Ísland með Norðurlandamet í hækkun leiguverðs

Leigu­verð hér­lendis er íþyngj­andi fyrir lág­tekju­hópa, en fá iðn­ríki hafa upp­lifað jafn­miklar verð­hækk­anir á leigu­mark­aðnum og Ísland frá árinu 2005, sam­kvæmt nýrri skýrslu frá OECD. Verð­hækk­unin er lang­mest allra Norð­ur­landa.

Leita þarf til Eystrasaltsríkjanna og Tyrklands til að finna viðlíka hækkun á leiguverði og hérlendis.
Leita þarf til Eystra­salts­ríkj­anna og Tyrk­lands til að finna við­líka hækkun á leigu­verði og hér­lendis. Mynd: Bára Huld Beck

Leigu­verð hefur meira en tvö­fald­ast hér á landi á síð­ustu árum, sem er rúm­lega fjórum sinnum meiri hækkun en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Einnig eru Íslend­ingar mun óánægð­ari með hús­næð­is­verð í sínu nærum­hverfi heldur en íbúar ann­ars staðar á Norð­ur­löndum.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu og gögnum frá Efnahags- og fram­fara­stofn­un­inni (OECD), sem snýr að hús­næð­is­málum í yfir­stand­andi kreppu í lönd­unum sem tengj­ast sam­tök­unum.

Íþyngjandi leiguverð hér á landi

Samkvæmt skýrsl­unni er leigu­verð tölu­vert íþyngj­andi fyrir lág­tekju­fólk á almenna leigu­mark­að­inum hér á landi, en árið 2019 fóru 43 pró­sent af tekjum þeirra í greiðslu á húsa­leigu. Þetta er tölu­vert hærra en með­al­talið í OECD-ríkjum, þar sem lág­tekju­fólk á almennum leigu­mark­aði greiðir rúm­lega þriðj­ung tekna sinna í leigu. Hlut­fallið er einnig hærra en í Svíþjóð, Noregi og Danmörku, en aftur á móti nokkuð lægra en í Finn­landi.

Langtum meiri hækkun en á Norðurlöndunum

Þegar litið er á þróun leigu­verðs síð­ustu árin eru þó fá lönd sem hafa upp­lifað jafn­mikla verð­hækkun og Ísland, en sam­kvæmt skýrsl­unni hefur verðið á leigu­hús­næði tvö­fald­ast á tíma­bil­inu 2005 til 2019. Þetta er rúm­lega fjórum sinnum meiri hækkun á öðrum Norð­ur­löndum, þar sem leigu­verðið hefur hækkað um 20 til 30 pró­sent á sama tíma. Af öllum þeim 38 löndum sem OECD mældi í skýrsl­unni sinni mátti aðeins sjá við­líka hækkun í Tyrk­landi, Litháen og Eist­landi.

Með þeim óánægðustu

Einnig má gæta mik­inn mun í ánægju með hús­næð­is­verð milli landa. Samkvæmt könnun sem OECD lét gera segj­ast yfir 70 pró­sent Dana og Finna vera ánægð með verðið á hús­næði í sínu nærum­hverfi, á meðan um helm­ingur Norð­manna og Svía gera það. Hins vegar segj­ast aðeins 37 pró­sent Íslend­inga vera sátt með hús­næð­is­verð í sínu nágrenni.

Muninn má sjá á mynd hér að ofan, en könnun OECD fór fram á milli 2017 og 2019. Meðaltal allra íbúa OECD-ríkj­anna er mun hærra en á Íslandi, eða nálægt 50 pró­sentum. Á meðal Evr­ópu­þjóða eru ein­ungis Lettar, Litháar og Pól­verjar óánægð­ari með hús­næð­is­verð í sínu nærum­hverfi, en meiri óánægju má einnig gæta meðal Tyrkja, Ísraela, Argent­ínu­manna og Chilebúa.

Aðgerðir fyrir fyrstu kaupendur ekki eins markvissar

Í skýrsl­unni er einnig farið yfir mis­mun­andi aðgerðir OECD-landa í hús­næð­is­málum í yfir­stand­andi kreppu, en sam­kvæmt henni hefur hið opin­bera ráð­ist í aðgerðir til að auka hús­næð­is­ör­yggi tekju­lágra í flestum þess­ara landa, annað hvort með útleigu á félags­legu hús­næði eða með greiðslu hús­næð­is­bóta.

Hins vegar segja sam­tökin að sum lönd kjósi frekar að beina sínum aðgerðum að fyrstu kaup­endum eða þá sem hafa keypt hús­næði, en þær séu lík­legri til að gagn­ast milli­tekju­fólki og séu ekki best til þess fallnar að hjálpa þeim sem mest þurfa á hjálp að halda.

Aukin fjárfesting í félagslegu húsnæði

OECD kallar eftir auk­inni fjár­fest­ingu, bæði af hálfu hins opin­bera og hjá einka­geir­anum, í félags­legu hús­næði. Í skýrsl­unni segja þau að þess háttar aðgerðir gætu gegnt meg­in­hlut­verki í að tryggja að við­spyrnan frá krepp­unni muni gagn­ast sem flestum.

Til skamms tíma telja þau tíma­bundnar stuðn­ings­að­gerðir vera mik­il­vægastar til að styðja við þá sem búa við mikið óör­yggi á hús­næð­is­mark­aðnum, en leggja þó til að hugað sé að lang­tíma­þáttum, líkt og breyttri eft­ir­spurn á hús­næði vegna auk­innar fjar­vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár