Vandræðin í danska þjóðarflokknum

Það blæs ekki byr­lega fyrir danska þjóð­ar­flokk­inn um þessar mundir. Fylgið hrynur og margir vilja skipta um karl­inn í brúnni. Morten Messerschmidt, sem verið hefur helsta von­ar­stjarna flokks­ins, er nú fyrir rétti, ákærður fyrir svindl og mis­notkun á fé.

Morten Messerschmidt kemur hér fyrir rétt í Lyngby í vikunni.
Morten Messerschmidt kemur hér fyrir rétt í Lyngby í vik­unni. Mynd: EPA

Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn (DF) var stofn­aður haustið 1995. Stofn­endur voru fjórir félagar úr Fram­fara­flokki Mogens Glistrup. Á þeim bæ hafði, ekki í fyrsta sinn, allt logað í ill­deilum sem lauk með því að vara­for­mað­ur­inn Pia Kjærs­gaard sagði skilið við flokk­inn, ásamt Kristian Thulesen Dahl og tveimur þing­mönnum til við­bótar. Pia Kjærs­gaard hafði farið með for­mennsku í Fram­fara­flokknum á meðan stofn­and­inn Mogens Glistrup afplán­aði fang­els­is­dóm vegna skattsvika. Brott­hvarf fjór­menn­ing­anna mark­aði upp­hafið að enda­lokum Fram­fara­flokks­ins.

Pia Kjærs­gaard var í for­ystu fyrir hópnum sem klauf sig út úr Fram­fara­flokknum og hún varð fyrsti for­maður DF.

DF bauð fyrst fram til þings árið 1998 og fékk þá 13 þing­menn af þeim 179 sem sæti eiga á danska þing­inu (Fol­ket­inget). Í kosn­ing­unum árið 2001 fékk flokk­ur­inn 22 þing­menn, og var þar með orð­inn þriðji stærsti flokkur lands­ins. Flokk­ur­inn taldi sig ekki til­bú­inn til rík­is­stjórn­ar­þátt­töku en gerð­ist stuðn­ings­flokkur minni­hluta­stjórnar Venstre (sem er hægri miðju­flokkur) og Íhalds­flokks­ins (Konservative), undir for­ystu Anders Fogh Rasmus­sen.

Sökum stærðar sinnar gat flokk­ur­inn haft mikil áhrif á stefnu og ákvarð­anir stjórn­ar­innar. Það kom ber­lega í ljós árið 2006 en þá studdi DF van­traust­s­til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar á Lars Barfoed, ráð­herra neyt­enda­mála. Van­traustið tengd­ist kjöt­hneyksl­inu svo­kall­aða og sner­ist um dag­stimpla á kjöti og slöku mat­væla­eft­ir­liti. Ráð­herr­ann neydd­ist til að segja af sér. Stjórn Venstre og Íhalds­flokks­ins sat til árins 2011, allan tím­ann með stuðn­ingi DF. Flokk­ur­inn fékk 25 þing­menn í kosn­ing­unum 2007 en missti 3 í kosn­ing­unum 2011.

Formannsskipti og DF næst stærsti flokkurinn

Eins og áður sagði var Pia Kjærs­gaard kjör­inn for­maður DF við stofun flokks­ins árið 1995. Hún gegndi for­mennsk­unni til árs­ins 2012. Þá tók Kristian Thulesen Dahl núver­andi for­maður við. Fylgi flokks­ins tók stökk upp á við eftir að hann sett­ist í for­manns­stól­inn.

Í kosn­ing­unum 2015 fékk DF 37 þing­menn, bætti við sig 15 frá kosn­ing­unum fjórum árum fyrr og var orð­inn næst stærsti flokkur lands­ins. Danskir stjórn­mála­skýrendur töldu ástæður vel­gengn­innar vera skýra stefnu í mál­efnum inn­flytj­enda og flótt­manna, vildi tak­marka „straum­inn til Dan­merkur“ eins og það var orðað. Flokk­ur­inn tal­aði sömu­leiðis skýrt varð­andi aldr­aða og öryrkja, sem hann vildi standa vörð um. Loks má nefna per­sónu­legar vin­sældir for­manns­ins Kristian Thulesen Dahl.

Vildi ekki í stjórn

Eftir kosn­ing­arnar 2015 tók stjórn Venstre, undir for­ystu Lars Løkke Rasmus­sen við völdum. Mörgum þótti und­ar­legt að DF skyldi ekki sækj­ast eftir að kom­ast í rík­is­stjórn eftir að hafa náð jafn góðum árangri í kosn­ing­unum og raun bar vitni. Svar flokks­for­yst­unnar var eins og áður að flokk­ur­inn væri ein­fald­lega ekki til­bú­inn og hafi auk þess haft meiri áhrif utan stjórnar en innan. Stjórn­mála­skýrendur veltu fyrir sér hvort kjós­endur myndu ekki á end­anum snúa baki við flokki sem ekki hefur metnað, eða vill axla þá ábyrgð að stýra lands­mál­unum nema þá úr aft­ur­sæt­inu. Kristian Thulesen Dahl gerði lítið úr slíkum vanga­veltum, sagði kjós­endur flokks­ins vita að hann skyti sér aldrei undan ábyrgð. Annað kom þó á dag­inn fjórum árum síðar, árið 2019.

Hrun og óánægjuraddir

Úrslit kosn­ing­anna 5. júní 2019 voru reið­ar­slag fyrir DF. Flokk­ur­inn tap­aði 21 þing­manni, fékk 16. Skýr­ingar á þessu fylgis­tapi voru ekki aug­ljósar, en ýmsir stjórn­mála­skýrendur nefndu að sú harða stefna sem flokk­ur­inn fylgdi í mál­efnum inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda hefði að nokkru leyti gufað upp, vegna breyttra aðstæðna. Líka var bent á að Pia Kjærs­gaard fyrr­ver­andi for­maður hafði í umræðum talað í niðr­andi tóni um umhverf­is­sinna, kallað þá loft­sags­flón (klimatosse). Þrátt fyrir þetta mikla tap í kosn­ing­unum virt­ist for­maður flokks­ins, Kristian Thulesen Dahl traustur í sessi. Ýmsir stjórn­mála­skýrendur sögðu þó að úrslit kosn­ing­anna hlytu að kalla á breyt­ingar í flokks­for­yst­unni. Yngja þyrfti upp. Í tengslum við þessa umræðu var einkum talað um einn mann sem nýjan leið­toga DF. Morten Messerschmidt.

Vinsæll en umdeildur

Morten Messerschmidt, fæddur 1980, er lög­fræð­ingur að mennt. Hann gekk ungur til liðs við DF og var vara­for­maður ung­liða­hreyf­ingar flokks­ins um fimm ára skeið. Hann var kjör­inn á þing árið 2005 og var á þingi tals­maður flokks­ins í Evr­ópu­málum.

Árið 2007 birti dag­blaðið BT frétt um að Morten Messerschmidt hefði verið í Tívolí í Kaup­manna­höfn, vel við skál, sungið þýska þjóð­söng­inn og hyllt Adolf Hitler. Þing­mað­ur­inn við­ur­kenndi að hafa verið við skál og sungið fyrsta versið í þýska þjóð­söngnum en harð­neit­aði að hafa hyllt Adolf Hitler. Þetta mál end­aði fyrir dóm­stólum, Morten Messerschmidt var hreins­aður af öllum ásök­unum en blaða­menn BT fengu sektir og dæmdir til að greiða Morten Messerschmidt bætur. Í þing­kosn­ingum þetta sama ár þre­fald­aði hann fylgi sitt frá kosn­ing­unum tveimur árum fyrr.

Tíu ár á Evrópuþinginu

Við kosn­ingar til Evr­ópu­þings­ins árið 2009 fékk Morten Messerschmidt 284 þús­und atkvæði, aðeins einu sinni hafði fram­bjóð­andi fengið fleiri atkvæði. Í Evr­ópu­þings­kosn­ing­unum 2014 bætti hann um betur og fékk 466 þús­und atkvæði. Morten Messerschmidt hefur alla tíð verið mjög gagn­rýn­inn á Evr­ópu­sam­bandið og margoft talað fyrir því að það verði leyst upp. Fyrir þing­kosn­ing­arnar í Danmörku árið 2019 hafði Morten Messerschmidt ákveðið að söðla um, hætta á Evr­ópu­þing­inu og bjóða sig fram fyrir DF á Norður Sjálandi. Hann hlaut mjög góða kosn­ingu og varð jafn­framt vara­for­maður DF.

Meld og Feld

Árið 2015 varð Morten Messerschmidt for­maður félags­ins Meld. Meld (sem ekki starfar lengur) var félag þing­manna flokka sem full­trúa áttu á Evr­ópu­þing­inu, flokka sem voru gagn­rýnir á störf og til­veru Evr­ópu­sam­bands­ins. Feld var sjóður tengdur Meld og sá um að úthluta styrkjum til verk­efna. Meld og Feld nutu styrkja frá Evr­ópu­sam­band­inu en styrk­ina mátti ein­ungis nota til verk­efna sem tengd­ust ESB, en ekki til verk­efna tengdum ein­stökum flokkum, til dæmis í heima­landi við­kom­andi flokks. Ekki til kosn­inga­und­ir­bún­ings eða sam­koma á vegum ein­stakra flokka.

Rikke Karlsson og reikningarnir

Í októ­ber 2015 sagði Rikke Karlsson þing­maður á Evr­ópu­þing­inu sig úr DF. Hún hafði árang­urs­laust óskað eftir því við Morten Messerschmidt að fá afhenta yfir­lit reikn­inga Meld sem hún átti sæti í. Hún sak­aði Morten Messerschmidt um að hafa óhreint mjöl í poka­horn­inu úr því hann vildi ekki afhenda umrædda reikn­inga. Morten Messerschmidt gerði lítið úr þessu og hædd­ist að Rikke Karlsson

Í nóv­em­ber 2015 ákvað Evr­ópu­sam­bandið að Meld og Feld skyldu leyst upp og þau skyldu jafn­framt end­ur­greiða pen­inga sem not­aðir hefðu verið til að greiða árlegt sum­ar­ferða­lag DF um Danmörku.

Í við­tali við danska fjöl­miðla í maí 2016 neit­aði Morten Messerschmidt að hafa mis­farið með fé úr sjóðum ESB og sagð­ist vera fórn­ar­lamb ofsókna and­stæð­inga sinna.

Þremur dögum eftir áður­nefnt við­tal ákvað for­sætis­nefnd Evr­ópu­þings­ins að Meld og Feld (sjóðir þeirra höfðu verið frystir) skyldu end­ur­greiða jafn­gildi 60 millj­óna íslenskra króna sem hefði verið varið til verk­efna sem ekki sam­ræmd­ust reglum, t.d. kosn­inga­bar­áttu.

18. ágúst 2016 greindi Ekstra­bla­det frá því að Rikke Karlsson, ásamt Jørn Dohrman hefðu verið kosin í stjórn í Meld og Feld, þótt þau væru ekki á staðnum og und­ir­skriftir þeirra á papp­írum frá fund­inum væru fals­aðar. Sama dag kærði Rikke Karlsson Morten Messerschmidt til lög­reglu fyrir skjala­fals.

Rannsóknarskýrslan

Í sept­em­ber árið 2019 skil­aði eft­ir­lits­stofn­unin OLAF (starfar á vegum fram­kvæmda­stjórnar ESB) skýrslu sinni um Meld og Feld. Í skýrsl­unni kemur fram að fé Meld og Feld hafi verið notað með ólög­legum hætti, upp­hæðin næmi að minnsta kosti jafn­gildi 86 millj­ónum íslenskra króna. Þessi skýrsla leiddi til þess að lög­reglu og ákæru­valdi í heima­löndum þeirra félaga sem áttu aðild að Meld og Feld var falin áfram­hald­andi rann­sókn. Í Danmörku leiddi sú rann­sókn til ákæru á hendur Morten Messerschmidt. Danska þingið hafði þá sam­þykkt að svipta hann þing­helgi.

Dómsmálið og framtíð Morten Messerschmidt

Rétt­ar­höldin í máli Morten Messerschmidt hófust síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, 4. ágúst. Fjöldi vitna kemur fyrir rétt­inn en gert er ráð fyrir að rétt­ar­höldin standi í sjö daga og dómur verði kveð­inn upp 13. ágúst.

Sak­sókn­ari hefur kraf­ist þess að Morten Messerschmidt verði dæmdur í fang­elsi. Verj­endur krefj­ast sýknu.

Pólitísk fram­tíð Morten Messerschmidt er í húfi. Hljóti hann dóm verður að telj­ast hæpið, eða úti­lokað, að hann hefji leið­toga­kyndil Danska þjóð­ar­flokks­ins á loft. Verði hann sýkn­aður, sem hann telur sjálfur full­víst, stefnir hann á áfram­hald­andi þátt­töku í dönskum stjórn­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár