bil 56 millj­örðum íslenskum. Arne sá sig til­neyddan að selja því ann­ars hefði Clariol ein­fald­lega sjálft látið fram­leiða rúll­urnar ann­ars staðar. Fram­leiðslan var áfram í Kalund­borg.

Úti er ævintýri

Fljót­lega eftir að Clariol keypti Carmen fyr­ir­tækið tók að halla undan fæti. Mestu réði breytt hár­tíska, síða hárið var ekki lengur hátíska og svo komu fleiri ,,hjálp­ar­tæki“ á þessu sviði til sög­unnar. Verk­smiðj­unni í Kalund­borg var lokað árið 1990, síð­ustu árin voru starfs­menn tæp­lega 400, rúm­lega tíundi hluti þess sem var á „gull­ald­ar­ár­unum“ um 1970. Þegar starf­sem­inni var hætt hafði um það bil einn millj­arður rúlla verið fram­leiddur í verk­smiðju Carmen. Algeng­ast var að í hverju Carmen boxi væru 18 rúllur en einnig voru rúll­urnar fáan­legar í minni og stærri boxum.

Í lokin er rétt að geta þess að í haust sýnir danska sjón­varpið, DR mynda­flokk sem byggður er á sögu Carmen fyr­ir­tæk­is­ins. Í kynn­ingu sagði tals­maður DR, að mynda­flokk­ur­inn væri ekki sagn­fræði, en stydd­ist við stað­reynd­irnar um sögu þessa ein­staka fyr­ir­tækis. DR hefur greini­lega trú á mynda­flokknum því að þegar er und­ir­bún­ingur haf­inn að annarri þátta­röð um Carmen. RÚV er með­fram­leið­andi að Carmen þátt­unum þannig að ætla má að þeir komi á skjá lands­manna með haustinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár