Uppgjör

Árlegt flokks­þing Danska þjóð­ar­flokks­ins fer fram nú um helg­ina. Það er haldið í skugga deilna um for­ystu flokks­ins og hrap­andi fylgi. Háværar raddir hafa heyrst um nauð­syn þess að skipta um for­mann og eitt kunn­ug­legt nafn heyrst æ oftar: Pia Kjærs­gaard.

Þegar Pia Kjærsgaard var forseti danska þingsins á árunum 2015-2019 lét hún hengja upp stóran danskan fána í þingsalnum.
Þegar Pia Kjærs­gaard var for­seti danska þings­ins á árunum 2015-2019 lét hún hengja upp stóran danskan fána í þingsalnum. Mynd: Skjáskot

Það er ekki hægt að segja að gleði, sókn­ar­hugur og sam­lyndi ein­kenni tveggja daga flokks­þing Danska þjóð­ar­flokks­ins sem hófst í gær (18. sept­em­ber) og lýkur í dag. Eftir þing­kosn­ing­arnar 2019 fór að bera á óánægju meðal flokks­manna og sú óánægja hefur farið vax­andi. Und­an­farið hefur þeim farið fjölg­andi sem telja breyt­ingar á flokks­for­yst­unni for­sendu þess að flokk­ur­inn nái fyrri styrk á ný. Meðal verk­efna árs­þings­ins er for­manns­kosn­ing. Frá stofnun flokks­ins hefur ekki verið mikil spenna í kringum þennan dag­skrár­lið, frá stofnun hafa ein­ungis tveir setið á for­manns­stólnum, Pia Kjærs­gaard og Kristian Thulesen Dahl.

Upphaflega klofningur úr Framfaraflokknum

Þau Pia Kjærs­gaard og Kristian Thulesen Dahl eru ekki nýgræð­ingar í póli­tík. Pia Kjærs­gaard hefur átt sæti á danska þing­inu, Fol­ket­inget, síðan 1984 og Kristian Thulesen Dahl frá árinu 1994. Þau voru bæði í Fram­fara­flokki Mogens Glistrup. Flokks­for­mað­ur­inn sat um tíma í fang­elsi vegna skattsvika og Pia Kjærs­gaard gegndi þá for­mennsku í flokknum. Eftir að Mogens Glistrup hafði afplánað fang­els­is­dóm­inn og kom­inn aftur á kaf í stjórn­málin, tók að fjara undan Fram­fara­flokknum. Árið 1995 sögðu Pia Kjærs­gaard, Kristian Thulesen Dahl, Peter Skaarup, og nokkrir til við­bótar, skilið við Fram­fara­flokk­inn og stofn­uðu nýjan flokk. Flokk­ur­inn fékk nafnið Dansk fol­ke­parti, skamm­stafað DF. Á íslensku nefndur Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn.

Hægrisinnaður miðjuflokkur með þjóðleg gildi

Við stofnun DF var Pia Kjærs­gaard ein­róma kjör­inn for­maður og Kristian Thulesen Dahl vara­for­maður. Flokk­ur­inn bauð í fyrsta skipti fram til þings árið 1998, fékk þá 7.4% atkvæða og 13 þing­menn en sam­tals sitja 179 þing­menn á danska þing­inu.

[adspot]Flokk­ur­inn festi sig í sessi, fylgið jókst nær stöðugt, hefur alla tíð verið mest á lands­byggð­inni. Kjós­end­urnir hafa alla tíð verið eldra fólk með lágar tekjur og tak­mark­aða menntun. Flokk­ur­inn hefur aldrei átt aðild að rík­is­stjórn en stutt bláu blokk­ina svo­nefndu, flokk­ana á hægri vængnum. Stjórn­mála­skýrendur telja DF hægri sinn­aðan miðju­flokk sem leggi áherslu á þjóð­leg gildi. Og and­stöðu við aðild Dana að Evr­ópu­sam­band­inu.

Nýr formaður og mikil fylgisaukning

Árið 2012 ákvað Pia Kjærs­gaard að hætta for­mennsku í flokknum eftir 17 ár á for­manns­stólnum. Við for­mennsk­unni tók Kristian Thulesen Dahl. Að margra mati fylgdi honum ferskur blær, þótt hann væri langt í frá nýgræð­ingur í póli­tík­inni. For­manns­skiptin voru vel tíma­sett, þrjú ár til næstu kosn­inga og nýr for­maður DF fékk þannig svig­rúm til að skipu­leggja flokks­starfið. Kannanir sýndu aukið fylgi við flokk­inn, sú aukn­ing var einkum rakin til for­manns­skipt­anna.

Kosningasigur 2015, 37 þingmenn

Í þing­kosn­ing­unum árið 2015 fékk Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn 37 þing­menn, bætti við sig 15 frá kosn­ing­unum 2011. Flokk­ur­inn var orð­inn sá næst stærsti á danska þing­inu. Flokk­ur­inn hafði talað skýrt í mál­efnum inn­flytj­enda og flótta­manna, vildi tak­marka „straum­inn til Dan­merkur“. Sömu­leiðis vildi flokk­ur­inn standa vörð um, og bæta, hag aldr­aðra og öryrkja. Per­sónu­legar vin­sældir for­manns­ins, Kristian Thulesen Dahl, skiptu sömu­leiðis miklu máli.

Vildi hafa áhrif en ekki fara í stjórn

Í kjöl­far kosn­ing­anna 2015 urðu stjórn­ar­skipti. Flokkar úr „bláu blokk­inni“ undir for­ystu Lars Løkke Rasmus­sen tók við völdum. Sú stjórn hafði 53 þing­menn og varð því algjör­lega að reiða sig á stuðn­ing DF til að koma málum gegnum þingið. DF var þannig í lyk­il­stöðu en vildi hins­vegar ekki eiga beina aðild að rík­is­stjórn­inni.

„Flokk­ur­inn er ekki til­bú­inn í stjórn­ar­setu“ sagði for­mað­ur­inn. Auk þess hefði flokk­ur­inn meiri áhrif utan stjórnar. Margir undr­uð­ust þessa afstöðu og veltu fyrir sér hvort kjós­endur myndu ekki á end­anum snúa baki við flokknum. Kristian Thulesen Dahl gerði lítið úr slíkum vanga­veltum, flokk­ur­inn skyti sér aldrei undan ábyrgð og það vissu kjós­endur flokks­ins. Hann reynd­ist ekki sann­spár.

Rétt er að geta þess að Pia Kjærs­gaard var kjörin for­seti þings­ins, eftir kosn­ing­arnar 2015 og gegndi því emb­ætti út kjör­tíma­bilið, til 2019.

Hrun og vangaveltur um nýjan formann

Úrslit þing­kosn­ing­anna í júní 2019 voru reið­ar­slag fyrir DF. Flokk­ur­inn tap­aði 21 þing­manni, fékk 16. Ekki voru skýr­ingar á þessu mikla fylgis­tapi aug­ljósar en Kristian Thulesen Dahl virt­ist traustur í sessi. Stjórn­mála­skýrendur töl­uðu þó um að fylg­is­hrunið hlyti að kalla á breyt­ingar í flokks­for­yst­unni, kannski væri sand­ur­inn runn­inn úr stunda­glasi Kristian Thulesen Dahl. Vandinn var hins­vegar sá að eng­inn aug­ljós arf­taki virt­ist í aug­sýn. Augu margra höfðu beinst að Morten Messerschmidt. Hann hafði ungur gengið til liðs við DF og var kos­inn á þing árið 2005 en árið 2009 bauð hann sig fram til setu á Evr­ópu­þing­inu. Þar sat hann til árs­ins 2019. Fyrir kosn­ing­arnar 2019 ákvað Morten Messerschmidt að hætta á Evr­ópu­þing­inu og bjóða sig fram fyrir DF á Norður-Sjálandi. Hann hlaut góða kosn­ingu og var jafn­framt kjör­inn var­for­maður DF. Setan á Evr­ópu­þing­inu átti hins­vegar eftir að draga dilk á eftir sér fyrir Morten Messerschmidt.

Dæmdur fyrir að misfara með fé úr sjóðum ESB

Þann 1. ágúst sl. var Morten Messerschmidt, í Bæj­ar­rétti Lyngby (neðsta dóm­stigi) dæmdur í sex mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að mis­fara með fé úr sjóðum Evr­ópu­sam­bands­ins. Ítarlega var fjallað um það mál í frétta­skýr­ingu hér í Kjarn­anum 8. ágúst sl.

Morten Messerschmidt áfrýj­aði dómnum á staðnum en ekki er ljóst hvenær rétt­ar­höld fyrir Lands­rétti hefj­ast. Þessi staða gerir það að verkum að Morten Messerschmidt hefur orðið að leggja hugs­an­lega for­manns­drauma í DF á hill­una, í bili að minnsta kosti.

Vaxandi ólga og krafa um breytingar

Und­an­farið hafa þær raddir gerst æ hávær­ari innan raða DF sem telja nauð­syn­legt að stokka upp í for­ystu flokks­ins. For­manns­kjör fer fram á árs­þingi flokks­ins, nema boðað sé til sér­staks auka­þings. Næstu þing­kosn­ingar í Danmörku fara fram eigi síðar en 4. júní árið 2023 og ef gera á breyt­ingar á for­ystu DF, t.d. skipta um for­mann, þarf það að ger­ast sem fyrst. Kristian Thulesen Dahl hefur fyrir nokkru til­kynnt að hann gefi kost á sér til áfram­hald­andi for­mennsku. Ljóst er að margir flokks­menn styðja hann en þeir eru líka margir sem vilja skipta um karl­inn í brúnni. Vandi þeirra sem vilja skipta for­mann­inum út er sá að eng­inn aug­ljós val­kostur er í boði. Morten Messerschmidt, mað­ur­inn sem margir hafa talið sjálf­sagðan arf­taka, hvenær sem það yrði, er nú úr leik í bili. Og eng­inn veit hve lengi.

Oft er gott sem gamlir kveða

Ekki er víst að margir flokks­fé­lagar í DF þekki Hávamál og máls­hátt­inn hér að ofan. Þótt þeir þekki hann ekki hafa þeir hins­vegar óaf­vit­andi tekið sér hann í munn. Þeim röddum sem telja Piu Kjærs­gaard, stofn­anda DF, og for­mann fyrstu 17 árin, réttu mann­eskj­una til að rétta skút­una af, eins og einn úr þing­flokknum komst að orði, hefur fjölgað und­an­farna daga. Stuðn­ings­menn hennar benda á að hún njóti mik­ils álits meðal flokks­manna, þekki flokks­starfið betur en flestir og þurfi ekki að læra neitt í þeim efnum.

Pia Kjærs­gaard skrif­aði í færslu á Facebook um hádeg­is­bil sl. föstu­dag að inn­an­flokksá­tök væru það sem DF hefði síst þörf fyrir. Þess vegna vildi hún ekki bjóða sig fram til for­manns gegn Kristian Thulesen Dahl.

Sló úr og í

Danskir stjórn­mála­skýrendur hafa bent á að yfir­lýs­ing Piu Kjærs­gaard sé ekki stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing við Kristian Thulesen Dahl enda lýsi hún ekki stuðn­ingi við hann í færsl­unni. Hún segi ein­ungis að hún vilji ekki berj­ast við hann um for­manns­sætið. Yfir­lýs­ingin sýni jafn­framt að Pia Kjærs­gaard sé síður en svo sátt við for­mann­inn.

Í þann mund sem flokks­þingið var að hefj­ast í gær­morgun spurði blaða­maður Ekstra Bladet Piu Kjærs­gaard hvort hún hygð­ist fara fram gegn Kristian Thulesen Dahl. Hún neit­aði því en þá spurði blaða­mað­ur­inn hvort hún væri til­búin til að setj­ast í for­manns­stól­inn að loknum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum eftir um það bil tvo mán­uði.

Svarið var að mati við­staddra tví­rætt „tveir mán­uðir eru langur tími í póli­tík“.

Formaðurinn sjálfkjörinn, var einn í framboði

Þrátt fyrir margar óánægju­raddir var Kristian Thulesen Dahl end­ur­kjör­inn for­maður DF, kosn­ingin fór fram um miðjan dag í gær. For­mað­ur­inn hvatti flokks­menn til að standa saman og slíðra óánægjusverðin. Hvatn­ing­ar­orð hans duga þó tæp­lega og ljóst að ólgan er enn til staðar. Framtíð hans á for­manns­stóli kann að ráð­ast af útkomu flokks­ins í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum eftir tvo mán­uði. Fái DF slæma útkomu úr þeim kosn­ingum munu óánægju­radd­irnar verða hávær­ari og í ljósi ummæla Piu Kjærs­gaard við blaða­mann Ekstra Bladet er ekki loku fyrir það skotið að hún eigi eftir að setj­ast aftur í for­manns­stól Danska þjóð­ar­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár